Fjölskyldur

Fjölskyldur eru andstyggilegar. Hvergi í lífinu er kúgunin meiri. Hvergi er skilningurinn þrengri. Hvergi er nærgætnin minni. Hvergi er samkenndin snauðari. Hvergi er höfnunin miskunnarlausari. Hvergi er hatrið heitara. Hvergi er ofbeldið hrottalegra.

Hvergi eru börnin varnarlausari. 

Já, fjölskyldur eru sannkallaðir ormagarðar. Börn tala ekki við foreldra árum og áratugum saman. Systkini hatast út af lífinu. 

Þetta vita allir og þekkja um það ótal dæmi. En aldrei er á það minnst opinberlega. Þar er alltaf dregin upp sú mynd af fjölskyldum að í þeim ríki ást og eindrægni. 

Og sí og æ er verið að tala um eitthvað sem kallað er fjölskyldugildi. 

Ef einhver getur gert mér ljósa grein fyrir því hvaða gildi það eiginlega eru þá má hann alveg gefa sig fram.

     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Að gera skyldu sína, fjöldans vegna - hljómar einkennilega...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 29.8.2007 kl. 20:22

2 identicon

Fjölskyldugildin = Samstaða gegnum skyldleika, bræðralag ..  

Fjölskylda = Margir skyldir. Samskipti oft flókin. Annars ákaflega undarleg færsla, einhver örvænting í henni. ,,Fjölskyldur eru andstyggilegar" hljómar soldið eins og ,,lífið er erfitt". Lífið bara er. Fjölskyldur eru. Góðar eða vondar er svo eftir atvikum eins og ríkisstjórnir eða samviska manna. Stundum er það alveg satt, að ,,hvergi er ofbeldið hrottalegra .. hvergi eru börnin varnarlausari". - Og hvergi hægt að viðhalda ofbeldinu eða fela það en einmitt innan veggja fjölskyldunnar. En það er samt ekki reglan. Frekar undantekning. Því ef svo væri, væru vandamál samfélagsins mun meiri og heilbrigt fólk væri undantekning. Öll geðsjúkrahús væru yfirfull og áfengis- og eiturlyfjafíkn væri tífalt algengari. Þeir eru nefnilega fáir sem sleppa heilir eftir ofbeldi innan húsveggja heimilisins; það fylgir þeim eins og draugur sem dúkkar upp aftur og aftur. Nema .. hann sé kveðinn niður. Og það er hægt.

Ekki gleyma að það er ýmislegt jákvætt: Má tala um hluti núna sem aldrei mátti áður. Skilnaðir eru líka algengir og þeir bjarga mörgu barninu. Leikskólar og barnaskólar eru líka meiri vörn og aðhald fyrir börn en áður var.

Hc (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 23:06

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Engin örvænting. Bara smá mótvægi við hefðbundna familíulofsöngnum. Annars er þetta góð og skynsamleg athugasemd  hjá þér Hc. Kannski einmitt það sem ég var að fiska eftir.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.8.2007 kl. 00:04

4 Smámynd: Halla Rut

Sorglega mikið til í þessu hjá þér. 

Halla Rut , 30.8.2007 kl. 00:18

5 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Þörf hugvekja. Ég þekki mörg dæmi um þessa ormagarða sem fjölskyldurnar geta verið. Þau eru fleiri en margir halda. Manneskjan er hvergi berskjaldaðri en í fjölskyldunni, innan um þá sem ættu að reynast honum best.

Þeim var ég verst er ég unni mest.

Fjölskyldur geta líka verið skjól og hlíf, gróðurreitir ástar og umhyggju og boðið meðlimum sínum skilyrði til að vaxa og dafna. Haft trú á sínu fólki - og veitir ekki af í þjóðfélagi þar sem manni sýnist stundum að markvisst sé unnið að því að brjóta fólk niður.

Er með bók á borðinu hjá mér sem fjallar um einelti á heimilum. Þarf endilega að fara að byrja á henni og skal blogga eitthvað um hana þegar ég get.

Svavar Alfreð Jónsson, 30.8.2007 kl. 08:53

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

ÞAð var sagt fyrir Vestan, að þú getir valið þér vini en EKKI ættmenni.

Það er verkurinn.

Bjarni Kjartansson, 30.8.2007 kl. 10:13

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Raddir skynseminnar, ein af annarri, hafa tekið yfir á þessari athugasemdasíðu!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.8.2007 kl. 10:40

8 identicon

Þarna er ég sammála,í minni fjölskyldu komst upp að mamma á 3 börn með öðrum manni en pabba.Þettahefur verið töff,en í mínum huga þá er ofsalega erfitt að meðtaka það að eiga svona móður.Hvað þá að minnast þess hvernig pabba leið þegar h ann komst að þessu,orðin gamall maður og farinn að heilsu,og ég sá hann aldrei brosa eftir að þessi ósköp dundu yfir.

adda (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 15:37

9 identicon

Fyrsta málsgreinin minnir mig á fullyrðingar eins og "Karlmenn nauðga", "karlmenn berja konurnar sínar" o.s.frv. Hvort tveggja er rétt en betra væri að bæta við fyrir framan "alltof margir".  Hið sama á við málsgreinina þína, Sigurður, því alltof margar fjölskyldur búa við hatur, miskunnarleysi og jafnvel ofbeldi. Þar sem nándin er, þar er gróðrarstía leiðindanna einnig mest, á vinnustöðum, í skólum og í fjölskyldum. Í fjölskyldum njóta drullusokkarnir sín þó yfirleitt best - í skjóli einangrunarinnar.

Magnús (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 16:21

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Svei mér, ef bloggið mitt er bara ekki að verða fjölskylduvænt! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.8.2007 kl. 18:38

11 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ætli sé ekki best að segja sem minnst núna ;)

gerður rósa gunnarsdóttir, 30.8.2007 kl. 22:20

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég tek undir með Gerði, best að halda kjafti.

Svava frá Strandbergi , 30.8.2007 kl. 22:30

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Loksins þorir einhver að nefna þetta með hvað fjölskyldur geta verið andstyggilegar! Þetta mærðarvæl um samheldni og ást á sjaldnast við. Heyr, heyr! Flott færsla.

Guðríður Haraldsdóttir, 31.8.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband