Sólríkustu ágústmánuðir

Sólríkasti ágúst sem mælst hefur í Reykjavík var 1960 en þá voru sólskinsstundirnar 278 en meðaltalið  1961-1990 er  155 stundir. Dagana 3. til 23. skein sólin hvorki meira né minna en 16 daga meira heldur enn 10 stundir og hina fimm dagana á þessu þriggja vikna tímabili skein hún aldrei minna en sex stundir og allt upp í næstum því tíu. Mánuðurinn var einnig hlýr á suðurlandi. Var hann hluti af gæðasumrinu 1960 sunnanlands hvert ekki átti sinn líka fyrir sól og hita í nokkra áratugi þar á eftir. Júlí var t.d. sá fimmti sólríkasti í höfuðborginni. Á landinu var hitinn 0,4 stig yfir því meðallagi sem nú er miðað við, 1961-1990. Mánuðurinn var allra ágústmánaða þurrastur. Á Teigarhorni við Berufjörð var úrkoman aðeins 0,6 mm og hefur aldrei mælst minni úrkoma í ágúst þar alveg frá því mælingar hófust 1873. Úrkomudagar voru þrír. Ekki hefur heldur mælst minni úrkoma í Vestmannaeyjum frá 1881, 4,1 mm, sem féll á tveimur dögum, og Eyrarbakka, 2,7 mm (1880-1910, frá 1926) en þar voru 6 úrkomudagar. Á Akureyri var ekki sérlega mikið sólskin en þar er þetta líka þurrasti ágúst sem mælst hefur, 4,7 mm og úrkomudagarnir voru 5. Einnig mældist minni úrkoma en í nokkrum öðrum ágúst á suðausturlandi, í Vík í Mýrdal  og á Hæli í Hreppum og reyndar líka í Hrútafirði. Þetta má kannski kallast þurrasti ágúst sem mælst hefur á landinu.  

Þetta var sem sagt enginn venjulegur ágústmánuður. Og þá var sólríkasti ágúst á Akureyri, 2004, ekki síður óvenjulegur með sinni glæsilegustu hitabylgju í nokkrum mánuði síðustu áratugi. Mældist þá mesti hiti á landinu í ágúst, 29,2 stig þ. 11. á Egilsstöðum. Sólin skein á Akureyri í 209 stundir en meðaltalið 1961-1990 er 135,7 stundir. Á Hólum í Hornafirði er þetta einnig sólríkasti ágúst, 213,5 klst, frá 1958, svo  á Sámsstöðum í Fljótshlíð, 229 klst frá 1962. Þá er þetta sólríkasti ágúst sem mælst hefur við Mývatn í stuttri mælingasögu. Loks er þetta fjórði sólríkasti ágúst í höfuðstaðnum með 248 sólarstundir. Og eigum við metafíklarnir þá ekki að slá því föstu að þetta sé sólríkasti ágúst á landinu sem við höfum gögn um!  Samkvæmt mínu tali er þetta svo næst hlýjasti ágúst sem komið hefur síðan nútímamælingar hófust og langhlýjasti ágúst sem hér verður fjallað um. 

Ágúst 1929 er sá næst sólríkasti í Reykjavík með 273 stundir og 16 daga með tíu stunda sól eða meira, líkt og 1960. Þetta sumar í heild, júní til september, er reyndar það sólríkasta sem mælst hefur í höfuðborginni. Fyrir norðan voru þokur og rigningar og mánuðurinn var þar ansi svalur og alls staðar í kaldara lagi, 0,4 stig undir núverandi meðallagi þeirra stöðva sem lengst hafa athugað. Það var þó ekki mikið í samanburði við þriðja sólríkasta ágúst í Reykjavík sem var árið 1943 og sólskinsstundirnar voru þá 251 en hann er áttundi kaldasti ágúst á landinu í heild frá 1866, 1,7 stig undir meðallaginu. Hann var einnig afskaplega þurr og er líklega einn af fimm þurrustu ágústmánuðum á landinu síðustu 140 ár miðað við þær fáu stöðvar sem lengst hafa athugað og sá næst þurrasti eftir stofnun Veðurstofunnar. Í Stykkishólmi hefur ekki mælst minni ágústúrkoma, 0,8 mm, allar götur frá upphafi mælinga þar, 1857, en úrkomudagarnir voru tveir. Á Lambavatni, Kvígndisdal við Patreksfjörð og á Blönduósi mældist heldur aldrei  minni úrkoma í ágúst. Á landinu var úrkoman rétt aðeins undir rmeðallagi.   

Ágúst 1956 er fimmti sólríkasti í Reykjavík með 243,5 stundir. Þetta var líka kaldur norðanáttamánuður eins og 1943, en þó 0,8 stigum hlýrri, en hefur það sér til þess vafasama heiðurs að vera eini ágúst sem frost hefur verið mælt í Reykjavík í einhverju mesta kuldakasti sem komið hefur í ágúst seinni áratugi, -0,4  þann 27. Og sama dag mældist mesta frost sem mælst hefur í byggð á landinu í ágúst, -6,1 stig á Barkarstöðum í Miðfirði. Úrkoman var aðeins  um 30 % af meðallaginu 1931-2000 sem við  miðum hér við í úrkomumálunum og líklega er þetta einn af tíu þurrustu ágústmánuðum á landinu.    

Næstur að sólríki í Reykjavík er ágúst 1927 með 241 sólskinsstund. Fyrir norðan voru óþurrkar. Hitinn á landinu var rétt aðeins yfir meðallaginu en úrkoman þrír fjórðu af því. Lægsta loftvægi á landinu í ágúst, 960,9 hPa mældist þann 27. á Hólum í Hornafirði. Fylgdi þessu norðanhvassviðri og stórflóð af sjávargangi á Siglufirði.   

Sjöundi sólríkasti er ágúst 1964 en þá skein sól í 237 stundir. Mánuðurinn var sæmilegur framan af á landinu en í seinni hluti hans var einhver sá svalasti fyrir þann hluta, en allur mánuðurinn var 0,8 stig undir meðallaginu að hita. Á Grímsstöðum á Fjöllum voru fimm alhvítir dagar. Mjög úrkomusamt var fyrir norðan en að sama skapi þurrviðri sunnanlands. Á Kvískerjum hefur ekki  mælst minni ágústúrkoma frá því mælingar þar hófust, 49 mm. Úrkoman var ananrs svipuð á landinu og 1956. Mesta loftvægi í ágúst á landinu mældist þann 12. í Grímsey 1034,8 hPa kl. 24. Næsti ágúst, 1965, er sá níundi sólarmesti í Reykjavík með 220 stundir. Í síðustu vikunni kom eitthvert mesta kuldakast eftir árstíma og á Grímsstöðum voru fjórir dagar alhvítir. Næturfrost komu víða um land. Í heild var mánuðurinn þó 0,6 stigum mildari en árið áður. Landsúrkoman stóð í réttu meðallagi.

Áttundi sólarmesti ágúst í höfuðstaðnum er svo 1917. Þá voru sólskinsmælingarnar reyndar á Vífilsstöðum og mældust 230. Hitinn var rétt aðeins yfir meðallagi á landnu og úrkoman var aðeins undir því.  

Loks er svo tíundi sólríkasti ágúst árið 1987 en þá voru sólskinsstundirnar 219. Enn sólríkara var þó á Reykhólum 241 stund. Þetta var síðasti ágúst sem þar var mælt sólskin, frá 1957, og mældist það aldrei meira. Á Hveravöllum mældist heldur aldrei meiri ágústsól (1965-2003), 235,4 stundir. Á Sámsstöðum í Fljótshlíð hefur aðeins mælst meiri sól í ágúst 2004. Hitinn á landinu var 0,5 stig yfir meðallaginu 1961-1990 en úrkoman náði ekki helmingi af meðallaginu.     

Fimm júlímánuður eru sameiginlegir fyrir Reykjavik og Akureyri á topp tíu sólarlistanum en aðeins einn ágústmánuður, 2004, sem var sá sólríkasti á Akureyri en fjórði í Reykajvík og hefur verið fjallað um hann hér að framan.

Næst sólarmesti ágúst í höfuðstað norðurlands er hins vegar 1975 en þá skein þar sólin í 193 stundir. Æði var þá sólinni misskipt því þetta er tíundi sólarminnsti ágúst í Reykjavík. Fyrir norðan var hlýtt en svalt syðra. Úrkomusamt var sunnanlands og vestan og á  landinu tel ég þetta vera fimmta úrkomusamasta ágúst. Ekki gildir það samt um norðaustanvert landið því ekki hefur mælst þurrari ágúst á Raufarhöfn, 5,6 mm (1934-2008) og í Vopnafirði.       

Árið 1994 er ágúst í þriðja sæti á Akureyri með 187 sólskinsstundir. Alls staðar var sól í meðallagi eða nærri því eða meiri og þurrvirðasamt var og vel hlýtt var á landinu, 0,8 stig yfir meðallagi. Úrkoman var aðeins um helmingur af meðallaginu.  

Ágúst 1977 var líka mánuður þar sem sólin lék nokkuð glatt við alla landsmenn. Á Akureyri er þetta fjórði sólríkasti ágúst með 178 sólarstundir og 11 dagar voru með tíu klukkustunda sólskin eða meira sem þar er ágústmet. Um miðjan mánuð kom væn hitabylgja en óþyrmilegt kuldakast í mánaðarlok með hvassviðri og flóðum. Næsti ágúst, 1978, sem er sá áttundi sólríkasti á Akureyri, 163,9 stundir, var alls staðar hlýr, um 1,2 stig fyrir meðallaginu 1961-1990 og er þetta níundi hlýjasti ágúst á landinu en úrkoman var lítið eitt yfir sínu meðallagi. Veður voru stillt en nokkuð úrkomusamt á suður og vesturlandi og sólarlítið og í Reykjavík er þetta sjöundi sólarminnsti ágúst.

Sólskinssumarið 1971 krækti í fimmta sólríkasta ágúst á Akureyri og 174 stunda sólskin. Alls staðar lék reyndar sólin við landsmenn. Hitinn var lítið eitt undir  meðallagi og einnig úrkoman. Mikið hret gerði seint í mánuðinum og mesta snjódýpt á veðurstöð í byggð mældist þann 27. og 28. á Grímsstöðum á Fjöllum 10 cm. Miklir skaðar urðu á norðausturlandi í þessu veðri.

Ágúst 1931 er eini ágústmánuðurinn á Akureyri fyrir 1971 sem kemst inn á topp tíu listann fyrir sólargæði og er það óneitanlega nokkuð einkennilegt. Undarlega lítið sólskin mældist reyndar á Akureyri á fjórða og fimmta áratugnum þegar hlýindi voru í algleymingi. En ágúst 1931 var mikill og stilltur góðviðrismánuður með ágætri hitabylgju dagana 12.-14. þegar meiri hiti mældist á suðurlandi í ágúst fyrir utan árið 2004 og er þetta sjöundi hlýjasti ágúst á landinu en sólin á Akureyri mældist 174 stundir en 207 í Reykjavík. Úrkoman var aðeins um 32% af meðallaginu 1931-2000 sem gerir mánuðinn nálægt því að ná inn á topp tíu listann fyrir þurrk. Stórrigningar gengu hins vegar á suðurlandi lengi fram eftir ágúst 1984 og þá mældist þann 10. mesta sólarhringsúrrkoma í Reykjavík í ágúst, 42,4 mm. Svalt var syðra og sólarlítið en mjög hlýtt nyðra og sólin á Akureyri skein í 172 stundir. Sólskinsmet fyrir mánuðinn komu á Hallormsstað (1953-1989), 229 klst og á Melrakkasléttu  (1957-1999), 212 klst. Úrkoman var vel yfir meðallagi og hitinn um hálft stig yfir því. Hlýtt sem sagt og votvirðasamt.  

Sólargæðunum var einnig æði misskipt í ágúst 1995 sem var um 0,8 stig yfir meðallagi að hita á landinu. Hann er sá níundi sólríkasti á Akureyri, 163,8 stundir, en  fjórði sólarminnsti í höfuðstaðnum. Á Akureyri var  meðalhitinn yfir 12 stigum eins og 1984 og 1978 en aðeins 10,5 í Reykjavík. Úrkoman á landinu var um 20 % yfir meðallaginu.  

Loks er ágúst 2008. Hann náði tíunda sæti á  Akureyri með 163 sólarstundir. Úrkoman á landinu var í tæpu meðallagi en hitinn var um það bil 1,2 stig yfir því sem gerir mánuðinn tíunda hlýjasta ágúst á landinu frá 1866.      


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband