Methlýindi í júnímánuði

Síðasta bloggfærsla mín var um það hvað júnímánuður færi vel af stað hvað hlýindi varðar.

Nú er orðið ljóst að mánuðurinn er sá hlýjasti sem mælst hefur bæði  í Reykjavík og Stykkishólmi.

Í Stykkishólmi var byrjað að mæla seint á árinu 1845. Hlýjustu júnímánuðir þar hingað til voru árin  2007 og 1871 þegar meðalhitinn mældist 10,5 stig. Nú er hann hins vegar 10,8 stig fremur en 10,7. En vafalaust er að hitinn er meiri en mælst hefur hingað til í júní.

Í Reykjavík er meðalhitinn 11,4 stig. Það er heldur hlýrra en var í hlýjasta júní þar hingað til sem var 2003, 11,3 stig. Hægt er að átta sig á hitanum í Reykjavík í júní frá 1866 og einnig árin 1821-1853.  Júní 1830 og 1831 hafa mjög háar tölur og hærri en nú en  ekki er  rétt að gera of mikið úr þeim vegna ófullkominna mæliaðstæðna, en ljóst er þó að þessir mánuðir voru afar hlýir. En á þeim tíma sem mælingar frá Reykjavík eru sæmilega trúverðugar er ekki hægt að finna hlýrri júní en nú. 

Samkvæmt þeirri aðferð sem ég hef notað til að finna hlýjustu og köldustu mánuði á öllu landinu út frá þeim veðurstöðvum sem lengst hafa athugað og lesa má um hér á bloggsíðunni  er þessi júní sá hlýjasti á landsvísu síðan 1941 en hlýrra var einnig 1933, 1909 og líklega 1871. Miðað við það meðaltal sem nú er í gildi er mánuðurinn um það bil tveimur stigum fyrir ofan meðallag  á landinu .

Ekki virðast þó mánaðarmet hafa verið slegin nema í Reykjavík og Stykkishólmi og líklega í Borgarfirði og jafnvel í uppsveitum suðurlands og uppi á hálendinu. Hjarðarland er með met, en stöðin er ekki gömul og Hæll  í Hreppum er mjög nærri sínu meti frá 1954.  Hveravellir eru örugglega með sinn hlýjasta júní frá því mælingar hófust þar um miðjan sjöunda áratuginn. Stöðvar eins og Vestmannaeyjar, Bolungarvík, Akureyri og Kirkjubæjarklaustur halda hins vegar sínum gömlu metum og einnig stöðvar á austurlandi. Á austurlandi og norðaustanverðu landinu er reyndar einna svalast en hitinn er þar samt vel yfir meðallagi.

Mánuðurinn er ansi þurr og nær vísast varla meira en hálfri meðalúrkomu þar sem hún er mest. Á Akureyri hefur aðeins einu sinni verið þurrara í júní. Það var árið 2007 sem var afar þurr og hlýr mánuður og minnir reyndar um sumt á þennan sem nú var að líða.

Nokkuð hefur verið kvartað um sólarleysi í Reykjavík en sólskinsstundir voru þó næstum því í meðallagi. Ísland er bara ekkert sólskinsland!

Þökk sé Gagnatorginu þar sem hægt er að fylgjast með stórviðburðunum  í veðrinu jafnóðum og þeir gerast.

Það má í lokin segja að þessi júní hafi svo sannarlega sýnt meistaratakta ekki síður en fótboltaliðin í Suður-Afríku!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það hafðist, en þó með herkjum.

Emil Hannes Valgeirsson, 30.6.2010 kl. 22:31

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, veðrið allra síðustu dagana í Reykjavík hefur verið dull og grámyglulegt þó ekki hafi verið kalt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.6.2010 kl. 22:38

3 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Þegar júní er laus við sínar alræmdu norðannepjur er oftast von á góðu líkt og nú.  Það er ólíkt í ár og 2007 í Reykjavík að nú var tiltölulega þurrt, en þó ekki sólríkt (enda ekki N-átt), en 2007 var venju fremur vætusamur þó hlýtt hafi verið.   Segir okkur að sólskin og hiti fara ekki endilega saman snemmsumars.

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 30.6.2010 kl. 23:42

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Júní 2007 var reyndar mjög þurr eins og þessi, aðeins votari,  en talsvert sólríkari. En hlýji júní 2003 var hins vegar vætusamur og með metúrkomu á Teigarhorni.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.7.2010 kl. 01:09

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Framsóknarmafían var búin að spá rigningu í Reykjavik í allt sumar.

Hægt að treysta því að hún hefur alltaf rangt fyrir sér.

Þeir sem fara út fyrir Læk í sumar eiga því ekki von á góðu.

Þorsteinn Briem, 1.7.2010 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband