Mættur á svæðið!

Ég hef verið fjarri bloggheimum nokkra daga. Hvílíkur léttir!

Ekkert lát hefur þó verið á stórtíðindum í heiminum þó mín  nyti ekki við. Nú eru þeir búnir að setja dómsdagsvélina í gang svo þetta bloggrugl fer blessunarlega að taka enda í eitt skipti fyrir öll. En þetta þarf víst til.

Ég hef verið klukkaður og allt hvað þetta hefur í minni skerandi bloggþögn.

Eigi veit ek hvernig bregðast skal við því. Þessi atriði sem maður á að gefa upp eru svo vitlaus að ég er í það minnsta að hugsa um að búa til mitt eigið klukkform. Eða þegja bara þunnu hljóði.

Mjög þunnu.  

Hysterísku bloggaðdáendur mínir nær og fjær!

Ég er mættur á svæðið!

Blöggum nú og blöðrum þar til veröld öll forgengur!

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Nú er eins gott að fara að biðja fyrir sér. Heimurinn að farast og þú byrjaður að blogga á ný.

Svavar Alfreð Jónsson, 10.9.2008 kl. 18:04

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ertu ekki til í að biðja fyrir mér í leiðinni, Svavar? Þú ert örugglega betri í þvi en ég... 

Velkominn aftur, Siggi minn. Nú þarftu að vinna upp fjarveruna og lesa alla pistlana mína sem til urðu í fjarveru þinni - þér til andlegrar upplyftingar og mikillar kátínu, vænti ég.

Lára Hanna Einarsdóttir, 10.9.2008 kl. 18:06

3 Smámynd: Gulli litli

Velkominn...

Gulli litli, 10.9.2008 kl. 19:04

4 identicon

Nei sko, Nimbus og Mali mættir á svæðið!  Loksins er kominn litur í tilveruna aftur!

Bara verst að ég verð ekki mikið nálægt tölvunni minni fram að helgi til að geta ausið úr mínum viskubrunni hérna.  Fanden skranden...   (Kannski sem betur fer fyrir aðra sem lesa þetta blogg! ).  Þangað til verða hjörtun að duga:

Malína (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 19:18

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Frétt hef ég nú að Mali the malicious,   hafi gert dálítið ljótt og stórt í rúmið hennar Evu litlu frænku okkar sem passaði hann.
Systir okkar sagði að hann hefði verið að mótmæla fjarveru þinni með þessu ódæði sínu.

Ég er bandsjúr á því að þú þurrkar þetta komment út hið snarasta.

Svava frá Strandbergi , 10.9.2008 kl. 23:30

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég lít fram hjá öllu klukki.  Get ekki viðrað matarsmekk minn opinberlega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 00:22

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já og sjúkkit hvað ég er glöð að þú skulir vera kominn aftur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 00:22

8 identicon

Já, mikið gott að vera búinn að fá sinn daglega leiðara. Ekki vilt þú Sigurður hafa það á samviskunni að ég lesi leiðara Moggans einsog ég hef þurft að gera undanfarna daga....

En gott er að Mali ekki var búinn að éta þig upp allan einsog ég óttaðist á tímabili.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 06:39

9 Smámynd: halkatla

Tilskuerne jublede

halkatla, 11.9.2008 kl. 07:24

10 Smámynd: Didda

Gaman að "sjá" þig aftur

Didda, 11.9.2008 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband