Er Golfstraumurinn að leggjast frá ströndum Evrópu

Nú er þeim hlýindum er einkennt hafa þennan febrúarmánuð að ljúka. Meðalhitinn eftir gærdaginn er 3,7 stig yfir meðallagi í Reykjavík en 6,5 stig á Akureyri. Þar og á Egilsstöðum, að ekki sé talað um Hornafjörð þar sem meðalhitinn er um fimm stig, er meðalhitin hærri í beinum tölum en hér í lastabælinu Reykjavík. Hiti hefur einhvers staðar komist í tíu stig eða meira alla dagana nema fjóra og meðaltal hámarkshita á landinu er 11,5 glæsistig. 

Úrkoman er þegar komin yfir meðaltal alls mánaðarins í Reykjavík og á nokkrum öðrum stöðvum á suður og vesturlandi.  Í morgun var í höfuðborginni talin alhvít jörð í fyrsta sinn í mánuðinum en snjódýyptin var aðeins 1 cm. Bráðum fer sólin að skipta máli með að bræða svo lítinn snjó.   

Það er sem sagt að koma kuldakast. Og það má auðvitað spyrja hvort Golfstraumurinn sé virkilega að leggjast frá ströndum Evrópu! 

En mesta furða er nú hvað sú umræða er orðinn gömul og þreytt.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Greinin sem á er vísað er í Vísi 21. september 1920.

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.2.2012 kl. 14:25

2 Smámynd: Sævar Óli Helgason

Jaaa...

Miðað við ýmislegt sem ég hef lesið um að Labradorstraumurinn sé að veikjast... Hver veit...?

Sævar Óli Helgason, 16.2.2012 kl. 20:19

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Er ekki tilhneigingin sú að ef eitthvað breytist í veðrinu eða öðru þá finnst mörgum að sú breyting sé komin til að vera? Ef til dæmis kemur einn vorlegur dagur um hávetur þá finnst sumum vorið vera komið. Annars er fróðleg að sjá þessa gömlu frétt.

Emil Hannes Valgeirsson, 16.2.2012 kl. 20:45

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Loftslagsalarmistarnir vöruðu við því fyrir nokkrum árum að minna salt í sjónum sökum bráðins Grænlandsjökuls, myndi stöðva golfstrauminn og þar með yrðu fimbulkuldar í norðanverðri Evrópu. Þetta var síðar dregið að mestu til baka, því þetta var lítt rökstudd ágiskun.

En svo sá ég viðtal í sjónvarpinu um daginn við einhvern fræðinginn í A-Evrópu í tilefni kuldanna, þar sem hann vildi kenna "global warming" um ástandið og dró upp úr hatti sínum þennan hysteríukennda spádóm.

Þessi mýta virðist því ætla að lifa góðu lífi, enn um sinn a.m.k.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.2.2012 kl. 11:43

5 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Gunnar, þú getur greinilega ekki stjórnað uppnefningum þínum...jæja hvað um það. En til að svala "forvitni" þinni varðandi þessa fullyrðingu þína um Golfstrauminn, þá langar mig að benda á eftirfarandi myndband sem tekur skemmtilega á þessari mýtu þinni, Fregnir af yfirvofandi ísöld hraktar

Gunnar þér (eins og öðrum skoðanabræðrum þínum á Íslandi) hefur ekki fundist tilefni til að verja skoðanabræður þína og tengsl þeirra við Heartland Institute sem eru m.a. frægir fyrir að afneita vísindum varðandi tengsl tóbaks og krabbameins (vanir menn í  bransanum)... Reyndar er þögn "efasemdamanna" á Íslandi varðandi það mál fróðleg staðreynd... sjá Afneitunargeitin [Denial-gate]

Sveinn Atli Gunnarsson, 17.2.2012 kl. 14:30

6 identicon

. (IP-tala skráð) 18.2.2012 kl. 09:00

7 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

@Athugasemd, kl. 09:00:
Sniðugt að vísa í afneitunarsíðuna WUWT varðandi afneitun á hlýnun jarðar (sem meðal annars hafa þegið einhverja skiptimynt frá Heartland, sjá Afneitunargeitin [Denial-gate]...). Hvað kallar þú þig annars núna (gustur, bóndi, presturinn, the pope?) ég sé það ekki við athugasemdina einhverra hluta vegna..?

Sveinn Atli Gunnarsson, 19.2.2012 kl. 00:01

8 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Er nokkuð verið að krukka í hitatölum hér á Excelskjalinu eða var virkilega 9 stiga hiti í Reykjavík klukkan 3 í nótt?

Emil Hannes Valgeirsson, 26.2.2012 kl. 21:48

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ásláttarvilla, átti að vera 7 stig. En mánuðurinn er floginn langt inn á topp tíu listann í hlýindum og mun líklega halda því til loka. Meira um það á morgun.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2012 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband