Ferðalag um Schubertsslóðir

Síðdegis á þriðjudaginn held ég ásamt fimm öðrum áleiðis til Vínbarborgar. Við erum allir miklir aðdáendur tónskáldsins Franz Schuberts sem hér á Íslandi er þekktastur fyrir að hafa samið lagið sem sungið er við textann: "Mikið lifandis skelfingar ósköp er gaman að vera svolítið hífaður". Flestir þekkja líka Ave Maríu eftir hann og jafnvel líka Silunginn og Álfakónginn.

dumont_16Schubert var borinn og barnfæddur í Vín og bjó þara alla sína skömmu ævi. Við ætlum að skoða sögustaði sem tengjast honum í borginni, húsið þar sem hann fæddist og aðra bústaði hans, húsið þar sem hann dó, skólann þar sem stundaði nám í, byggingar þar sem tónverk hans voru flutt, hús þar sem vinir hans bjuggu og krár og kaffihús sem vitað er að hann stundaði. Auðvitað eru sum þessara húsa horfin en staðirnir þar sem þau stóðu eru enn á sínum stað. Það er ég sem hef skipulagt ferðina í höfuðdráttum en ég hef aflað mér nákvæmrar upplýsinga um hvar þessara staða er nú að leita eftir núverandi gatnakerfi. Fyrir ofan sést húsið Þar sem Schubert samdi Álfakónginn og það stendur enn. 

zelezSchubert gerði ekki víðreist um sína daga.En tvö sumur var hann tónlistarkennari hjá greifafjölskyldu sem bjó í Zeléz og var þá í Ungverjalandi en heitir nú Zeliozovice og er í Slóvakíu og er myndin af greidahöllinni. Þangað höldum við einnig og förum sem næst þá leið sem Schubert fór og lá í gegnum Búdapest. Sagt er, og að líkindum er eitthvað hæft í því, að Schubert hafi orðið ástganginn af  Karolínu, annari greifadótturinni sem hann kenndi á staðnum. Á leiðinni til baka förum við m.a. gegnum Pressburg sem áður var en heitir nú Bratisvlava en þar dó Karolína. Hún átti mörg nótnahandrit Schuberts.

Næst síðasta árið sem Schubert lifði dvaldist hann nokkra daga í Graz, sem nú er næst stærsta borg Austurríkis og hana munum við skoða. Á leiðinni þangað er ætlunin að koma við í Eisenstadt en þangað kom Schubert nokkrum vikum áður en hann dó og þar starfaði tónskáldið Jósef Haydn lengst af ævi sinnar, en hann er einn af stærstu snillingum tónlistarsögunnar þó hann sé oft í skugga Mozarts og Beethovens.

Allir bjuggu þessir menn í Vínarborg og þó ferð okkar séu aðallega stíluð upp á Schubert munum við auðvitað hafa augum opin fyrir sögustöðum em tengjast öðrum stórséníum sem bjuggu í borginni meðan hún var mesta tónlistarsetur heimsins.

Við förum líka til St. Pölten, þar sem Schubert samdi óperu sína Alfonso og Estrellu sem er að verða kunn á síðari árum, og að höllinni í Atzenbrugg þar sem hópurinn sem var í kringum Schubert fór í nokkra daga frí í nokkur sumur. Þar var farið í samkvæmisleiki og iðkuð tónlist og á vellinum framan við höllina voru leiknir boltaleikir.

dumont_194Schubert fór tvisvar til Steyr sem talin er einhver fegursta borg Austurríkis og var þar reyndar gerður að heiðursfélaga Tónlistarfélagsins meðan hann var enn á lífi. Við förum þangað og komum við í Kremsmünster og klaustrinu í St. Florian þar sem Anton Bruckner gerði garðinn frægan. Besti vinur Schuberts var frá Linz og þangað kom Schubert einnig um sína daga og við fylgjum dyggilega í hans fótspor. Sömuleiðis förum við til Gmunden sem myndin hér er af. 

Sumarið 1825, þegar Schubert var 28 ára, fór hann í lengstu ferðina á ævi sinni. Þá kom hann ekki aðeins til Steyr og Linz  heldur einnig til Salzburg, fæðingarstaðar Mozarts. Það er samt einkennilegt að í bréfum þar sem Schubert lýsir ferðinni til Salzburg nákvæmlega er hvergi minnst á Mozart en hins vegar mikið sagt frá því þegar hann kom að gröf Michaels Haydns, bróður Jósefs, sem grafinn er í borginni.

Lengst frá Vínarborg komst Schubert um sína daga til Gastein og var þar nokkrar vikur. Náttúrufegurðin þar hafði djúp áhrif á hann og hann hóf þá að semja sína síðustu og mestu sinfóníu, hina svonefndu „stóru" C-dúr sinfóníu til aðgreiningar frá annarri sinfóníu sem hann hafði áður samið í sömu tóntegund. Sú „stóra" er gegnnumsýrð af náttúrudulúð og náttúrutignun sem var reyndar algeng á rómantíska tímabilinu og er runnin frá heimspekingnum Schelling.

Við fljúgum svo frá Salzburg til Kaupmannahafnar og þaðan heim.

schubÉg veit ekki til að nokkurn tíma hafi verið farin ferð þar sem menn feta nákvæmlega í fótspor Schuberts um Austurríki og nágrannalöndin. Við ferðafélagarnir munum að sjálfsögðu taka myndir, bæði ljósmyndir og videómyndir á góðar vélar.

Þeir sem verða í ferðinni auk mín eru Haukur Guðlaugsson organisti og fyrrverandi Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, Jón B. Guðlaugsson, sem kunnur er sem þáttagerðarmaður í útvarpi  og þýðandi og þulur í sjónvarpsþáttum, nú síðast í þáttunum um sólkerfið, Ólafur Thoroddsen tæknimaður og flugstjórarnir Leifur Árnason og Ólafur W. Finnsson.

Ég á ekki von á því blogga neitt frá og með þriðjudeginum og þar til komið verður heim eftir eina tíu daga.

Vegna fjölda fyrirspurna er rétt að upplýsa að Mali litli verður í fóstri hjá systur minni meðan ég er í ferðinnni. Hún á tvo harðsvíraða útiketti svo Mali hlýtur að mannast all mjög - kattast vildi ég sagt hafa - meðan hann verður hjá Helgu frænku sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta verður örugglega skemmtileg ferð hjá ykkur. En nú fara Ronja og Tobías ekkert út hjá Helgu systur eftir að hún flutti á nýja staðinn. Þeir eru víst skíthræddir við nýja húsið. 

Svava frá Strandbergi , 23.9.2007 kl. 22:10

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Æ, það er svo fallegt í Vín og Búdapest líka. Góða ferð.

María Kristjánsdóttir, 24.9.2007 kl. 09:09

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef nokkrum sinnum verið í Vín en aldrei Búdapest og hvergi annars staðar en í Vín og grennd í Austurríki .

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.9.2007 kl. 10:34

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þið farið um Austurríki Sigurður, kannski rekist þið á niðja mína þar, en ég var kirkjuorgelleikari í litlum bæ í kring um 1850. Er alveg sannfærður um þetta, verst að geta  ekki gert sér grein fyrir, hvaða borg eða bæ ég starfaði. Vona svo sannarlega að þú megir njóta ferðarinnar Siggi minn, kær kveðja úr Eyjum. 

Þorkell Sigurjónsson, 24.9.2007 kl. 10:42

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kannski samdir þú Heims um ból í fyrra lífi Keli. Lagið var samið af kirkjuorganista í litlu þorpi sem ég hef komið í og líka til Salzburg. Mér er víst farið að förlast því áðan sagðist ég ekki hafa farið neitt um Austurríki nema Vín og grennd. Einmitt svona byrjar alzheimerinn. Kannski er ég líka feigur. Dreymdi í nótt að ég væri í flugvél og hún fórst og kviknaði í henni. Það var reyndar hér í bakgarðinum. Þetta heitir víst ferðakvíði. Eða forspá!!

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.9.2007 kl. 10:58

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

þú varst nú lika hræddur um að flugvélin færist þegar við fórum til Krítar og satt að segja hélt ég líka, þarna rétt fyrir lendinguna, að við værum öll feig um borð.
Og ég get svarið það, að þessa óbærilegu stund þarna í vélinni, sá ég hárin rísa á höfði þér, þar sem þú sast við hliðina á mér .
En skessa var auðvitað pollróleg og haggaðist ekki, aldrei þessu vant.

Svava frá Strandbergi , 24.9.2007 kl. 18:40

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta var mjög einkennileg lending.

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.9.2007 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband