Í betra ástandi

Snorra listamanni er alveg guðvelkomið að nota líkið af mér þegar ég hrekk upp af og gjöra úr því stórkostlegt listaverk. Mig hefur alltaf dreymt um að líta út eins og fallegt listaverk. 

Ég get bara ekki beðið!

En ég set samt eitt skilyrði. Ég vil ekki að líkinu af mér verði skilað í SAMA ástandi.

Ég vil að því verði skilað í BETRA ástandi. Að það verði eins og það hafi gengið í endurnýingu lífdaganna.  

c_documents_and_settings_hp_owner_my_documents_my_pictures_lik

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Vona að þú ætlir ekkert að fara að hrökkva upp af á næstunni, en þarna gefst þó tækifæri til að öðlast eilíft líf í ódauðlegu listaverki.

Emil Hannes Valgeirsson, 10.8.2008 kl. 19:34

2 identicon

Ólíkt skemmtilegri athugasemd við þessa auglýsingu Snorra en allra sjálfskipuðu siðapostulanna sem kepptust við að fordæma listamanninn hressa.  Kæmi mér þó ekki á óvart að gjörningurinn sé hreinlega auglýsingin sjálf og upphlaupið í kjölfarið.

...désú (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Alltaf í sama ástandi,
undarlegur sá fjandi,
andskoti rauður,
ætíð sem dauður,
Belsebúbs hann er á bandi.

Þorsteinn Briem, 10.8.2008 kl. 20:09

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Úff...mér finnst nú næstum álitlegra að hann haldi áfram að bjóða sig fram til forseta og fái embættið en þetta.

Er kannski ekki kominn tími til að Snorri fari að sýna okkur eitthvað af list sinni, sem hann titlar sig eftir? Ég hef ekkert séð enn annað en þessa sjálfmiðuðu próvokeringu.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.8.2008 kl. 20:49

5 identicon

"Snorra listamanni er alveg guðvelkomið að nota líkið af mér...."

Ef þetta væri einhver annar en Snorri þá yrði mér líka alveg sama.  Veit ekki af hverju, en þessi blessaði drengur hefur alltaf farið hroðalega í taugarnar á mér.  Ég fæ grænar bólur...

Malína (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 21:10

6 Smámynd: Kristín Jakobsdóttir Richter

Það er stutt síðan ég sá á vefsíðu listaverk eftir konu sem að gerði þetta. Fylgdist með dauðvona sjúklingum og fékk að mynda fyrir og eftir dauðdaga. Það var ljósmyndaverk. Nokkuð áhugavert og mjög áhrifamikið. Sorgin var rosaleg en friðurinn einnig mikill!

Kristín Jakobsdóttir Richter, 10.8.2008 kl. 21:27

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Kannski Snorri ætli að feta í fótspor hins umdeilda

Gunther von Hagens

Heiða B. Heiðars, 10.8.2008 kl. 22:37

8 Smámynd: Hafdís Lilja Pétursdóttir

Þú ert skemmtilegur Sigurður, ég held vart vatni af hlátri.

Hafdís Lilja Pétursdóttir, 10.8.2008 kl. 22:40

9 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Hann Snorri er alltaf að stuða okkur samferðamennina sína. Þetta er svona eins og að labba við hliðina á manni sem er alltaf að stjaka við manni. Manni finnst það óþægilegt. Maður velur að ganga við hliðina á öðrum.

Jón Halldór Guðmundsson, 10.8.2008 kl. 23:18

10 Smámynd: halkatla

hvernig vissi ég að þú ættir eftir að blogga og skrifa nákvæmlega þetta um þessa frétt! en ég er samt ekki hress með þennan Snorra og geng hinum megin við götuna, ásamt Jóni Halldóri - gjörningalistamenn eru fíbbbl

halkatla, 11.8.2008 kl. 09:20

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú vissir það vegna þess að þú ert forspá og djúpvitur Anna Karen! Svo hefurðu séð mig og skilur hvers vegna mig langar til að verða eins og fallegt listaverk! Loks hefurðu líklega freudíska óskhyggju um að ég verði vakinn upp af dauðum þegar þar að kemur enda verðurðu þá varla komin af gáfaða gelgjuskeiðinu og verður að lifa æði lengi án mín.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 11:12

12 Smámynd: halkatla

gelgjan í mér á sér leynda drauma um að þegar til kastanna kemur þá breytist líkin í zombie-a og hrekki líftóruna úr Snorra, það væri alveg í stíl við mína djúpvitru speki

halkatla, 12.8.2008 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband