Ljósið, sem hvarf

Kerling ein kunni ekkert annað en faðirvor og las það á hverjum morgni og hverju kvöldi með mestu andakt. Sáu menn ljós yfir rúmi hennar, ávallt er hún las á kvöldin. Menn fóru að kenna henni ýmislegt annað andlegt, en upp frá þeirri stundu sáu menn aldrei ljósið.

Þjóðsögur Jóns Árnasonar, 4. bindi.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þessi saga er ekki brandari!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2007 kl. 12:20

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég er viss um að þessi saga er dagsönn.

Daginn sem guðstrúin hvarf á Íslandi fóru dýrustu arkitektar þjóðarinnar að teikna kirkjur með skúlptúrútliti.

Árni Gunnarsson, 26.12.2007 kl. 15:11

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Faðir vorið er allt sem þarf. Hefurðu hlustað á Pál Rósinkranz syngja það? Ég hef spilað það á hverjum degi í nokkra daga.

Svava frá Strandbergi , 26.12.2007 kl. 15:44

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ertu búinn að líma niður jólatréð svo Mali felli það ekki alltaf um koll þegar hann stekkur á það?

Svava frá Strandbergi , 26.12.2007 kl. 15:48

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég ætti nú ekki annað eftir en fara að hlusta á Pál Rósinkranz syngja faðirforið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2007 kl. 15:56

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nei, það er satt, ég var búin að gleyma því að þú hlustar ekki á svoleiðis músík.

Svava frá Strandbergi , 26.12.2007 kl. 17:57

7 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þetta er kjarni hins hreina boðskapar.

Jón Halldór Guðmundsson, 26.12.2007 kl. 18:51

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, trúlega hefurðu afbrigðilegan trúarhúmor Halla! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2007 kl. 19:01

9 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Nú á ég aðeins 20 blaðsíður eftir í ÞÞ í fátæktarlandi!

María Kristjánsdóttir, 26.12.2007 kl. 19:19

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Oj, María!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2007 kl. 19:22

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég held að þú takir Sigga alltof alvarlega Hallgerður. Maður á bara að hlæja þegar maður vill án þess að skammast sín hið minnsta fyrir það.

Svava frá Strandbergi , 26.12.2007 kl. 21:42

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hva, á ekki að taka mig alvarlega? Ég segi: Það á að taka mig hatíðlega! Mjög hátíðlega!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2007 kl. 21:45

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis

Svava frá Strandbergi , 27.12.2007 kl. 11:44

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað ertu hjörtu að vilja hér upp á bloggdekk?!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.12.2007 kl. 13:56

15 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Tvö hjörtu meira að segja. Ef þau eru dobluð er komið geim! Svo einfalt er það!

Jón Halldór Guðmundsson, 28.12.2007 kl. 00:08

16 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég dobla

Svava frá Strandbergi , 28.12.2007 kl. 14:31

17 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég segi pass því ég er hjartalaus. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.12.2007 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband