Hvernig verður apríl

Mér finnst alltaf 1. apríl vera fyrsti dagur vorsins þó ekki sé nú alltaf komið vorveður. Þegar jörð er orðin auð og komið fram í aprílmánuð finnst mér náttúran vera búinn að gera vorhreingerningarnar. 

Hvað finnst mönnum um þetta nýja myndform sem komið er á veðurfréttir sjónvarpsins? Þarna er kort af landinu með landslagi í dýpt. Kannski verður einhvern tíma sýnt hvernig það virkar á veðrið á sérstökum stöðum í sérstöku veðurlagi. Gaman að sjá ástandið í Ameríku þó sárlega sakni ég Eureka og Alerts á Kanadaeyjunum! Þar vilja vorharðindi oft verða í harðara lagi!

En við fylgjumst með apríl hér í fylgiskjalinu. 

 

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Gleðilegt vor - mér þótti veðurfréttatíminn flottur.

Höskuldur Búi Jónsson, 1.4.2011 kl. 21:04

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Æ mér finnst þetta vera enn ein afturförin í veðurfréttum og sannfæra mig ennþá betur um hvað gömlu handteiknuðu kortin voru góð, jafnvel í svarthvítu. Þar var líka staldrað við hvert kort og yfirlitskortin voru ekki á ferð á flugi. Svo eru veðurtáknin núna svo fínleg að þau eiga það til að hverfa í Íslandskortið sem er allt of litríkt í grunninn, sama má segja um Evrópukortið og Ameríkukortið sem er reyndar góð viðbót. Þetta var kannski flott en veðrið sjálft finnst mér týnast í umgörðinni.

Hinsvegar tek ég undir vorkveðjuna frá Höska.

Emil Hannes Valgeirsson, 1.4.2011 kl. 22:22

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Ég held að þeim nútímaaugum sem vön eru orðin því að allt sé á iði á sjónvarpsskjánum myndi bregða við að fá aftur gömlu teiknuðu kortin. Mér hefði reyndar þótt fyrsti apríl einmitt verið dagurinn til að reyna þau að nýju - og kynna sem nýjung. Það er varla nokkur maður undir þrítugu sem man eftir gamla laginu. En ég er auðvitað hjartanlega sammála Emil um endalausa afturför sem staðið hefur síðan svarthvítu kortin hurfu af skjánum. Best voru þó moggakortin gömlu sem hurfu vegna samkeppni við sjónvarp í nóvember 1967. Blessuð sé minning þeirra.

Trausti Jónsson, 1.4.2011 kl. 23:59

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gömlu kassakortin voru náttúrlega það langbesta sem sést hefur í sjónvarpinu. Ég man líka vel eftir Moggakortunum. Öllu fer stöðugt aftur og því hraðara sem tíminn líður!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.4.2011 kl. 00:08

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Við getum þó fagnað því að sjálft veðrið hefur batnað svona almennt þótt öllu öðru fari aftur.

Emil Hannes Valgeirsson, 2.4.2011 kl. 00:53

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er kannski að veðrið sé farið að halda sér til fyrst það er sýnist fallegt í sjónvarpinu. Annars á ég meirihluta minna gömlu sjónvarpsveðurfréttapistla frá kassatímabilinu og þeir geta varla með nokkru móti talist sérstaklega upplýsandi umfram þær veðurfréttir sem eru sýndar í dag. En þær eru hægari - mun hægari, fjögur kort á 4 mínútum - nú eru hvað - 7 til 10 myndir (þar af ein til tvær á hreyfingu) á 2 mínútum (eða er það minna). Veðri var þá eingöngu spáð 24 klst fram í tímann - stöku sinnum minnst á tvo daga. Nú er hraðinn fyrir mestu. Fyrir utan það að tákn og þrýstilínur sjást ekki lengur fyrir hávaða (litafylleríi) í bakgrunninum.

Trausti Jónsson, 2.4.2011 kl. 01:51

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ætli það eigi svo að betrumbæta veðurfréttatímann að einhverjum spurningum út í hött sé beint að veðurfræðingunum? Ef ég væri  veðurfræðingur myndi ég nú bara byrsta mig yfir spurningunum! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.4.2011 kl. 19:54

8 Smámynd: Trausti Jónsson

Þessi staða hefur komið upp nokkrum sinnum áður. Frægasta dæmið er líklega þegar Borgþór var spurður að því í hvaða sæti Ísland myndi lenda í Evrópusöngvakeppninni (en hún fór fram sama kvöld). Borgþór svaraði að bragði: „Fjórða sæti“. Enda lenti lagið einmitt í því sæti. Svo fór það svo að fréttamönnum fór að þykja svör veðurfræðinganna heldur súr og þá var þessum ósið hætt. En svo virðist sem saga fréttatíma virðist þeim sem fitla með lúkk hans og framvinduhandrit algjörlega hulin - þannig að hlutirnir endurtaka sig venjulega með eins til tveggja áratuga sveiflutíma - kannski er það sólblettasveiflan eftir allt saman?

Trausti Jónsson, 3.4.2011 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband