Forseti Íslands lýsir yfir fyrirlitningu sinni á geðsjúkum

Reglur Kínverja um þá sem fá að koma á ólympíuleikana í Peking tiltaka að fólk með geðsjúkdóma sé ekki velkomið. 

Þetta er auðvitað stimplun af versta tagi, engu skárri en ef t.d. Gyðingum væri meinuð þátttaka. 

Ætli Íþrótta- og ólympíusamband Íslands láti sér þetta vel líka og samþykki þar með þessa skelfilegu fordóma og mismunun? Það gera þeir ef þeir lára eins og ekkert sé. 

Og síðast en ekki síst: Er forseti Íslands, sem þegið hefur boð um að fara á ólympíuleikana, að leggja blessun sína yfir þetta með því að þiggja boðið? 

Já. Liggur í augum uppi. 

Nú var tækifærið fyrir forsetann að sýna að hann fyrirlíti fordóma gegn geðsjúkdómum. Og hann hundsar færið. Það er hneisa fyrir þjóðina. Hann er fulltrúi þjóðarinnar og þá er eins og hann sé að samþykkja fordómana fyrir hennar hönd.

Með för sinni á ólympíuleikana er forsetinn í reynd að lýsa yfir fyrirlitningu sinni á fólki með geðsjúkdóma.

Mér finnst að Geðhjálp og Hugarafl eigi að láta þetta mál til sín taka. Félögin eru aumingjafélög ef þau láta sem ekkert hafi í skorist.  

Og ég vænti þess að málsvari geðsjúkra í landinu nr. 1, Morgunblaðið, skrifi harðorðan leiðara um málið. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn.


mbl.is Geðfatlaðir óvelkomnir á Ólympíuleikana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Stundum veit ég ekki hvort er verra, fólkið sem hefur fordóma gagnvart geðsjúkdómum eða hinir sem verja réttindi geðsúkra.

(nei, mér finnst þetta ekkert - mér langaði bara að kynna þig fyrir málflutningi sem fer í taugarnar á mér)

Matthías Ásgeirsson, 22.7.2008 kl. 16:07

2 identicon

Spurning hvort Óli eða einhver annar "höfðingi" sé á geðlyfjum... ég tel það næsta víst að margir þeirra taki slíkt inn

DoctorE (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 16:16

3 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, ég held áfram  einsog DoktorE - hvernig ætla þeir að skilja hafrana frá sauðunum þarf forsetinn að mæta með "heilbrigðis"vottorð?

María Kristjánsdóttir, 22.7.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Alltaf gaman að heyra í þér hjartkæri Doktor, jafnvel þó þú myndir hakka mig í spað. Hallgerður: Við getum sagt okkar skoðun.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.7.2008 kl. 16:49

5 identicon

Eru kínversk yfirvöld ekki álíka ómannúðleg og þau íslensku?

Þórdís (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 18:08

6 Smámynd: Friðrik G Friðriksson

Það yrði fámennt á Paraolympics í Kína.

Annars held ég að það þurfi ákveðinn skammt af geðveiki til að þiggja svona boð. Bara að gleyma ekki að taka lyfin sín.

Friðrik G Friðriksson, 23.7.2008 kl. 11:26

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Velkominn á bloggið Friðrik!

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.7.2008 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband