Jóla-og áramótaveđriđ aftur í tímann

Yfirleitt er veđriđ skaplegt um jólin. Ţau eru ýmist mild eđa frostasöm en nćstum ţví aldrei er sama veđurlag alla ţrjá jóladagana. Lítiđ er um frćg jólaóveđur. Samt var mikiđ vestanveđur á ađfangadagskvöld 1957 og varđ ţá minnisstćđur stórbruni í Ţingholtunum. Víđa var stormur á ađfangadag 1974. Ađ morgni ađfangadags 1989 var sums stađar fárviđri. Snjókoma setti mjög svip sinn á ađfangadag áriđ 1960 og 1971 og lokuđust ţá vegir. Einnig snjóađi árin  1977 og 1983. Áriđ 1988 var stormur og snjókoma um allt land á jóladag.

Einstaklega köld jól voru árin 1995, 1968 og 1965 og fyrir norđan líka árin 1980, 1988 og 1989. Sérlega hlýtt var á jólunum  í fyrra, 1948, 1940, 1934 og 1933 sem voru allra hlýjustu jólin.  

Á vef Veđurstofunnar má sjá veđriđ alla jóladaga frá 1949 og snjóhulu í Reykjavík. Reyndar er hćgur vandi ađ fletta upp á hvađa hátíđisdegi sem er frá 1949 á vef Veđurstofunnar.  Og ţađ ćttu menn endilega ađ gera fremur en liggja í ţessum jólabókum!

Hćgt er ađ sjá hér snjólag um jólin í Reykjavík árin 1871-1920. 

Úrkomusömustu jól í Reykjavík voru 2005 en 1960 á Akureyri.

Kaldasti gamlársdagur í Reykjavík og á Akureyri var 1976 en 1971 sá hlýjasti í Reykjavík en fyrir norđan var  1968 sá hlýjasti. Hlýjasti nýjársdagurinn í Reykjavík var 2003 en 1973 fyrir norđan. Kaldstur nýjársdaga í Reykjavík var 1948 en á Akureyri 1977. Á töflunum á fylgiskjali er annars hćgt ađ sjá hvađa hátíđisdgar voru hlýjastir og kaldastir bćđi í Reykjavík og á Akureyri. 

Ţar er hćgt ađ sjá hita, sól og úrkomu yfir alla jóladagana (reyndar líka Ţorláksmessu), gamlársdag og nýjársdag í Reykjavík frá 1880 og frá Akureyri frá 1949 en fyrir ţann tíma hef ég ekki ađgang ađ daglegum gögnum um ţann stađ. Hins vegar eru hér upplýsingar um hita og úrkomu á Hallormsstađ frá 1937 til 1948. Veđur er ekki alltaf ţađ sama á ţessum stöđum en oft er ţađ svipađ og Hallormsstađatölurnar ćttu  ađ gefa bendingu um ástandiđ á norđausturlandi og jafnvel norđurlandi á jólunum ţetta tímabil.

Á blađi 3 í fylgiskjlainu er hćgt ađ sjá út af fyrir sig međalhita allra jóladaganna saman og áramótana og samanlagđa úrkomu.

Úrkoman er hér auđvitađ í mm og sólarstundir í klukkustundum. Menn skulu athuga vel ađ úrkomutölur viđ hvern dag er úrkoma sem mćldist frá kl. 9 ţann dag til kl. 9 daginn eftir. Ţegar úrkomudálkur er auđur hefur ekki komiđ dropi úr lofti en núlliđ stendur fyrir vott af úrkomu sem ekki var ţó mćlanleg. Ţá skal nefnt ađ sól á Akureyri mćlist aldrei um jólin  vegna ţess ađ fjöllin byrgja hana.

Nýjársdagurin er auđvitađ alltaf  á nćsta ári miđađ viđ ţá ársetningu sem er viđ hver jólin í töflunum.  

Dagar međ hćstu og lćgstu gildi eru auđkenndir og ćtti ţví ađ vera auđvelt ađ finna ţá í töflunum. 

Međalhitinn er ţarna raunverulegur međalhiti fyrir Akureyri og Hallormsstađ en í Reykjavík til ársins 1935. Frá 1888 til 1907 er hins vegar međaltal hámarks-og lágmarkshita viđkomandi dags en árin 1908 til 1919 er um ađ rćđa međaltal mesta og minnsta álesturs á hitamćli frá ţví snemma morguns ţar til seint á kvöldi, ekki raunverulegs lágmarks-og hámarkshita. 

Á blađi tvö á fyrra fylgiskjali má svo sjá mesta og minnsta  hita á landinu öllu hvern hátíđardag frá 1949 og hvar sá hiti mćldist.  

Ţađ sem hér er framboriđ er tekiđ eftir Íslenskri veđurfarsbók 1920-1923, Veđráttunni 1947-2002, Veđurfarsyfirliti frá 2003 og áfram og loks ýmsum öđrum gögnum frá Veđurstofunni.  

Ég óska öllum ţeim sem nenna ađ lesa bloggsíđuna mína gleđilegra jóla.  

 


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Ţakka enn eina veđurtöfluna frá ţér Sigurđur Ţór.  Eljusemi ţín er ótrúleg og til eftirbreytni.  Bestu  jólakveđjur til ţín yfir hátíđina.

Einar Sveinbjörnsson 

Einar Sveinbjörnsson, 23.12.2007 kl. 23:46

2 Smámynd: Ţorkell Sigurjónsson

Gleđileg jól.

Ţorkell Sigurjónsson, 24.12.2007 kl. 12:56

3 Smámynd: Svavar Alfređ Jónsson

Gleđileg jól og bestu ţakkir góđa pistla og prýđilega bloggvináttu.

Svavar Alfređ Jónsson, 24.12.2007 kl. 16:45

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Sćll, mér var hugsađ til jólaveđurspár ţinnar í skemmtigöngu sem ég tók mér í hríđinni áđan. Ţótt ţađ hafi kannski veriđ dálitlar ýkjur ađ tala um vestanfárviđri, blindöskubyl og ađ engum manni yrđi fćrt út úr húsi ţá er veđriđ vissulega allt í ţá áttina. Sjálfum mér koma köld og hvít jól ekki á óvart, eins og ég sagđi í athugasemd á sínum tíma en ég óska ţér gleđilegra jóla, ţótt ađ óska jólaveđriđ ţitt sé ekki akkúrat núna.

Emil Hannes Valgeirsson, 25.12.2007 kl. 16:24

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband