Vonandi þáttaskil í framkomu verktaka við íbúa

Fyrir skemmstu vakti athygli að íbúar á Hampiðjureitnum svokallaða stöðvuðu vinnu við höggbor sem gengið hafði vikum saman frá morgni til kvölds án hvíldar alla daga nema sunnudaga. Hátt upp i þúsund manns hafa líkað fréttina á mbl.is.  

Vonandi markar sá atburður tímamót í því hvað verktakar geta gengið langt og óheftir með að gera fólki ólíft í húsum sínum þegar framkvæmdir standa yfir og veki yfirvöld til vitundar um annars konar hlið á málunum en einungis verktakana en hingað til hafa yfirvöld verið sinnulaus um það sem að íbúunum snýr. Þegar svo einn verktaki lýkur sér af tekur annar við. Höfðatúnsreiturinn er svo nærri Hampiðjusvæðinu að framkvæmdir þar munu einnig valda óþægindum fyrir sömu íbúa og stöðvuðu höggborinn. En auðvitað þó enn þá meiri fyrir þá íbúa sem eru aðeins í fárra metra fjarlægð frá reitnum.

Eftir þessari frétt á eftir að byggja þarna á Höftatúnsreitnum fjögur stórhýsi. Eitthvað mun þá ganga á. Jafnvel árum saman.

Það gekk mikið á þegar þær byggingar voru reistar sem þegar eru á svæðinu. Þá kvörtuðu íbúar í Túnunum sárlega. En forsvarsmenn Eyktar, sem sáu um framkvæmdirnar, svöruðu á þann hátt að íbúarnir tóku það sem ögrun. Um þetta var fjallað í fjölmiðlum á sínum tíma.

Frá þessum reit hefur árum saman verið mikið ónæði með hléum. Jafnvel þegar ekki var verið að byggja voru þar vinnutæki mánuðum saman frá morgni til kvöld með þessu eilífa hátíðnipípi sem smýgur inn um allt og trufluðu jafnvel gesti sem komu í heimsókn til íbúanna stutta stund, hvað þá íbúana sjálfa sem dvelja á heimlum sínum flestum stundum. 

Ekki hefur forstjóri Eyktar, Pétur Guðmundsson, sýnt íbúunum sem búa í fáeinna metra fjarlægð frá framkvæmdunum þá lágmarksvirðingu að kynna þeim nýju framkvæmdirnar á nokkurn hátt eða því sem þeir geta átt von á eða hve lengi það muni standa yfir.

Hins vegar kom fulltrúi undirverktaka Eyktar, sem sjá eiga um sprengingar, í hús að leita leyfis til að setja þar upp jarðskjálftamæla.

Takið eftir ósvífninni.

Ekki er íbúum gerð minnsta grein fyrir því hvað sé á á seyði eða við hverju þeir mega búast en sjálfsagt þykir að þeir greiði götu verktakanna sem munu að öllum líkindum gera líf þeirra óbærilegt í húsum sínum næstu mánuði eða jafnvel ár.

Hverju geta íbúarnir átt von á þegar skjálfarnir byrja? Að allt fari af stað, myndir detti af veggjum og hlutir úr hillum. Skemmdir á munum? Slysahætta?

Að verktakar hafi ekki rænu á að kynna þetta að neinu leyti fyrir íbúunum í næsta nágrenni er hreint út sagt ekki bara tillitslaust heldur einnig ábyrgðarlaust fram út öllu hófi.

Við skulum samt vona að framtak íbúana við Hampiðjureitinn marki einhver þáttaskil um framkomu verktaka við íbúa og ekki sé gengið yfir öll velsæmismörk.

Íbúar við Höfðatúnsreitinn munu vonandi heldur ekki  láta bjóða sér að fram af þeim verði gengið. 

 


mbl.is Byggja stærsta hótel landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Vinur minn býr þarna á Laugaveginum við Hampiðjureitinn. Hann er krabbameinssjúklingur og hefur verið í afar erfiðum meðferðum undanfarið Hann getur ekki búið þarna lengur með góðu móti vegna hávaðans frá höggbornum.

Ég var í heimsókn hjá honum um daginn og hávaðinn var alveg fáránlegur og útilokað að hafa glugga opinnn ef mælt mál átti að heyrast. Hann hefur þurft að gista hjá ættingjum vegan hávaðans undanfarna mánuði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.7.2013 kl. 10:57

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hávaði og þrýstingur frá svona er ekki neinn venjulegur hávaði og nær yfir mikið svæði. það liggur svo í augum uppi hann mun t.d. hitta fyrir mjög veikt fólk sem getur ekki þolað slíkt. En hvorki verktakar né skipuagsyfirvöld eða önnur yfirvöld taka það með í reikningin, t.d. með því að útvega viðkomandi verustað. Það er  bara djöflast án þess að líta til hægri eða vinstri.

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.7.2013 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband