Ţegar ég var tónlistargagnrýnandi

Um daginn hringdi í mig mađur til ađ spyrjast fyrir um tiltekna tónlistargagnrýni sem ég skrifađi fyrir mörgum árum.

Ţetta rifjađi upp fyrir mér ađ ég var tónlistargagnrýnandi ćđi lengi og skrifađi um klassíska tónlist. Eins og svo margt annađ í lífinu varđ ţađ fyrir tilviljun. Ég átti vin sem var góđur kunningi Jóns Baldvins Hannibalssonar sem ég ţekkti ađeins lítillega. Hann dubbađi ţennan vin minn upp í ţađ ađ verđa leiklistargagnrýnandi á Alţýđublađinu ţar sem Jón Baldvin var ţá ritstjóri. Og einhvern veginn ćxlađist ţađ ţannig ađ ég fylgdi međ í kaupunum sem tónlistargagnrýnandi. Ţetta var í júní 1980.

Á Alţýđublađinu var ég í ţrjú ár. Nćst lá leiđ mín á Helgarpóstinn.

Lengst var ég ţó á gamla góđa Ţjóđviljanum en ţar var ég frá ţví haustiđ 1987 og ţar til blađiđ fór á hausinn. Eftir ţađ var gefiđ út helgarblađ á vegum Ţjóđviljans og ţar krítiserađi ég alveg vilt og galiđ.

En ţađ blađ fór líka á hausinn. Um tíma var ég ţá á DV.

Síđan liđu nokkur ár og ég var ekki ađ gagnrýna eitt né neitt. Hustiđ 2004 gerđi Páll Baldvin Baldvinsson mig ađ tónlistargagnrýnanda DV. Ţar var ég svo ţar til blađiđ fór á hausinn. Allir fjölmiđlar fara á hausinn sem ég krítisera fyrir. Seinna var Ţórunn Hrefna Sigurjónsdóttir - Tóta pönk - menningarritstjóri á DV og heyrđi ég undir hana. Viđ urđum ţá miklir mátar og hún er ein af uppáhaldsvinkonum mínum. Hún elskar líka Ţórberg eins og ég gerđi einu sinni. Nú er ég búinn ađ sjá í gegnum hann!

Ţađ skiptist nokkuđ í tvö horn hvernig mönnum fannst gagnrýni mín. Sumir voru vođa hrifnir, ţar međ taldir ýmsir meiriháttar tónlistarmenn en ađrir ekki. Ég var ekki í neinum klíkum í tónlistarheiminum enda ekki tónlistarmađur. Ég lá auđvitađ vel viđ höggi fyrir ţađ. Og mér fannst óţćgilegt ađ skynja ţykkju og ţótta í minn garđ frá sumum. Hann kom ekki síst fram ţegar menn voru orđnir fullir. Stundum var skrifađ gegn mér í blöđin, en ekki ţó oftlega. Ég var stundum óhefđbundinn í skrifum mínum og held ađ ţađ hafi truflađ ýmsa. En oft var ég líka mjög hefđbundinn.

Ţađ ríkti á Íslandi mikil fyrirlitning á tónlistargagnrýnendum međal tónlistarmanna, sumra ađ minnsta kosti. Tónlistarmenn hafa oft veriđ hörundssárir vegna gagnrýni. Hins vegar virđist ţađ hafa veriđ alveg sjálfsagt ađ ţeir létu óhefta fyrirlitningu sína á gagnrýnendum í ljósi og auđmýktu ţá á prenti eins og hver vildi. Sumir tónlistarmenn virđast blátt áfram hafa haft nautn af ţví ađ lítillćkka ţá međ smánarlegum orđum. Ţađ ţótti alveg sjálfsagt. Ţannig var mórallinn. Nú er tónlistargagnrýni útdauđ nema á Morgunblađinu ţar sem ţrengt hefur ţó veriđ svo ađ henni ađ hún er hvorki fugl né fiskur.

Ég var ungur ţegar ég byrjađi ađ krítisera. Kannski var ég fyrstu árin dálítiđ óvćginn og sé eftir sumum dómum. Međ árunum hefur mér fundist ţađ vera eitt af keppikeflunum  í lífinu ađ sýna öđru fólki ekki tillitsleysi. Hins vegar er náttúrlega óhjákvćmilegt ađ gagnrýna ţađ sem miđur fer í listdómum, jafnvel harđlega. En ekki er ţó sama hvernig ţađ er gert.

Já, ég er orđinn eitthvađ svo óţolandi yfirvegađur og djúpvitur í seinni tíđ! Ţví til sönnunar birti ég mynd sem tekinn var af mér fyrir nokkrum dögum. Ég rorra alveg í viturleika og yfirvegun! Ef smellt er ţrisvar á myndina verđur hinn ógnvćnlegi gagnrýnandi larger than life!  

Afrit af PICT2863

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ţú ert ógeđslega virđulegur.  Enda hefur ţú gefiđ út bók.

Ţetta er svona mynd sem sést aftan á bókarkápum.

Merkilegt hvađ ţađ er oft sama mótíviđ.

Sumir höfundar (ekki ţú sko) verđa ađ vera međ bókasafn í bakgrunni svona eins og til ađ sannfćra lesendur um ađ ţeir séu líka bókamenn. 

Alveg eins og sjoppueigandinn vill ekki láta ţađ fréttast af hann hafi skömm á namminu sem hann selur.

Ţessi pistill var í bođi Jennýjar Önnu Baldursdóttur, mikilmennskubrjálćđings.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2008 kl. 15:15

2 Smámynd: Beturvitringur

Fjandi ertu reffilegur, - fríkkar međ aldrinum! Veit ekki hvernig ţetta endar.

Beturvitringur, 21.9.2008 kl. 15:28

3 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Jenný ţó! Ţađ eru nú ađallega múskdiskar í bakgrunni. En hvergi er eiginlega hćgt ađ taka mynd af mér í stofunni nema bćkur sjáist. Og svo verđa bćkur ađ vera í bakgrunni svo mađur sýnist ekki smaller than life!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 21.9.2008 kl. 15:39

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha, ég skil ţig, er međ heilan vegg af ţessari vinsćlu vöru í stofunni hjá mér, en auđvitađ bara ef ske kynni ađ ţađ kćmi blađamađur og ljósmyndari ađ taka viđ mig óđdauđlegt viđtal um stórkostlegt framlag mitt til bloggbókmenntanna.

Hógvćrđarnefndin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2008 kl. 15:55

5 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Jenný, ţađ kemur enginn og tekur viđ mig ódauđlegt viđtal um eitt eđur neitt, en hins vegar koma stundum bloggarar međ  mikilfengleg komment í hógvćrđ sinni!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 21.9.2008 kl. 16:20

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, ţađ kemur ađ ţví ađ ţú verđur gerđur ódauđlegur í riti og á skjá.

Bíddu bara.

Spákonan!

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2008 kl. 16:23

7 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ţví miđur, of seint, heimsendir verđur í nćsta mánuđi!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 21.9.2008 kl. 16:26

8 identicon

Ţú ert mjög góđur tónlistardómari. Af ţví ţú skrifar góđan stíl og af ţví ţađ skein í gegn ađ tónlist er ţér mikilvćg.

Ţađ var eftir ađ ég las dóma eftir ţig ađ ég fór til dćmis ađ leggja mig eftir Schubert og ljóđasöng.

Egill (IP-tala skráđ) 21.9.2008 kl. 17:44

9 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Mađur hefur vara áhrif í veröldinni!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 21.9.2008 kl. 18:01

10 identicon

Ég ćtti kannski ađ fara ađ rýna í gömlu tónlistardómana ţína, ađ hćtti elítunnar , og láta "bjarga mér" frá öllu rokkinu og poppinu sem ég lćt glymja í eyrum mér flestum stundum.  Bara verst hvađ rokkiđ er assgoti skemmtilegt - og veitir mér mikinn innblástur.  Og áhugi minn á ţví er lítiđ farinn ađ dvína, ţótt ég sé farin ađ skríđa yfir á efri árin. 

Malína (IP-tala skráđ) 21.9.2008 kl. 18:37

11 Smámynd: halkatla

Gagnrýnisheimurinn er ekkert smá brútal!

Ţetta er líka ţónokkuđ athyglisvert:

Allir fjölmiđlar fara á hausinn sem ég krítisera fyrir.

halkatla, 22.9.2008 kl. 14:06

12 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Allir fjölmiđlar fara á hausinn sem ég krítisera fyrir.

Ţetta veit Mogginn og ţess vegna hefur hann aldrei beđiđ mig um ađ krítísera soldiđ fyrir sig. Ég myndi taka ţađ ađ mér međ ánćgju. Hann er eina blađiđ sem ég á eftir ađ ganga frá. 

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 22.9.2008 kl. 14:37

13 Smámynd: halkatla

Nei nei, ţađ getur ekki veriđ, ţví hagsmunađađilar moggans hugsa ekki svo rökrétt - ţađ hljóta ađ vera tilviljanakenndar eđa absúrdískar ástćđur fyrir ţessu - vinir íhaldsins eiga varla eina heilasellu til ađ deila á milli sín

halkatla, 22.9.2008 kl. 23:37

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband