Óþolinmæði

Nú, fer þessi helvítis heimsendir þá ekki að koma?

Ég þoli ekki svona hangs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sonur minn, sem er búsettur í Sviss eins og stendur, segir að hann komi í október - man ekki hvaða dag nákvæmlega. Hann var með þetta á hreinu.

Þolinmóður, Siggi... þolinmóður. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.9.2008 kl. 16:35

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Dag í senn, eitt andartak í einu..  fáum okkur Pizzu!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.9.2008 kl. 16:38

3 identicon

Svona, svona...

Malína (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 16:41

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kannski fæ ég heimsenda í afmælisgjöf í október.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.9.2008 kl. 16:44

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hmrpf

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2008 kl. 21:22

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Já, Anna... samkvæmt heimsendaspám fær ENGINN í skóinn í desember! Huggun harmi gegn er að ekki er gert upp á milli.

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 01:07

7 Smámynd: Beturvitringur

Sigurður! fylgistu ekki með? Hann er búinn! Hann "skeði" á fimmtudaginn eða eitthvað!!!

Beturvitringur, 14.9.2008 kl. 01:16

8 identicon

Skrambinn.  Það sökkar feitt að fá enga jólasveina í desember til að klappa og kyssa...

Malína (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 01:22

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Elsku Sigurður minn!

Heimsendirinn er nýlega afstaðin og þú ert dáin. Allt sem þú sérð nú í kring um þig er raunverulega ekki til.

Fólk, hús og bílar sem þurrkuðust út, eru bara minningar sem þú heldur dauðahaldi í. Nú er ekkert til nema þú sjálfur. Allt hitt er bara ímyndun þíns sjálfs.

Þú mátt spyrja mig ef meira ef þú vilt, enn ekki gleyn-ma að þú ert raunverulega að spyrja þig sjálfan, því ég er ekkert annað enn ímyndun í þínu eigin höfði..

Það væri skref í rétta á að viðurkenna þetta. Þessi heimsendir skeði svo snöggt að þú tókst bara ekki eftir því.

Við öll hin erum á himnum, nema lögfræðingar, Ríkisstjórn og þingmenn, þeir fóru annað. hef heyrt að Satan sjálfur sé að verða alveg uppgefin á þessu fólki.

Næst þegar þú ferð ofan í bæ, horfðu þá á fólki og allt í kring um þig. Vittu hvort eitthvað hafi ekki breyst! Þetta "show" sem var búið sérstaklega til handa þér meðan þú ert að sætta þig við breytta aðstæður og þá staðreynd að þú ert jafndauður og allir hinir, var gerð af sálfræðingum fyrir þig og nokkra aðra sem skilja ekki að þeir eru dauðir.

Enn þetta kemur allt saman. bar t.d. talvan sem þú skrifar á eru ekki til! Það er bara þín eigin ímyndun nákvæmlega eins og öll svör sem þú færð.

Allt saman þín eigin fantasía. Ég held að þú sért sá eini sem eftir er sem er í þessari afneitun. Ísland t.d. sökk eins og steinn og er ekki til lengur.

T.d. bara þetta svar er þín eigin hugarsmíð, því ég er ekki til. Þú ert bara að ímynda þér þetta alltsaman því þú sættir þig ekki við aað hafa dáið þegar heimsendirinn varð nú fyrir stuttu...þú kemst yfir þetta..

Óskar Arnórsson, 14.9.2008 kl. 08:17

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, Óskar. Annars drukknaði ég fyrir rúmum 30 árum og var endurvakinn. En eftir því sem Þórbergur segir þá vita menn oft ekki að þeir séu dauðir eftir að þeir eru dauðir og eftir að ég drukknaði hef ég alltaf verið að hugsa um hvort ég sé ekki í rauninni steindauður en viti það bara ekki. Ef ég er búinn að vera dauður í yfir 30 ár þá er þessi heimsendaómynd líka bara ímyndun mín í helvíti og athugasemd þín sömuleiðis!    

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.9.2008 kl. 12:21

11 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ef þú ert dauður er vofan þín glettilega lík þér! Og drekkur kaffi. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 12:23

12 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Hefur heimurinn nokkurntíma verið til, er þetta ekki bara einn allsherjar misskilningur?

Emil Hannes Valgeirsson, 14.9.2008 kl. 12:44

13 Smámynd: Óskar Arnórsson

Einmitt Sigurður!  Þú ert að átta þig á því að öll komment eru raunverulega þín eigin því engin er til nema þú..

Eins og Emil  segir hérna, sem er að sjálfsögðu bara þín eigin ímyndun, þá var jörðin einu sinni til og svo sprakk allt og jörðin hvarf!..og þú neitaðir að viðurkenna að ekkert væri til lengur..

Óskar Arnórsson, 14.9.2008 kl. 13:37

14 identicon

Eru þá engir jólasveinar til heldur?!

Malína (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 13:58

15 Smámynd: halkatla

Komon, "heimsendir" getur eiginlega ekki komið nógu snemma

En auðvitað væri fínt að bíða með hann frammyfir jól. Og líklega fáum við árstíðabundnugjafirnar okkar nokkrum sinnum í viðbót, því það er samstaða á meðal allra sem vit hafa á málinu að líklegasta ártal heimsendis sé 2012...

halkatla, 14.9.2008 kl. 14:18

16 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Fínt, Anna Karen búin að fresta þessu. Þá getum við hætt að bíða, það er líka svo leiðinlegt.

En hvernig er það, Anna Karen...  verður enginn blettur skilinn eftir árið 2012?

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 14:20

17 Smámynd: halkatla

Ef hann gerist ekki 2012 þá segi ég að það verði 2079 byggt á vísindalegum líkindaútreikningum að sjálfsögðu

halkatla, 14.9.2008 kl. 14:20

18 Smámynd: halkatla


Ég mæli með opinberunarbókinni fyrir allar nánari útlistanir á atburðarásinni. En það voru mayar sem fundu fyrstir út að heimsendir kæmi 2012, þá mun enda ein hringrás, það á að vera sú seinasta (af fimm). Hver hringrás táknar sko nýjan "heim" sem rís á jörðinni, þeir endast eitthvað visst langan tíma (þúsundir ára). Ég vona að sá sem rís úr rústum okkar gamla gráðuga stríðsheims verði allt öðruvísi en hann það er það eina sem ég fæ útúr heimsendapælingunum - maður má láta sig dreyma en svartsýnustu mayarnir segja að það komi enginn í staðinn fyrir þennan fimmta heim okkar!

halkatla, 14.9.2008 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband