Það á að hrækja á slíka valdstjórn

Kannski á konan skilið þennan dóm að einhverju leyti. Hún uppsker því réttlæti hvað það varðar. 

En hún var líka sjálf beitt ofbeldi af lögreglu og lækni.

Það er bara yppt öxlum yfir því.

Þar uppsker konan því blóðugt ranglæti.

Mál hennar er í skoðun hjá Landlæknisembættinu. En ætli hann sé ekki sjálfur á mála hjá valdstjórninni. 

Menn eru sem sagt dæmdir fyrir brot gegn valdstjórninni. En þessi sama valdstjórn getur leyft sér allt. Menn eru jafnvel dæmdir fyrir það að veita ólögmætu ogbeldi viðnám en konan var dæmt fyrir að hrækja á lögreeglumann sem tók af henni þvagsýnið. Það er alveg yfirgengilegt.  

Það er ekki hægt að bera minnstu virðingu fyrir slíkri valdstjórn.

Það á að hrækja á hana.

Allra síst fyrir sýslumannsskepnunni sem framdi ofbeldið gegn konunni og hreykti sér af því. Sá hái herra virðist hafa sadíska nautn af því að niðurlægja fólk, Og valdstjórnin lætur hann komast upp með það eins og ekkert sé. Verðlaunar hann raunar með því að skipa hann í þvagleggsnefndina.

Ætli hann gleðjist ekki nú þegar búið er að niðurlægja konuna svo mikið að ekki verður lengra gengið í þeim efnum.

Menn eiga að rísa upp gegn þessari ruddalegu valdstjórn.

Það á að hrækja á hana!  


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Heyrðu! Brotið gegn konunni er sjálfstætt brot. En auðvitað eru alltaf einhverjir sem bera blak af ruddaskap valdstjórnarinnar. Það er gömul saga og ný.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 01:13

2 identicon

Ef að kona þessi hafði farið að lögum og hlýtt fyrirmælum lögreglunar hefði ekki þurft að taka af henni sýni með valdi.Hún getur sjálfri sér um kennt hvernig fór og mér finnst sá dómur sem hún fékk síst of þungur.Það væri annars athyglisvert að vita hvaða skoðun þú hefðir á þessu sama máli ef að þessi sama kona hefði áður en hún keyrði blindfull út í skurð og endaði sína för, keyrt framan á bíl þar sem ástvinir þínir væru á ferð með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 01:19

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mikið finnst mér þetta barnalegt að snúa þessu upp í eitthvað persónulegt. Ofbeldið gegn konunni er í sjálfu sér ekki réttlætanlegt ef það var ólögmætt og utan við siðareglur lækna en þvagtakan var læknisverk. Óhlýðni réttlætir ekki ónauðsynlegt ofbeldi, bara nauðsynlegt ogbeldi. Margir læknar hafa tjáð sig um þá hlið málsins  og voru yfir sig hneykslaðir. Þarna var verið að fremja ofbeldi ofbeldisins vegna.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 01:26

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þeir voru heppnir að þetta var kona. Það er ekki eins auðvelt að þræða þvaglegg inn í þvagrás karlmanns, þar sem hún er mikið lengri en þvagrás konunnar. það þarf líka að halda typpinu á meðan, fyrir utan það að halda manninum og  það hefði líka kostað miklu meiri átök því karlmenn eru sterkari líkamlega en konur. Þessi svívirða  hefði einfaldlega aldrei verið gerð hefði karlmaður átt hlut að máli.

Svava frá Strandbergi , 27.2.2008 kl. 02:37

5 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Hverjum ertu að ögra Sigurður.  Það eru svona skrif sem eru bloggurum til skammar.

Sveiattan 

Sveinn Ingi Lýðsson, 27.2.2008 kl. 05:47

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég sé að herramennirnir sem skrifa athugasemdir hér skilja hvorki upp né niður í hvað þú ert að meina í færslunni þó að þú hafir útskýrt það mjög vel sjálfur í einni athugasemd þinni. Ég ætla að afrita hér þá athugasemd og þar með endurtaka hana:

"Ofbeldið gegn konunni er í sjálfu sér ekki réttlætanlegt ef það var ólögmætt og utan við siðareglur lækna en þvagtakan var læknisverk. Óhlýðni réttlætir ekki ónauðsynlegt ofbeldi, bara nauðsynlegt ogbeldi. Margir læknar hafa tjáð sig um þá hlið málsins  og voru yfir sig hneykslaðir. Þarna var verið að fremja ofbeldi ofbeldisins vegna."

Þetta er í rauninni mjög skilmerkilegt og engu við þetta að bæta svosem.

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.2.2008 kl. 08:56

7 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Þeir sem eru hlynntir þvagleggnum ættu að flytja til Norður-Kóreu fyrst þeir vilja ekki búa í frjálsu landi.

Elías Halldór Ágústsson, 27.2.2008 kl. 09:20

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Æ, Sveinn Ingi. Þessi var slappur. Ekki veit ég skammarlega athæfi en það að skríða fyrir valdstjórninni.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 10:59

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er líklega rétt hjá Svövu að þessu ofbeldi hefði ekki verið beitt gegn karlmanni.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 11:07

10 identicon

Þetta finnst mér einkennileg umræða.

Ef þetta hefði verið karlmaður þá efast ég um að fólki hefði fundist þetta vera eins harkalegt og þegar kona á í hlut.

Við lítum nefnilega á konur sem viðkvæmari, brothættari og meira ósnertanlegar en karlmenn.

Var ekki dónaskapur að blóta svo kona heyrði hér í denn?.
Er ósiðlegra að setja þvaglegg í konu en karlmann?.

Finnst okkur ekki að síður megi þvinga konu en karlmann?. 

rabbar (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 13:01

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það sem mér sýnist Svava vera að ýja að er að ofbeldið gegn konunni hafi verið meðvitað kynbundið ofbeldi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 13:09

12 identicon

Hefði hneykslun bloggheimsins orðið jafnmikil ef þetta hefði verið pólskur nýbúi frá Keflavík?

Hvað ef hún hefði verið nýbúin að keyra yfir lítið barn?

 Hefði mátt nota þvaglegginn þá?

Ef hún hefði verið vopnuð hefði hún þá ekki skotið á lögregluna?

Það var kannski lán að hún keyrði útaf áður enn manntjón varð.

Hún hefur í raun brotið allar brýr að baki sér með framkomu sinni.

Það hefði ekki verið ásættanlegt að hún hefði getað komið sér undan refsingu með mótþróa við lögregluna.

"Með illu skal illt út reka".

 Konan er mannýg og verður þessvegna að taka föstum tökum til að framfylgja lögum landsins.

Þetta með þvaglegginn er í raun "stormur i vatnsglasi" miðað við alvöru málsins.

Ragnar (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 13:18

13 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Sigurður, þessi svör sem þú færð, gera mig svo rasandi að ég meira segja rýf þögnina og gerir athugasemd. Ég vil að þú sért skipaður yfir sérstakri nefnd sem gerir tillögur um fræðslu í grunnskólum landsins um mannréttindi og fær fé til að hrinda þeim í framkvæmd.

María Kristjánsdóttir, 27.2.2008 kl. 14:18

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Heill sér María, drottning skynseminnar og verndari viskunnar!

Á hverju ári er fjöldi fjöldi fólks sviptur ökurétti vegna ölvunaraksturs. Því er bara tekið eins og það er. Þegar ei nhver neitar að taka niðurlægandi læknisaðgerð er sú manneskja fordæmt af sumum út yfir öll takmörk.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 15:11

15 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Það eru mistök í dómnum að taka þvagsýnið sem gilt sönnunargagn án þess að taka afstöðu til þess hvortþað hafi verið réttilega fengið.

Elías Halldór Ágústsson, 27.2.2008 kl. 15:12

16 Smámynd: Jonni

Eru engar reglugerðir um það hvaða vinnubrögðum lögreglan beitir, erum við algjörlega óvarin duttlungum hennar? Þetta hlýtur að vera mál fyrir mannréttindadómstóla. Ég er ekki að réttlæta ölvunarakstur eða ofbeldi gegn embættismönnum, en hver er mannréttindavörn okkar í þessu sambandi?

Jonni, 27.2.2008 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband