Viðtalið við Bjargstúlkurnar haustið 1967

Hér á þessari bloggsíðu má nú lesa viðtalið sem birtist við stúlkurnar á Bjargi í vikuritinu Ostrunni 6. nóvember 1967. Ostran var ekkert æsiblað heldur rit ætlað ungu fólki og var ritstjórinn Ásgeir Ásgeirsson.

Ostran var í mjög stóru broti og einstaklega óhentugu til að ljósrita eða skanna eða birta á bloggsíðu. Hér er því gripið til þess ráðs að birta vitalið í nokkrum myndskjölum sem þurfti að sníða sérstaklega í mislanga dálka vegna hins  erfiða brots sem var á blaðinu. Myndum sem birtust með viðtalinu verður flestum að sleppa.    

Þegar ég skrifaði færsluna í gær um stúlknaheimilið á Bjargi vissi ég ekki að DV hefði gert málið að umtalsefni. Ég hvet alla til að kynna sér þá umfjöllun. Þar er m.a. talað við Gísla Gunnarsson sagnfræðing sem varð fyrst kunnur með þjóðinni einmitt vegna þessa máls.

Mér hefur mál þetta alltaf verið sérlega minnisstætt. Ég man vel þegar það kom upp. Síðar bjó móðir mín lengi í næsta húsi við Bjargið og ég hafði það því fyrir augunum svo að segja daglega og varð oft hugsað um það hvernig líf þessara stúlkna hefði nú orðið eftir vistina. Og alltaf geymdi ég þetta viðtal í Ostrunni. Löngu síðar frétti ég nokkuð um afdrf sumra stúlknanna eftir góðri heimild og veit að það er rétt sem Gísli Gunnarsson segir í DV að þær þurfi aðstoðar við.

Það var aldrei í hámæli -  en hér er rétt á það drepið í viðtalinu - að Bjarg hafði aðgang að einangurnarvistarklefa á Upptökuheimilinu í Kópavogi þar sem stúlkurnar voru látnar dúsa ef þær brutu alvarlega af sér. Þetta var ekkert á hjara veraldar eins og Breiðavík. Það var í Kópavogi.   

Viðtalið við stúlkurnar í Ostrunni má lesa í eftirfarandi myndskjölum. Það tekur smá tíma að fletta þeim öllum og menn verða að gæta þess að stækka letrið ef með þarf á tölvunni sinni. En lesturinn er nánast eins og verið sé að tala um Breiðuvík.       

Athugið!  Nú er líka hægt að sjá allt viðtalið í einu á pdf-skjali sem er fjórða efsts fylgiskjalið. Það tekur kannski smátíma að opnast.     


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

ÉG las þetta allt og það fór hrollur um mig!  Áðan var ég að tala við eldri konu sem ég þekki vestur á fjörðum  og talið barst að þessum málum sem eru að koma upp á yfirborðið núna.  Breiðavík, Byrgið, Bjarg... ( hefur fólk tekið eftir að nöfnin byrja öll á B - ekki að það skipti máli).  Hún sagði að hún hefði verið búin að heyra af Breiðavík fyrir mörgum árum síðan og það var  talað um það sem fangelsi fyrir börn.  

Hún sagði líka að þetta væru ekki einu staðirnar þar sem svona gengi á, sumt mun aldrei ná upp á yfirborðið. Því miður.   Og ég held að það sé hárrétt hjá henni. 

Ester Júlía, 12.2.2007 kl. 22:26

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Auður Eir! Úffff hvað ég væri til í að spyrja hana nokkura spurninga!

Heiða B. Heiðars, 13.2.2007 kl. 12:51

3 Smámynd: Kærleikur

Ég las svör Auðar í DV um helgina!!Við eigum víst bara að NJÓTA GÓÐA VEÐURSINS!!! Þvílík hræsni

Kærleikur, 13.2.2007 kl. 13:17

4 Smámynd: halkatla

það er ógeðslegt að lesa um svona sadista
sem fá að fara sínu fram endalaust

halkatla, 13.2.2007 kl. 17:13

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Því miður eru 'sumar' konur engu betri en 'sumir' menn hvað varðar misnotkun gagnvart þeim smælingjum sem þeim er trúað fyrir.
Og enn kemur það á óvart að það eru engu síður hinir sannkristnu  sem gerast sekir um slíkan níðingsskap en þeir sem telja sig allt að því trúlausa.
Hvernig geta þeir sem þykjast yfir aðra hafnir í Guðsótta sínum varið samvisku sína?

Svava frá Strandbergi , 14.2.2007 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband