Áfram með hitametin börnin góð!

Jæja! Þessi dagur var enn stórbrotnari í hitametunum en í gær.

Í fyrsta lagi mældist mesti hiti sem nokkru sinni hefur mælst á mannnaðri veðurstöð á Íslandi í apríl. Það var 21,9 stig á Staðarhóli, hvar annars staðar, en þar hafði áður mælst hæst 19,3 þ. 19. árið 2003. Gamla íslandsmetið var 21,2 stig sem mældist á Sauðanesi 18. apríl 2003.

Í öðru lagi mældist mesti hiti sem mælst hefur á sjálfvirki veðurstöð í apríl, 23,0 stig í Ásbyrgi. Gamla metið var 21,4 á Hallormsstað 19. apríl 2003.

Það gekk sem sé eftir það sem ég heimtaði í færslu minni í gær: enn flottari hitamet en þá mældust.

Af öðrum spektakúlar metum má telja (gömlu metin innan sviga) 21,5 stig á Akureyri en þar eru til mælingar frá 1882 (19,8 þ. 22. 1976), 19,2 í Ásgarði  (15,5, þ. 19.  2005), 19,6 á Bergsstöðum (15,9 þ.18. 2003), 17,2 á Hólum í Dýrafirði (15,9 þ. 19. 2005), 16,0 í Æðey (15,0 í gær), 14,5 á Lambavatni ((13,6 í gær), 18,7 á Grímsstöðum (18,4, þ. 18. 2003) en þar ná mælingar til 1907. Auk þess mældust 20,7 á Torfum í Eyjafirði þar sem mælt hefur verið aðeins í kringum tíu ár. Í Stykkishólmi komst hitinn í 16,2 stig og hefur því náð 16 stigum tvo daga í röð sem er auðvitað algjört einsdæmi í arpíl.

Þetta er glæsilegur árangur! Hvað nýju metin eru mikið hærri víða en þau gömlu er eftirtektarvert og minnir þessi hitabylgja í offorsi sínu eftir árstíma nokkuð á ágústbylgjuna miklu sem kom árið 2004. Guð gefi að við fáum aðra slíka núna í júlí!  

Á ýmsum sjálfvirkum stöðvum varð æði heitt þó ekki sé hægt að tala um met vegna skamms athugartíma: 22,2 á Möðruvöllum í Hörgárdal, 21,7 á Végeirsstöðum í Fnjóskadal, 21,0 á Torfum, 20,9 á Húsavík (metið á mannaðri stöð þar 1924-1995 var aðeins 17,7), 20,3 á Brúsastöðum og 19,8  á Þeistareykjum. Svo skulum við vona að á morgun falli öll þessi met og líka metin frá í gær. En það er nú bara von.

Og það er blessuð blíðan! Og allir eru glaðir og sáttir!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, loksins er allt þetta strit farið að bera ávöxt, frábært!  Skemmtilegt blogg hjá þér.  Hafðu það gott

Ásgeir (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 02:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband