Hlýir og kaldir júnímánuđir

Ţađ hefur víst ekki fariđ framhjá mönnum ađ maí var óvenjulega kaldur. Í Reykjavík sá kaldasti síđan 1979 en á landinu í heild svipađur og 1982. Ţetta er kaldasti mánuđurinn ađ tiltölu sem var í vetur og í vor.

Ţađ kemur óneitanlega nokkuđ flatt upp á mann ađ fá svona mánuđ ofan i leiđinlegan vetur eftir góđviđriđ á ţessari öld en ekki kemur ţađ samt beinlínis á óvart.

Horfurnar fyrir fyrri hluta júní eru svo vćgast sagt ekki gćfulegar.

Međalhitinn í júní í Reykjavík á ţessari öld er 10,4  stig en síđustu 14 ár tuttugustu aldar 9,1 stig og má heita sá sami viđmiđunartímabiliđ 1961-1990. Ekkert smárćđis hitastökk! Á öllum árunum 1942-2001 kom engin júní sem náđi međaltali allra júnímánađa á okkar öld, 10,4 stigum. Frá og međ 2002 hafa júnímánuđur veriđ međ eindćmum hlýir, til dćmis komiđ ţrír mánuđir sem hafa náđ ellefu stigum eđa meira (sá síđasti í fyrra) en ađeins tveir frá 1871-2000, árin 1941 og 1871. 

Hitafariđ í júní á okkar öld er ţví mjög óvenjulegt ástand og stendur varla óbreytt til langframa.

Nú eru Reykvíkingar ţó auđvitađ svo vanir ţví ađ fá júnímánuđi frá svona tíu og hálfu stigi og upp fyrir ellefu stig, oft mjög sólríka líka, ađ mönnum mun sannarlega bregđa í brún ef fara ađ koma svalir mánuđir, til ađ mynda undir 9 stigum og ég tala nú ekki um undir 8 stigum. Síđasti júní undir 9 stigum var reyndar sá fyrsti á okkar öld, 2001 en sá mánuđur mćldist 8,8 stig. Fimmtán kaldari mánuđir komu ţó árin 1961-2000 og einn jafn kaldur. Af ţessum mánuđum voru fjórir undir 8 stigum, sá síđasti 1992, 7,8 stig. Ekki er nú langt síđan i veđurfarslegu tilliti.

Kaldasti júní sem mćlst hefur í Reykjavík var 1867 6,4 stig en kannski var ađeins kaldara í júní 1851 en ţá var ekki mćlt í Reykjavik en hins vegar í Stykkishólmi ţar sem var kuldi mikill. Köldustu júnímánuđir sem miđaldra fólk ćtti ađ muna eftir voru einmitt 1992, 7,8 stig og 1978 međ sömu hitatölu. Fáir munu nú reka minni til júní 1922 sem mćldist ađeins 7,4 stig.

Ţó síst af öllu vilji mađur spá af alvöru um framtíđina eđa taka upp kuldahrollstakta, ţó ţeir séu nú nokkuđ í tísku, kćmi manni ekki á óvart ţó ţessi órofnu ađ kalla má sumarhlýindi (og önnur hlýindi) sem ríkt hafa á landinu ţessa öld fari nú ađ brotna eitthvađ upp.

Fylgiskaliđ fylgist svo áfram međ veđrinu í júni. Ţar hefur viđ hliđina á međalhita hvers dags á landinu veriđ bćtt viđ međaltali hitans fyrir hvern dag á ţessari öld, 2001-2014.

   


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Bloggfćrslur 4. júní 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband