Frábært veður

Veðrið síðustu tvo daga hefur verið aldeilis frábært. Vindur hefur verið fremur hægur, úrkoma lítil og afar hlýtt. Í Reykjavík hefur hitinn verið 7-8 stig og stundum meira  samfellt í meira en sólarhring. Víðast hvar er snjólaust á landinu og aðeins á Grímsstöðum á Fjöllum er alhvít jörð. Allir vegir eru greiðfærir. 

Hitinn í þessari hrinu hefur komist í 13 stig á Sauðanesvita, skammt frá Siglufirði og yfir tíu stig á allmörgum stöðum á Vestfjörðum, miðbiki Norðurlands og á Austfjörum. 

Ástæðurnar fyrir þessari veðurblíðu er hægt að lesa hér.  Þetta gerist alloft og stundum verður svona veðurlag þrálátt, getur jafnvel varað vikum og mánuðum saman.

Við skulum vona að svo verði núna. 

Þetta veðurlag finnst mér óska jóðaveður. Ólýsanlega miklu þægilegra en kuldi og mikill snjór sem margir vilja víst hafa á jólunum. Munurinn núna og síðustu vikuna fyrir jól er ótrúlegur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Þetta sama veðurlag hefur valdið því að ekki hefur verið hægt að fljúga til Ísafjarðar frá því fyrir jól. Ætli flugfarþegum þangað eða þaðan þyki þetta óska jólaveður?

Björgvin R. Leifsson, 28.12.2008 kl. 14:35

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það var ekki sama veðurlag og ég er að lýsa sem hindraði flug til Ísafjarðar FYRIR jólin heldur er nú  annars konar veðurlag sem kom ekki fyrr en EFTIR jólin. Nú er flugveður um allt land og mér er hulin gáta hvers vegna flugi er aflýst í dag til Ísafjarðar. Við Djúpið er ekki hvasst, um 8 m/s við Ísafjörð rétt áðan,  sums staðar lítilsháttar rigning og ágætt skyggni á Bolungarvík, yfir 70 km.  Þetta hlýtur að vera eitthvað mjög staðbundið. Það er reyndar þannig að veðurlag sem í heildina er talið gott, t.d. bjartvirði alls staðar að sumarlagi, getur komið með t.d. þoku á stöku stað.  Það hlýtur að vera talið gott vetrarveður almennt um landið þegar snjólaust er að kalla, vegir greiðfærir, vindur yfirleitt hægur og úrkoma lítil og hlýtt. En mér finnst forvitnilegt hvað það er sem hindrar flug til Ísafjarðar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.12.2008 kl. 16:09

3 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Eftir því sem mér skilst á farþega er þetta vegna sviptivinda við flugvöllinn við Skutulsfjörð. Mér er þetta líka ráðgáta þar sem meðalvindhraðinn þarna er lágur eins og þú bendir á. Mér þætti gaman að vita hvort þetta veðurlag hefur þessi staðbundnu áhrif þarna og hvers vegna eins og ég hef spurt að á síðu Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings.

Björgvin R. Leifsson, 28.12.2008 kl. 18:02

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér datt einmitt þetta í hug því vindkviður eru þarna allmiklar í dag og aðflug að vellinum er vægast sagt þröngt eins og allir vita.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.12.2008 kl. 18:15

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

sammála þér með þetta veður. ekki bévítans frost og snjór.

ég kýs sólina á sumrin og rigninguna á veturna.

Brjánn Guðjónsson, 28.12.2008 kl. 18:59

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég vil hvít jól.....en svo vil ég svona veður fram í apríl Takk

Hólmdís Hjartardóttir, 28.12.2008 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband