Lífið er samt gott

Í gær fór ég til vinar míns sem ég hef ekki hitt í 25 ár. Við vorum mjög nánir árum saman. Svo fluttist hann til útlanda og við skrifuðumst bara á. Fyrir nokkrum vikum settist hann aftur að á Íslandi.

Með mér í heimsókninni var annar vinur minn sem líka hafði þekkt þennan mann.

Það var bara eins og við hefðum hist í gær. Við náðum svo frábærlega vel saman og allir gömlu taktarnir og þessi sérstaki húmor sem myndast alltaf milli vina var á sínum stað eins og aldrei hefði verið neinn aðskilnaður.

Úti skein sólin.

Mikið var þetta gaman. Af hverju ná sumir svona vel saman en aðrir ekki? Hvað veldur vináttu milli manna?

Veit ekki. En maður finnur þetta jafnvel á blogginu að maður dregst meira að sumum en öðrum. Ýmsir hafa margt gott að segja um samfélagsmál og maður les þá en þeir toga mann ekkert sérstaklega að sér sem persónur. En svo eru einhverjir aðrir sem gera það þó maður sé jafnvel oft ósammála skoðunum þeirra. Bara. Ég hef gaman að því fara inn á þá sem ekki eru sí og æ kynntir á forsíðunni og þá finn ég stundum alveg frábærar persónur á blogginu.

En líka marga hálfvita!  

Mér finnst konur blogga skemmtilegar en karlmmen svona yfirleitt. Þær eru meira þær sjálfar en ekki einhverjir besservisserar um þjóðfélagmálin.

Ég sjálfur? Jú, ég brúka stundum stólpakjaft um eitthvað sem er að gerast í þjóðlífinu. Tek eftir því að þá eykst lesturinn á síðunni. En það sem ég vildi nú helst forðast á blogginu mínu er að það verði eins og ég  sé að skrifa einhverjar helvítis blaðagreinar í stórum stíl. Má vera ein og ein. Meira gaman að velta sér upp úr sjálfhverfunni!  

Skemmtilegast er samt alltaf að skrifa um blessað veðrið! Það finnst öðrum þó ekki mest gaman að lesa. Lesturinn á síðunni minni hrundi þessa viku sem ég flaggaði bara veðrinu á henni og hefur ekki jafnað sig fyrr en allra síðustu daga.

Þá veit ég hvað ég að að gera til að fá að vera í friði.

Blogga bara um veðrið! 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það er snjókoma og von á meiri snjó hér í kvöld. Hefur ekki snjóað svona hér í meira en 10 ár. Svo falleg öll stóru trén hérna íklædd þessari fallegu vetrarkápu.

Bara smá svona veður fyrir þig af því að ég sveit að þú elskar alls konar veður.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.2.2007 kl. 20:48

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvar í veröldinni hefur ekki snjóað meira í 10 ár? Það þætti mér gaman að vita.

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.2.2007 kl. 21:29

3 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Blogg án raka:

Góð vinátta er gjöf Guðs, einn flötur á víðerni kærleika Krists sem hefur engan endi. Kærleikur Krists er ást, vinátta, heiðarleiki, góðgirni, manngöfgi o.s. frv.

Með kveðju. Takk fyrir gott blogg.

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 8.2.2007 kl. 21:32

4 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Er hætt að rigna á Íslandi?

Ólafur Þórðarson, 9.2.2007 kl. 03:28

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hér hefur snjóað soldið. En ekkert til vandræða!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.2.2007 kl. 11:42

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mér finnst snjórinn fallegur, en hann er mér til vandræða, þar sem ég get ekki lengur verið úti í sól og snjó nema með sólgleraugu.
Þetta kemur víst til út af lata skjaldkirtlinum mínum.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 18:04

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Mér finnst vinir eins og hér var líst allra allra fallegast... meira að segja fallegri en snjórinn

Heiða B. Heiðars, 9.2.2007 kl. 22:35

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Sammála þér sem endranær. Takk!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2007 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband