Ciccolini er þá ekki dauður!

Það kom við hjartað í mér þegar ég las á blogginu hans Egils Helgasonar að hann hefði heyrt Aldo Ciccolini halda píanótónleika í Þessalóníku. Og hann lék auðvitað eins og meistari.

Það var einmitt Aldo þessi Ciccolini sem lék á fyrstu grammófónplötunni sem ég eignaðist. Það var sumarið 1962 þegar ekki var einu sinni búið að leggja drög að flestum bloggurum sem nú gera sig breiða á blogginu. Aðalverkið á plötunni, sem enn  er í nothæfu standi, var hvorki meira né minna en píanókonsert nr. 1 eftir Tsjækovksí, þessi frægi frægi, en aukalag var Mefistóvalsinn eftir Liszt en Ciccolini er einmitt mikill Liszspesjalisti. Og leikurinn er frábær, silfurtær og glitrandi.

Ciccolini2Ég hélt hins vegar að  Ciccolini væri löngu dauður og grafinn og varð steinissa á því að hann væri enn að spila og það fyrir Egil Helgason! Og mér fannst ég allt í einu eiga heilmikið sameiginlegt með Agli og upplifði sterkt samhengið í mannlífinu, samanber "samhengið í íslenskum bókmenntum", sem sennilega hefur þó loksins rofnað í seinni tíð - en hverjum er svo sem ekki sama. Ég er  sjálfur að fara til Grikklands eftir nokkra daga og finnst ég því alveg ekstra spesjal deila margnþrugnum örlögunum með honum Agli Helgasyni.

Einu sinni ræddi hann við mig um veðrið í sjónvarpsþætti og öðru sinni í útvarpsþætti. Þá var hann lítið þekktur. En nú er hann orðinn mikið þekktur.

Enda vill hann ekkert við mig tala lengur!    

Ég hlakka annars afskaplega mikið til að yfirgefa þetta volaða land og fara til Krítar. Þar hitti ég manneskju sem mælir allt upp í mér, meira að segja svo hrúleiðinlegar veðurpælingar að jafnvel stærstu og ógurlegustu skessur verða öldungis að steini.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Farðu að heimsækja Gunna Skarp, ég gaf honum öll sönglög Schuberts í sextugsafmælisgjöf. Hvennær verðurur sextugur Siggi minn, er það ekki í október eins og ég?

Guðmundur Ólafsson (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 03:20

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef á tilfinningunni að ég verði ekki sextugur! En ég á víst afmæli daginn á eftir þér.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.6.2007 kl. 13:41

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

En af hverju varstu búinn að drepa og jarða þennan Ciccolini? Hvað lá þér svona á? Viltu vera svo vænn að drepa mig hvorki né jarða á meðan ég er enn á lífi?

Þér er alveg óhætt að skrifa eitthvað um veðrið. Svo svakalega mikið í þær færslur lagt að maður verður að dáðst af þeim... bara ekki hægt að lesa þær fyrir leiðindum

Heiða B. Heiðars, 20.6.2007 kl. 16:49

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég drap Ciccolini í aldursbrenglunarskynjun æskunnar. Þegar ég var 15 ára fannst mér hann vera hundgamall kall og gerði svo ósálfrátt ráð fyrir því að hann hlyti að vera dauður. Nú sé ég við eftirgrannslan að hann var ekki nema 37 ára gamall þegar mér fannst hann vera alveg hundgamall. Þvílík náð að mér sé svo óhætt að blogga um veðrið! Nú er ég einmitt að undirbúa megafærslu. "Daglegt veður á Íslandi síðustu tíu þúsund ár"!!

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.6.2007 kl. 19:00

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hahaha ... veistu hvað ég las? "Dapurlegt veður á Íslandi síðustu tíu þúsund ár" hehehe

gerður rósa gunnarsdóttir, 20.6.2007 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband