Jólasnakk

Ég átti þessi líka fínu jól eins og fyrri daginn. Í raun og veru er ég afskaplega hátíðlegur maður, þó þess gæti ekki svo mjög á þessari bloggsíðu, og á því auðvelt með að  setja í  jólagírinn. Á aðfangadagskvöld át ég eins og svín og tók upp gjafirnar. Lá svo á meltunni á jóladag og hélt áfram að éta eins og svín. Á öðrum degi jóla var allt í sama  svínslega farinu. En á meltunni liggjandi hlustaði ég líka á jólaóratóríur margvíslegar svo ég var ekki með öllu óandlegur. Um kvöldið á öðrum í jólum sá ég í sjónvarpinu myndina Brúðgumann og fannst hún skondin en ekki sérlega skemmtileg. Og ég verð víst að móðga marga með því að lýsa því blákalt yfir að þessi mynd Kjötborg fannst mér alveg hundleiðinleg. 

Eina bók hef ég lesið um jólin: Gróðurhúsaáhrifin og loftslagsbreytingar eftir Halldór Björnsson. Það er fyrsta bók á íslensku um þetta málefni. Enga dóma hef ég nokkurs staðar lesið um bókina. Ég er að hugsa um að skrifa minn eigin dóm hér á bloggsíðunni. En það tekur einhverja daga að gera það ef ég þá geri það. 

Í þeim jólamessum sem ég heyrði var venjunni samkvæmt talað um gleði jólanna en svo var líka minnst á það, líka eftir ritúali, að jólin væru mörgum erfið vegna sorga og andstreymis sem  sumir hefðu orðið fyrir og menn upplifðu einmitt mjög sterkt um jólin. Þetta vita auðvitað allir. En það sem fór í taugarnar á mér í þessu sambandi var það að prestarnir fóru svo ekkert meira út í þetta, allt var þetta bara venjubundið hjal en þessu fólki var ekki sýndur neinn áhugi eða alúð. Allt ætlaði  aftur á móti í ræðum prestanna að öðru leyti um koll að keyra í JÓLAGLEÐI. Þeim sem voru í einhvers konar sorg um jólin var í raun bara stjakað frá, eins og alltaf er gert í jólaguðþjónustum  nema hvað þeir voru nefndir og svo var bent á Jesum Krist til að lækna þeirra mein. Skyldi aldrei neinum presti nokkurn tíma detta í hug að helga jólaræðu sinni þeim sem eru miður sín um jólin með  einhverri alvöru umflöllun í stað hefðbundins jólasnakks. Skilaboðin eru í raun og veru: Þeir sem ekki geta gleymt sorg sinni um jólin geta bara étið það sem úti frýs. Einhvern veginn svona upplifði ég þessar jólamessur, einkanlega þá sem kvenprestur einn var með í útvarpinu á öðrum degi jóla. 
 
 AngryDevilWink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég sá ekki „Gróðurhúsabókina“ í búðum nema allra síðustu dagana fyrir jól þannig að kannski kom hún of seint fyrir dæmendur, ef þeir þá kunna að skrifa um svona bækur. Sjálfur á ég eftir að kaupa hana.

En svo ég tali um jólapredikanir þá finnst mér að þær eigi öðrum fremur að vera sem allra hátíðlegastar, en hins vegar almennar og frekar leiðinlegar (og helst fluttar af karlmanni, en það má víst ekki nefna það).

Emil Hannes Valgeirsson, 27.12.2008 kl. 15:47

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, bókin kom út sex dögum fyrir jól sem er alltof seint. Hún átti að koma tveimur mánuðum fyrir jól og vera auglýst. Þetta er efni sem margir hafa nú áhuga fyrir og auðvitað átti að spila á það með því að gefa fólki tíma til að taka eftir henni í jólabókavertíðinni.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.12.2008 kl. 16:02

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þarf endilega einhver prestvígður að syngja yfir þér? Má ég ekki bara gera það? Ég skal syngja eitthvað fallegt með mínu nefi, ekkert mál. Og þú getur verið búinn að skrifa sjálfur stólræðuna.

Það þarf engan vígðan millilið, þetta er allt í nösunum á þeim hvort sem er, er það ekki?

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.12.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er alveg sjálfsagt Lára mín að þú syngir yfir mér með þínu nefi. Ég hlakka til og vona bara að það verði sem allra fyrst!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.12.2008 kl. 16:28

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Neinei, ekki strax, það gengur ekki. Ég krefst þess að hafa þig hérna megin þónokkuð lengi í viðbót!

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.12.2008 kl. 16:30

6 identicon

Þú átt mjög skynsamar systur!

Þori ekki að segja meira...

Malína (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 19:07

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Viltu kannski að ég fylgi þér líka í 9. lið Malína?!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.12.2008 kl. 19:13

8 identicon

Malína (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 20:11

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hvort vill maður einn sér vera dauður eða lifandi þegar Lára Hanna syngur yfir honum, spyr ég bjáninn ?

Steingrímur Helgason, 27.12.2008 kl. 21:01

10 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, ég spyr nú lika afhverju prestur? og afhverju kall? Er ekki best að láta bara spila einhverja tónlist?

Ég er búin að lesa þrjár bækur , enga um gróðurhúsaáhrifin.

María Kristjánsdóttir, 27.12.2008 kl. 23:34

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

María, þú lest ekki nógu heitar bækur. Ég vil svo bara láta jarða mig á kristilegan íslenskan máta og ekkert með það bara og endilega að syngja yfir mér Allt eins og blómstið eina. En það má líka rokka og róla.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.12.2008 kl. 23:51

12 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Steingrímur... ef ég syngi yfir þér lifandi myndirðu óska þess að vera dauður! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.12.2008 kl. 23:54

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En þá er það spurningin  hvort maður risi ekki með andfælum upp frá dauðum ef Lára syngi yfir manni dauðum!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.12.2008 kl. 23:58

14 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Neinei, því þegar þú ert dauður umberðu allt... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.12.2008 kl. 00:01

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, ég tek ekki að mér jarðafarir en myndi annars skúbba þér út úr heiminum með stæl.

En því miður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.12.2008 kl. 00:45

16 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

María, spila eða syngja...?

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 28.12.2008 kl. 01:32

17 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég sé á öllu að menn og konur eru farnir að hlakka mjög til útfarar minnar og að hún megi verða sem veglegust í söng og spilverki. Henni mun því verða flýtt eins og kostur er með glæstum stæl öllum viðkomandi til sjaldgæfs yndis og ánægjuauka. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.12.2008 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband