Kosningar verði fremur seinna en fyrr

Stjórnmálaflokkarnir verða að fá ráðrúm til að hreinsa til í eigin ranni.  Þar er enginn undanskilinn.  Þeir verða að bjóða fram traustvekjandi fólk og ekki bara stilla upp gömlum refum í örugg sæti. Fólk treystir yfirleitt ekki þessum gömlu pólitísku andlitum.

Af því hvernig stjórnmálaflokkarnir tala um hverja aðra, og ekki síður hvernig bloggarar skrifa sem eru harðir stuðningsmenn einhverra flokka og þá hatursmenn annarra, virðist allt vera að síga í gamla skotgrafafarið. 

Það lofar ekki góðu. 

Ég er ekki bjartsýnn um að nýir og ferskir vindar eigi eftir að að leika um íslenska pólitík eftir kosningarnar.

Flokksræðið er enn allsráðandi og skammur tími til stefnu fyrir ný sjónarmið að komast á framfæri,að ekki sé talað um ný framboð sem eitthvert raunverulegt vit væri í.

Að kosningum loknum verðum við líklega bara í gömlu súpunni eftir kosningabaráttu með öllum gömlu töktunum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er hrein og bein heimska að vera að flýta sér í kosningar núna..
Hér þarf að plana, skúra, skrúbba og bóna.
Hálvitarnir í framsókn eru enn að reyna sitt besta til þess að rústa öllu heila klappinu......
Að nota skynsemina er lykilatriði... óðagot er ávísun á FAIL

DoctorE (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 12:36

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég held að þetta sé alveg hárrétt hjá þér. Umbætur þurfa miklu meiri tíma og ekki síður hreinsanir innan flokkanna. Svo ekki sé minnst á ný framboð.

En Framsókn liggur á að nýta sér falsfylgið sem byggist á blekkingarleiknum að skipta um andlit. Allt spillingarliðið er þarna ennþá.

VG vill líka nýta sér gott gengi í skoðanakönnunum sem allra fyrst - en verður tekið til innanbúðar og endurnýjað? Er tími til þess?

Ég held ekki.

Lára Hanna Einarsdóttir, 30.1.2009 kl. 13:24

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mótmæli komu ríkisstjórninni frá. Geta þá ekki mótmæli komið stjórnmálaflokkunum í skilning um að taka  verði til innanbúðar og endurnyjað. Allan þann tíma sem flokkarnir hafa til að ganga frá framboðsmálum eiga mótmælendur að halda þeim við efnið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.1.2009 kl. 14:03

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gleymdi: Guð vakir yfir voru ættarlandi!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.1.2009 kl. 14:05

5 identicon

Var ein helsta og ákafasta krafan í mótmælunum ,,kosningar strax?"

Ég veit ekki betur. Í dag er 30. janúar, þannig að tilvonandi framboð hafa nærri 3 mánuði ef miðað er við kosningar 25. apríl. Er það ekki nægjanlegur tími. Ég held að ,,starfsstjórn" megi ekki vera mikið lengur við völd en það. Það er áríðandi að ný og varanleg ríkisstjórn sé mynduð og til þess þarf kosningar.

Gústaf Gústafsson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 14:56

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég skildi mótmælin helst þannig að stjórnin færi frá og boðað yrði til kosninga. Það er kannski álitamál hve snemma þær eigi að verða en aðalatriðið er það að almenningur í flokkunum geti haft einhver áhrif en ekki bara gamli kjarninn í hverjum flokki.

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.1.2009 kl. 15:20

7 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Ég óttast nú mest að S-hópurinn og flokksmaskínan í Framsókn sé eitthvað að toga í Sigmund núna. Ég held við verðum að halda áfram að mótmæla og  sjá til þess að þess að hlutirnir þróist í rétta átt. Ég átta mig satt að segja ekki á hvað þarf langan tíma til endurnýjunar og fyrir ný framboð. En það þarf að gera kröfur um að RÚV sé beitt til að kynna frambjóðendur, prófkjör með auglýsingum, ímyndarsmiðum  og kostnaði séu bönnuð o.s.frv. annars verður þetta allt ómark einsog venjulega .

María Kristjánsdóttir, 30.1.2009 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband