Einfalt samhengi

Fátt er í rauninni jafn ógeðfellt eins og múgæsing heillar þjóðar. Hún birtist ekki alltaf í saklausum kappleikjum heldur oft í stríði og blóðsúthellingum. Múgsál er stór hákskalegt fyrirbrigði.

Gott að Íslendingar fá sjaldan tilefni til að vera "einhuga þjóð". 

Frábært að þessum vandræða ólympíuleikum er lokið. Sumir sem eru í íþróttavímu spyrja hvað stjórnarfyrirkomulagið í Kína komi ólympíuleikunum við. Þetta hafi verið glæsilegustu ólympíuleikar sögunnar - sem auðvitað mátti segja sér fyrir. 

Ólympíuleikarnir koma stjórnarfyrirkomulaginu í Kína við á þann hátt að þeir skilja eftir sig hörmungarslóð fyrir málfrelsi og mannréttindi í landinu og margir voru beittir ofbeldi í undirbúningi leikanna. 

Þeir  voru beinlínis notaðir til að herða tökin á þjóðinni sem er sú fjölmennasta í heiminum.  Ástandið er verra en ef engir leikar hefðu verið. 

Það er samhengið.

Er nokkuð erfitt að skilja það?   

Hugsar nokkur Íslendingur annars til kvennanna tveggja á áttræðisaldri sem dæmdar voru í árs þrælkunarvinnu fyrir það eitt að sækja um leyfi til að mótmæla.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er afskaplega lítið erfitt að skilja þetta.

Ég er reyndar á því að við hefðum átt að sitja heima og það þrátt fyrir skemmtilegan handbolta sem ég hef reyndar oftast horft á í endursýningu.

Núna hefur hlaupið á snærið hjá kínverskum glæpamönnum (stjórnendum), fleiri þúsund öryggismyndavélar sem settar voru upp í nafni leikanna verða ekki teknar niður og hafa nú nýjan tilgang.

Getið hvern.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 14:23

2 identicon

Er semsagt ekki í lagi að gleðjast með góðu gengi handboltaliðsins, án þess að það sé talin stórhættuleg múgæsing æææ , á maður altaf að labba með hausinn niður á bringu svo ekki sé hætta á að maður sjái neitt gleðilegt í kringum sig. Ég fyrir mitt leiti hef ekki skemmt mér svona vel í mörg ár ,hvað sem öðru líður. Vona að ykkur batni lika

Dísa 

dísa (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 14:44

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta gengur ekki upp sem þú ert að segja Dísa. En alveg dæmigert að svona komi. Það sést hér að múgæsingin vegna kappleiksins sé saklaus - en til séu verri hliðar á hennni- og þú  veist ekki nema við höfum líka glaðst. En hér glittir reyndar í hinar minna saklausar hliðar múgæsingar: allir eiga að hugsa eins og það er eitthvað að þeim sem gera það ekki og þeim þarf að "batna". Ég hef þá svo sannarlega lög að mæla í þessari færslu um það að múgæsing er varasamt fyrirbrigði. Og svo er það "samhengið" Dísa! En um það má kannski ekki tala. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.8.2008 kl. 14:54

4 identicon

Eg minnist ekki á að "allir eigi að hugsa eins" ,það skrifast áþig minn kæri, en það sem ég á við er, að það hlýtur að vera í lagi að gleðjast með fleirum, ekki bara´í einrúmi, án þess að orðið múgæsing sé notað. Og ´með "að batna" átti ég nú bara við að skapið batnaði, mér fannst full mikið svartnætti í þessu bloggi, hvernig sem á því stendur, eru það góðu stundirnar sem standa uppúr, a.m.k. hjá mér.

Hafðu það gott í dag sem aðra daga

Dísa 

dísa (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 15:07

5 identicon

Eru konurnar orðnar erfiðar við þig, Sigurður?

Malína (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 15:18

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú segir ekki beinum orðum Dísa að allir eigi að hugsa eins en eigi að síður hefurðu horn í síðu þeirra sem ekki taka að þínu álti þátt í "múgæsingunni" (kannski óþarflega ljótt orð) og talar ótvírætt til þeirra lítilsvirðingarorðum. Ekki kannast ég við "svartnætti" í þessu bloggi en "svartnætti" sýnist vera mjögt neikvætt orð. Þvert á móti gerum við Mali hér oft að gamni okkar. Er það kannski svartnætti að gleyma ekki mannréttindabrotum í Kína?. Ef þú kemur hér svo aftur Dísa til að tala um svartnlætti eða mér mætti bata einhver krankleiki (ekki þarf manni að batna það sem er í fínu lagi) vildi ég gjarna að þú gerðir það undir fullu nafni svo ég og aðrir vitum hver er að tala. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.8.2008 kl. 16:19

7 identicon

Samband þjóðarinnar og landsliðsins er eins og milli kúgaðrar fjölskyldu og alka. Líkingin er skemmtilega skýr; á heimili alkans verða allir að vera rosalega jákvæðir þegar hann er edrú. Eins er það með landsliðið, það verða allir að vera rosalega jákvæðir þegar vel gengur.

Í báðum tilvikum verður alltaf allt brjálað ef einhver leyfir sér að gagnrýna þegar "allt er í góðu". Þjóðin er stórfjölskylda að drepast úr meðvirkni. Og þegar menn eins og Sigurður segja skoðun sína þá er byrjað að sussa á hann. Og mig sjálfsagt líka. Skiptir ekki öllu.

Tóti (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband