Spurning dagsins

Ef norðurpóllinn skyldi nú verða íslaus í haust, hvað er þá svona voðalegt við það?

Nú bið ég umhverfisséníin að misskilja ekki spurninguna þannig að hún merki eitthvað annað en bara spurningu um það HVAÐ sé svona voðalegt við það en ekki t.d. að það sé ekki neitt voðlaegt við það.

Ég hef séð á bloggsiðum að þetta sé alveg voðalegt.  En HVAРer svona voðalegt við það? 

Könnum svo getspeki bloggverja. Á síðunni er skoðanakönnun, hávísindaleg, um það hvort menn haldi að norðurpóllinn verði íslaus í haust.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það er svosem ekkert voðalegt við það Nimbus.  Það er líka fróðlegt að skoða vefsíðu hjá University of Illinois. Síðan kallast

Slóðin er  http://arctic.atmos.uiuc.edu/cryosphere

Þar kemur fram að hafísinn á norðurhveli hefur vissulega minnkað eitthvað á síðasta ári, en aukist verulega á suðurhveli síðustu árin. Hafísinn samtals á norður- og suðurhveli hefur nánast staðið í stað undanfarin 30 ár. Merkilegt nokk.  Er eitthvað voðalegt við það?

Skoðið ferlana og myndirnar á vefsíðunni.  Það er nefnilega ekki allt sem sýnist í þessum málum   Norðurhvelið er auðvitað efst á síðunni og suðurhvelið neðst.  

Ágúst H Bjarnason, 29.6.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það verður samt að hafa það á hreinu og þannig hef ég skrifað um þetta, að ef norðupóllinn sjálfur verður íslaus í sumar þá verður það mjög merkilegur atburður út af fyrir sig, burt séð frá því hvort það boði einhver voðalegheit fyrir jarðarbúa, burt séð frá því hvort þetta tengist gróðurhúsaáhrifum og burt séð frá því hvað er er að gerast á Suðurpólnum. En kannski finnst engum svona lagað merkilegt nema það boði hamfarir.

Emil Hannes Valgeirsson, 29.6.2008 kl. 13:36

3 identicon

Mér finnst þetta voðalegt í sambandi við dýralífið þarna, þá aðallega ísbirnina.

alva (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 14:07

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vissulega er þetta allt merkilegt og boaðar áreiðanlega heimsendi. . Í fyrra var sagt að ekki yrði íslaust á pólnum fyrr en eftir nokkra ártatugi en nú allt í einu á það bara að gerast í hvelli. Ég sé reyndar í Fréttablaðinu í dag að Einar Sveinbjörnsson er vantrúaður á gæði þessarar spár en Þór Jakobsson trúir meira á hana

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 14:26

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Fá málefni eru eins umdeild og þetta og eins margar og misjafnar skoðanir á lofti eins og raun ber vitni. Það er ekki nokkur leið fyrir svona aumingja eins og mig að átta mig á hver hefur rétt fyrir sér og hver ekki. Svo skiptir fólk um skoðun á málinu reglulega.

Ég hef því alveg látið það eiga sig að draga ályktanir en hlusta samt og fylgist með. Verst finnst mér að átta mig á skoðunum sem virðast beintengdar pólitík og ríkjandi valdhöfum hverju sinni. Þeir vísindamenn sem koma með niðurstöður samkvæmt pöntun pólitíkusa eru loddarar.

Það voru pistlar í Speglinum á fimmtudaginn sem þið spekúlantarnir gætuð haft áhuga á að hlusta á - ef þið hafið þá ekki gert það. 

Einn pistillinn var um James Hansen, sérfræðing hjá NASA, annar um Sir Nicolas Stern, breska hagfræðinginn og síðan var viðtal við Jón Ólafsson, haffræðing, um áhrif losunar koltvísýrings á sýrustig hafsins og þar með lífverur sjávar. Hlusta má á þessa pistla í tónspilaranum á blogginu mínu eða auðvitað á vefsíðu RÚV.

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 15:28

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hlustaði alveg gapandi á þetta Lára!

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 15:45

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Af hverju gapandi? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 15:45

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Af lotningu fyrir vísindunum! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 16:08

9 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hmmm...  eitthvað hljómar þetta nú skúrkslega hjá þér, minn kæri. Maður gapir í forundran eða hneykslan - en drúpir höfði af lotningu - með lokaðan munn!

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 16:13

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er "öðruvísi".

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband