27. mars 1948

Elsta hitamet að vetri sem enn stendur var sett 27. mars árið 1948 á Sandi í Aðaldal, 18,3 stig. Þetta er mesti hiti sem mælst hefur á landinu í mars. Það var mælt í gamaldags hitamælaskýli sem fest var á húsvegg.

Mörg hitamet sem komu þennan dag á landinu standa enn. Þar skal fyrst nefna metið í Reykjavík, 14,2 stig. Í Reykjavík var á þessum tíma komið sérstætt mælaskýli líkt og nú tíðkast og það stóð á flötinni fyrir sunnan Sjómannaskólann. Þennan dag, sem var laugardagurinn fyrir páska, var sléttur fjórtán stiga hiti kl. 14 að íslenskum miðtíma þegar veðurathugun var gerð, minna en hálfskýjað og áttin var austsuðaustan sex vindstig. Það hefur verið alveg svona þokkalegt skjól í görðum og mönnum hefur þótt þetta vera ótrúlega góður dagur.  

Á nokkrum veðurstöðvum sem lengi hafa athugað hefur síðan ekki komið eins hár hiti í mars: Stykkishólmi 15,5, Gjögri 13,4, Akureyri 16,0, Reykjahlíð við Mývatn 13,1, Grímsstöðum 14,1 og Hallormsstað 16,5 stig. Allt mælt þ. 27. Þann dag var hæð yfir NV-Evrópu en lægð suður af Grænlandi og landið laugað í hlýjum loftsstraumi eins og sést á korti hér að neðan. 

Næst mestu hitarnir í mars komu síðasta dag mánaðarins hafísaárið 1965. Það sérstaka var að hans gætti eingöngu á suður-og vesturlandi og mældist þá langmesti hiti sem mælst hefur á suðurlandsundirlendi í mars: Sámsstaðir, 17,9 (17,5 kl. 15), Hella 16,8, Akurhóll, 16,5, Hæll 13,5, Þingvelir 13,5. Einnig var  mjög hlýtt í Borgarfirði: 15,8 stig á Hvanneyri og  15,2 í Síðumúla. en í Reykjavík hélt metið frá 1948. Þennan dag var austan eða suðaustanstrekkingur við suðvesturströndina en annars staðar lyngt og víða léttskýjað. Kannski olli hafísinn því að hitinn fyrir norðan náði sér ekki á strik. Mistur var í lofti þennan dag. Það þótti vorlegt á þeim árum en mistrið var í rauninni efnamengun frá Bretlandseyjum. Í Reykjavík skein sól fram á hádegi en síðan byrgði mistrið hana en hitinn fór í 13 stig. 

Árið 1956 fór hitinn á Dalatanga upp í 17,4 stig þ. 27. Þá var veðri öðru vísi farið en í þeim hitabylgjum sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni, allhvöss sunnan og suðvestanátt með mestu hlýindunum á Austfjörðum.

Þann 28. mars árið 2000 kom álitleg hitabylgja. Þá mældist hitinn 16,6 stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði á kvikasilfursmæli en á sjálfvirku stöðinni á Eskifirði fór hitinn í 18,8 stig. Það er hæsta hitatala sem skráð er á íslenskri veðurstöð i mars en þar eð mælirinn var sjálfvirkur er rétt að taka þetta ekki sem allsherjarhitamet fyrir mars. Sandur heldur því enn metinu frá 1948.  

Hér fyrir neðan má sjá veðurkort frá hádegi frá nokkrum þeirra daga sem hér er frá sagt og auk þess kort sem sýna ástand mála í 850 og 500 hPa flötunum, í kringum 1400 og 5000 m hæð. Þar sést hitinn í þessum hæðum en einnig má átta sig á veðurkerfunum við jörð.
 
Fylgiskjalið fylgdist með því sem gerst hefur síðustu daga og mun fylgja framhaldinu fast eftir.

Rrea00119480328

Rrea00219480328

1965-03-31_12

  Rrea00119650331

Rrea00219650331

  






 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Trausti Jónsson

Þess má geta að hinn ágæta dag 27. mars 1948 fór hiti í 17,6 stig á Skriðulandi í Skagafirði í athugun kl. 15 (miðað við nútímamiðtíma). Enginn hámarksmælir var á staðnum.

Trausti Jónsson, 28.3.2012 kl. 15:43

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vá! Og það í 150 m hæð. Kannski að þarna hefði hámarksmælir krækt í metið. En hvað ætli Siglunes hafi þá sýnt þennan dag en þar var ekki heldur hámarksmælir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.3.2012 kl. 16:16

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Ekkert var mælt milli kl. 12 og 18 á Siglulesi og hæsti hiti sem þar var lesinn var 11,6 stig kl.18.

En núna í morgun fór hitinn í 18,0 stig á Teigarhorni.

Trausti Jónsson, 29.3.2012 kl. 10:02

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Mér sýnist Kvísker vera að slá marsmetið.

Kvísker Vegagerðarstöð: 19,4 °C

Kvísker: 18,6 °C

Emil Hannes Valgeirsson, 29.3.2012 kl. 16:43

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

.... og þá féll það, 18,6!

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.3.2012 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband