Hitametið í Reykjavík 14. maí 1960

Þennan dag árið 1960 mældist mesti hiti sem mælst hefur í nútímahitaskýli í Reykjavík í maí, 20,6 stig. Hitabylgjan stóð í eina fjóra daga, 11.-14. en bæði á undan henni og á eftir var líka hlýtt þó ekki væri um hitabylgju að ræða.

Það sem gefur þessari bylgja sérstöðu er það að hún naut sín einstaklega vel á þéttbýlasta svæði landsins, Reykjavíkursvæðinu. Hvergi á landinu fór hitinn í tuttugu stig nema þar og svo á Andakílsárvirkjun í Skorradal 20,3 stig þ. 13., Hólum í Hjaltadal. 20,0 þ. 15.  og á Egilsstöðum 20,9 stig  þ. 12. Á Hæli í Hreppum mældust 19,6 stig þ. 11. Á Snæfellsnesi sums staðar og í Ísafjarðardjúpi mældist methiti í maí þó ekki færi hiti þar í 20 stig.   

Meðalhiti sólarhringsins þ. 14. var í Reykjavík 14,9 stig, ein 9 stig yfir meðallagi, og hefur jafn mikill meðalhiti aldrei mælst þar í maí. Daginn áður var meðalhitinn einnig mjög hár, 14,5 stig.    

Reykjavíkurhitinn þann 14. er dagshitamet fyrir landið en það er ekki oft sem höfuðborgin á Þann heiður. Hitinn við Andakilsárvirkjun þ 13. er einnig dagshitamet. Hins vegar var meðalhámarkshiti á skeytastöðvum alla dagana frá 12. til 14. sá hæsti sem mælst hefur frá og með 1949: 14,80, 14,91 og 14,87 stig.      

Hlýindi þessu bárust alla leið frá Suður-Evrópu og Norður-Afríku með hvassri suðaustanátt sem var ríkjandi á hafinu milli Íslands og Bretlandseyja. Henni fylgdi mikið og fallega blátt þurramistur á suðurlandi  sem var í  rauninni óhreinindi og mengun frá evrópskum iðnaðarborgum.

Mikið veður var gert úr hitabylgjunni í blöðunum enda voru höfuðborgarbúar ekki öðru eins vanir í maí.

Á fylgiskjali má sjá gang hitans á þriggja tíma fresti í Reykjavík alveg frá 9. til 15. maí, ásamt meðalhita, úrkomu og sólskinsstundum.

Árið 1988 komu mikil hlýindi alveg þessa sömu daga í Reykjavík en voru ekki alveg eins mikil. Þá fór hitinn í 18,3 stig  þ. 14. og 18,8 þ. 15. Meðalhiti síðari sólarhringsins var sá næst mesti í borginni í maí, 14,8 stig.. Þessi hitabylgja var raunar sterkari en 1960 á suðurlandsundirlendi og í Borgafirði með 21,5 stig á Sámsstöðum, 21,4 á Hellu og 21,0 á Hamraendum í Borgarfirði.

Hér má sjá veðurkort á hádegi dagana 12-14. maí 1960 og kort sem sýnir hvernig hlýja loftið að sunnan þrengir sér í háloftunum norður á bóginn. Einnig Íslandskort á hádegi hlýju dagana 14. og 15. maí 1988.

1960-05-12_12

1960-05-13_12

1960-05-14_12

 Rrea00119600514

1988-05-14_12

1988-05-15_12

 

      


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilegt blogg hjá þér. Þó að veðrir í dag er unaðslegt, þá væri ég alveg til í að eitthvað svipað og veðrið frá 1960 endurtaki sig. 

Róbert (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 17:40

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband