Sólarsnauðir maímánuðir

Gagnstætt mjög sólríkum maímánuðum, sem oftast eru kaldir og þurrir og því veðurfarslega óhagstæðir, eru sólarlitlir maímánuðir yfirleitt ekki taldir óhagstæðir. Minnsta sól í maí í Reykjavík, sem hefur lengsta mælingasögu á landinu á sólskini, 101 ár, var aðeins 102 klukkustundir árið 1951. Á landinu í  heild var mánuðurinn þó talinn hagstæður og lengst af voru stillur og hlýindi. Engar sólskinsmælingar voru þennan mánuð á Akureyri.

Maí 1991 var merkilegur mánuður. Hann var einstaklega hlýr fyrir norðan og vel sólríkur og hitinn komst í 25 stig á Egilsstöðum og hefur aðeins einu sinni mælst meiri hiti á landinu í maí og var það reyndar árið eftir. Hins vegar var óvenju úrkomusamt á landinu og einstaklega þungbúið á suðvesturlandi. Í Reykjavík er þetta næst sólarminnsti maí og sólin skein aðeins einn dag í meira en 10 stundir. Á Sámsstöðum í Fljótshlíð hefur ekki mælst minna sólskin í maí, 112 stundir (frá 1963). Á Reykjum, skammt frá Hveragerði, voru sólarstundirnar aðeins 97.

Árin 1919 og 1920 komu tveir afar sólarlitlir maímánuðir í röð á Reykjavíkursvæðinu en sólskinsmælingar voru á Vífilsstöðum fyrra árið. Það ár var fimmti sólarminnsti maí með 122 stundir. Þá var úrkomusamt syðra en hlýtt um land allt. Árið 1920 var þriðji sólarminnsti maí í höfuðborginni með 119 klukkustundir. Hann er  kaldasti maí sem hér er gerður að umtalsefni og var verulega kaldur og óhagstæður alls staðar. Gróður fór ekki að taka við sér í reykvískum görðum fyrr en í mánaðarlok.

Fjórði sólarminnsti maí var svo árið 1970 í Reykjavík með 119,3 stundir. Mjög úrkomusamt var á suður og vesturland en ekki kalt.

Tveir af allra hlýjustu maímánuðum á landinu komast á lista yfir tíu sólarminnstu maí í Reykjavík. Maí á undraárinu 1939 er sá sjötti  sólarminnsti, 122,4 klst, en hann er næst hlýjasti maí á landinu. Maí 1947 er hins vegar áttundi sólarminnsti maí í höfuðborginni með 125 sólskinsstundir en er sá ellefti hlýjasti á landinu. Þessi hlýi maí var svo sá fjórði sólarminnsti á Akureyri, 106 klst. Samanlagður sólskinstundafjöldi Akureyrar og Reykjavíkur hefur aldrei verið minni þau árin sem báðar stöðvarnar hafa mælt. Maí 1957 stal hins vegar þriðja sætinu í sólarleysi á Akureyri, 103 stundir.     

Hernámsmánuðurinn 1940 laumar sér í tíunda sæti sem sólarminnsti maí í Reykjavík með 131 sólarstund. Hann telst þó vera hlýr og fremur hagstæður á landinu og ekki fór hann nú víst framhjá neinum. Hertók alveg hugi manna! 

Síðasti maí áður en landið varð lýðveldi, 1944, hreppir svo sjöunda sætið yfir sólarminnstu maí í Reykjavík með 124 stundir. Hann var að veðri nokkuð blendinn en samt talinn alveg þokkalegur í heild.

Sá mánuður á botn tíu listanum í sólarleysi í Reykjavík sem næstur okkur er í tíma er 2001 en hann er í níunda sæti með 130,6 stundir.  

Á Akureyri þar sem sól hefur verið mæld í um 85 ár, er apríl 1983 sá sólarminnsti, aðeins 80 klukkustundir. Á Hallormsstað (1953-1989) og Melrakkasléttu (1958-1999) er þetta einnig sólarminnsti maí sem þar hefur mælst, 102 á fyrrnefnda staðnum en svo fáar sem 70 á þeim seinni. Það er minnsta sólskin sem mælt hefur verið á íslenskri veðurstöð í maí. Veðurguðirnir voru ekki í  neinu sólskinsskapi þetta ár því sumarið átti svo eftir að verða eitt það allra versta sunnanlands fyrir kulda og sólarleysi.

Næsta ár, 1984, mældist sólarminnsti maí á Hveravöllum (1966-2004) og Reykhólum (1958-1987) og í hönd fór annálað rigningarsumar sunnanlands, sem telja má síðasta raunverulega rigningarsumarið syðra, en það var nokkru hlýrra en sólarleysis og rigningarssumarið næsta á undan.

Á Akureyri er  maí 1966 næst sólarminnstur, 98 stundir, en þá var fremur kalt og úrkomusamt á landinu en þetta var snemma á hafísárunum. Aðeins þessir tveir maímánuðir hafa mælt minna en hundrað sólarstundir í höfuðstað norðurlands.  

Hólar í Hornafirði fara oft sínar eigin leiðir í sólskinsmálunum og þóknaðist að láta síðasta maí, 2011, verma sitt botnsæti með 117 klukkustundum.    

Eitt er svo víst. Sá maí sem nú er að líða kemst ekki inn á lista yfir sólarminnstu maímánuði í Reykjavík því hann hefur verið í miklu í sólskinsskapi. 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fróðleg samantekt. Takk fyrir. Einhver von á spá fyrir júní út frá þessu? Ég meina bara svona yfir höfuð og án nokkurra skuldbindinga? Þætti nefnilega mjög vænt um að Júní yrði svona barasta nokkuð ágætur.

(Afsakaðu stafsetninguna, en mér finnst að allir helstu, árlegu og reglubundnu viðburðir ársins, eins og til að mynda mánuðir, sem eru jú einungis tólf, ættu að vera skrifaðir með stórum stöfum.)

Halldór Egill Guðnason, 27.5.2012 kl. 03:21

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki get ég sagt fyrir um júní.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.5.2012 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband