Hringlandi vitleysa

Þegar ég var barn og unglingur var klukkunni breytt tvisvar á ári. Það var mikið vesen og menn voru ansi þreyttir á því. Loks var ákveðið 1967 að hætta þessu hringli og færa klukkuna í eitt skipti fyrir öll til heimstíma sem ætti að gilda allt árið. Af því var ýmis konar hagræði. En það fylgdu því líka vissir ókostir.

Í nær hálf öld hafa menn svo ekkert hugsað meira út þetta. Og ekkert vesen!

En fyrir fáum árum hafa komið upp þær geggjuðu hugmyndir að flýta klukkunni enn meira.

Og nú vilja nokkrir alþingismenn færa klukkuna aftur til baka um klukkustund. 

Helsta og jafnvel eina röksemdin sem þeir færa fyrir því er sú að það sé betur í samræmi við stillingu líkamsklukkunnar í okkur.

Lítið veit ég um þau fræði. En eitt liggur hversdagslegri skynsemi í augum uppi. Ef líkamsklukka manna vill stilla sig sem næst gangi sólarinnar þá  hlýtur hún að kolruglast mikinn hluta ársins í Íslendingum. Ekki síður um hásumarið. Og þessu verður aldrei breytt. Þjóðin hlýtur reyndar að hafa aðlagast þessu vel gegnum aldirnar.  

Það er náttúrlegt skammdegi og langdegi á Íslandi. Undan því verður ekki vikist. Nú er sá furðulegi hugsunarháttur uppi að seinkun klukkunar muni ekki aðeins auka birtuna heldur  verði það hreinlega allra meina bót. En birtan mun ekki aukast. Hún verður auðvitað sú sama. Birtutíminn færist bara til. Þó klukkunni verði seinkað munu menn eftir sem áður í mesta skammdeginu rorra í myrkri  nokkra klukkutíma eftir að þeir mæta í vinnu eða skóla. Trúa menn því í alvöru að birting einum klukkutíma fyrr skipti einhverjum sköpum? Og þá dimmir  klukkutíma fyrr. Sólin sest þá klukkan hálf þrjú í svartasta skammdeginu í Reykjavík. Frábært! Það er ekki hve nær birtir og hve nær dimmir sem gerir skammdegið erfitt fyrir marga. Það er einfaldlega hvað birtutíminn er skammur yfirleitt. Og því verður ekki breytt.

Það er kannski góðra gjalda vert út af fyrir sig að við færum eftir samræmdum sóltíma fyrir Ísland.

Aðalatriðið er samt það að góð sátt hefur verið um núverandi fyrirkomulag í nær hálfa öld og ekkert klukkuhringl. En verði klukkunni seinkað má bóka það að fljótlega fari að heyrast heimturekar raddir sérvitringa um það að flýta klukkunni á  sumrin til að  auka sólar og birtutímann eftir vinnudag og undan því verði látið því Íslendingar eru mjög viðkvæmir fyrir hvers kyns sérvitringum. Einkanlega þeim sem eru alveg út úr kú.

Þá verðum við aftur kominn í eilíft klukkuhringl. 

Núverandi málamiðlun um klukkuna hefur reynst afar vel.

Það er þessi venjulega dilla í Íslendingum, rugl og ráðleysi,  að fara að hrófla við því. 

Slíkt er ávísun á enn frekara hringl með klukkuna. Að við hrökkvum hálfa öld aftur í tímannn.

Það er bara hringlandi vitleysa!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Alveg sammála þessu og góð samantekt.

Ég hef aðeins einu við að bæta, sem er, að einstaka firðir eru til þar sem klukku færi betur á að vera aðeins seinna (eða fyrr), t.d. á Seyðisfirði, þar sem sólin skín ekki eftir klukkan sex eða svo á sumrin. Svo má vera að meðaltal fjarðanna komi tímanum á það sem er nú í dag.

En er þetta mál ekki eftir öðru hringli sem kemur úr húsinu við Austurvöll? Farið er í kringum hlutina og horft á eitthvað annað en aðal vandamálið -sem eru stjórnmálamenn á villigötum.

Ólafur Þórðarson, 15.12.2010 kl. 14:29

2 Smámynd: Jón Arnar

hef skilið þetta þannig að evrópskur háttur verði hafður á þ.e.a.s sumartimi a sumrin vetrartimi a veturna.  Nu er klukkunni er breytt svona seint sem hér (siðustu helgina i okt) tekst ju ekki mikið eftir að siðdegismyrkvun se of snemma en helv er gott að fa birtuna fyrr að morgni þú.  Eins er hið sama að sumri bara viðsnuið (tekst ekki eftir að birti seinna að morgni (enda eftir jafndægri) en nytist vel að kveldi   

Jón Arnar, 15.12.2010 kl. 15:33

3 identicon

Mér er sléttsama um klukkuhringl. Hún má mín vegna vera eins og hún er nú. En sem kennari er ég hoppandi ill yfir að lítil börn séu látin mæta kl. 8 í skólann, dauðsyfjuð rogast þau þangað með töskurnar sínar. Börn ættu ekki að þurfa að mæta í skólann fyrr en kl. 9. Um það má gjarna setja lög á Alþingi.

Guðrún Unnur Ægisdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2010 kl. 18:05

4 Smámynd: Guðmundur D. Haraldsson

Væri ekki nær að byrja að vinna aðeins seinna bara? Eða veita sveigjanlegri vinnutíma?

Guðmundur D. Haraldsson, 17.12.2010 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband