Anna Nicole er dáin

Það kom mér gersamlega á óvart, eins og þruma úr heiðskíru lofti, að hún Anna Nicole Smith sé dáin. Ég vissi ekki einu sinni að hún hefði verið til. Hvað þá að hún væri núna ekki lengur til. Ég hafði sem sagt aldrei heyrt minnst á þessa góðu konu fyrr en hún dó og heyri ég þó margt og margt og ekki allt fallegt.

Já, þetta er nú ljóta. Hún er bara dáin gamla konan. Það stendur á forðsíðu allra blaða og bloggsíðna. Meira að segja hér á Allra veðra von.

En afhverju sagði mér engin að þessi merkiskona hefði verið til og gert garðinn alveg gríðarlega frægan? Allir vissu víst af henni nema ég. Engum hefði nú munað neitt um að nefna hana við mig og jafnvel bjóða okkur saman í kaffi og kleinur. 

Alltaf missi ég af öllu. 

Já, það er svona að vera þessi ólukkans skýjaglópur sem ég er.   

Og nú þarf ég einmitt að fara að taka veðrið!     

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Mér brá svolítið... Vegna þess að ég áttaði mig á þeirri nöturlegri staðreynd að ég hugsaði hana sem manneskju í fyrsta skipti þegar ég vissi að hún var dáin! Hún og fjölmiðlar hafa málað mynd af einhvers konar sirkusfríki... og þaðan af verra.

Heiða B. Heiðars, 9.2.2007 kl. 22:32

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ómæómæ, hvað ég er sammála þér Nimbus! Ég vissi nebbilega ekki heldur að hún hefði verið til þessi blessun. Það eru svo ótrúlega margir til sem svo bara taka uppá því að gefa upp öndina áður en maður kynnist þeim. 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.2.2007 kl. 23:08

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það er nebbnilega það Nimbus þú missir af svo mörgu við það að glápa svona mikið á skýin.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2007 kl. 00:05

4 Smámynd: Björn Kr. Bragason

Ég vissi af tilvist þessarar konu bara fyrir það að hafa lent á einhverjum aumum slúðurþætti á Sirkus þegar ég var á stöðvaflakki í leti minni einhvern tímann í haust, og skrifaði meira að segja um það á bloggið hvað mér ofbauð meðferð slúðurfréttamannanna á henni.

Það er alltaf leiðinlegt þegar fólk yfirgefur heiminn svona langt um aldur fram, en hún fær þó vonandi frið fyrir gulu pressunni núna, eitthvað sem hún hefur ekki fengið leeeengi.

Björn Kr. Bragason, 10.2.2007 kl. 11:00

5 identicon

ha ha ha ha ha

FHolm (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband