Fylgiskjalið hættir

Í nokkur ár hefur þessi bloggsíða birt daglegt fylgiskjal um ýmsa veðurþætti fyrir Reykjavik, Akureyri og allt landið. Skjalið hefur alltaf verið virkt, jafnvel þá daga  sem engar nýjar bloggfærslur hafa komið.

Þetta hefur verið talsverð fyrirhöfn.

Nú þegar mæliháttum fyrir hita i Reykjavík hefur verið breytt er fyrirhöfnin enn meiri og svo þvælin að engu tali tekur.

Ég nenni þá ekki að standa í þessu lengur frá og með nýjársdegi.

Hins vegar mun ég kannski enn um sinn ef tækifæri gefst blogga um veðurfarslegt efni eða eitthvað sem kemur upp í daglegu veðri.

Þetta fylgkiskjal var auðvitað einkaframtak og enginn hefur verið að biðja mig um það!

Eigi að síður  kann ég Veðurstofunni litlar þakkir fyrir að vera staðráðin í  að stórskaða  veðurmælingar í landinu. Og það án þess að láta svo lítið að nefna það einu orði við almenning.

Það er hreint út sagt hrokafull stofnanahegðun og ósamrýmanleg nútímaháttum um upplýsingar til almennings.

Þeir sem fylgdust með fylgiskjalinu voru mjög stöðugur hópur og ég þakka þeim fyrir áhugann. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þetta fylgiskjal hefur verið kærkomið framtak hjá þér og auðvitað meira en hægt er að ætlast til af áhugamönnum út í bæ, ekki síst nú þegar aðgangur upplýsinga er að takmarkast. Maður er eiginlega orðinn vanur því að geta séð hvernig meðalhitinn þróast eftir því sem á mánuðinn líður en maður gæti þó kannski prófað að finna út úr því sjálfur.

Þú þekki það kannski en Veðurstofan er með ágætis daglegt yfirlit hvers mánaðar eitthvað aftur í tímann (og verður vonandi áfram), nema að það uppfærist bara í lok hvers mánaðar: 

http://www.vedur.is/vedur/vedurfar/daglegt/reykjavik/

Emil Hannes Valgeirsson, 15.1.2016 kl. 13:27

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þetta Emil Hannes.

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.1.2016 kl. 14:30

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta daglega yfirlit Veðurstofunar fyrir fjórar veðurstöðvar er með talsvert öðru sniði en fylgiskjalið sem náði yfir allt landið með suma veðurþætti og var líka með metaskrá fyrir hvern dag langt aftur í tímann.Þá skrá væri kannski ráð að birta bara eina og sér. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.1.2016 kl. 14:41

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Sigurður. Takk fyrir að nenna að fræða okkur sem ekki þekkjum það sem þú þekkir betur en flestir.

Það er eitt af mörgu sem ég skil ekki, og það er hvernig veðurspá á Íslandi hrakaði eftir að "fullkomna" Danmarks-orkufreka nýja veðurspátæknin kom til Íslands á síðasta ári?

Ég er að reyna að skilja það, að miklu nákvæmari, orkufrekari og nákvæmari spátækni frá Danmarks-kongens-ríkinu, skili miklu ónákvæmari og ótraustari veðurspá á Íslandi?

Eða heyrði ég það ekki rétt á síðasta ári, að nú væri komin miklu nákvæmari og Íslands-orkufrekari tölvutæknispá til Íslands, alla leið frá kongens Köben?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.1.2016 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband