Röng aðferð við uppsagnir Seðlabankastjóra

Bréfið sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi bankastjórum Seðlabankans  er ansi klaufalegt. Þar segir meðal annars:

''Vill ríkisstjórnin kanna hvort vilji sé til þess af yðar hálfu að biðjast lausnar frá embætti nú þegar og leggjast þannig á sveif með stjórnvöldum í viðleitni þeirra til að endurvekja trúverðugleika og traust á Seðlabanka Íslands.''

Það er ekki hægt að neita því að orðalag þetta er fremur lítilsvirðandi. Beðnir vinsamlega um að segja af sér og taka afsstöðu með skoðunum ríkisstjórnarinnar. 

Miklu betra hefði verið að segja mönnunum hreinlega upp. Skipa þeim en biðja þá ekki. Að biðja einhvern í svona kringumstæðum  lætur hann standa frammi fyrir vali þó hann hafi í rauninni ekki neitt val. Og það er bæði íþyngjandi og auðmýkjandi.

Í beinni uppsögn er það ómak tekið af mönnum að þurfa að velja, hafa frumkvæði af nokkru tagi og láta uppi skoðun af nokkru tagi.

Engar reglur eru til um það hvernig segja eigi upp seðlabankastjórum. Bein uppsögn ætti því að vera auðveld með lágmarksrökum. 

Vegna skipulagsbreytinga væru fullgild og óvéfengjaleg lágmarksrök bak við þessa uppsögn af því að þau eru sannleikurinn. Það stendur vissulega til að breyta skipulaginu hvað yfirmenn Seðlabankans varðar. 

Mönnum er nú sagt upp vegna skipulagsbreytinga út um allt þjóðfélagið. Þetta hefði því verið einföld og auðveld leið. Ekki hefði þá einu sinni þurft að nefna hið augljósa: að Seðlabankinn nýtur nú einskis trausts í heiminum.

En það að að biðja menn að vera svo góðir að víkja er auðmýkjandi aðferð og hlýtur að vekja upp andstöðu þeirra er fyrir verða. Það gefur líka Sjálfstæðismönnum, sem yppta öxlum yfir öllum uppsögnum í þjóðfélaginu undanfarið nema seðlabankastjóranna, færi á því að tala um   hatursherferð og þeir hafa nokkuð til síns máls.

Að lítillækka menn er ekki aðgerð sem ber vott um virðingu heldur óvirðingu og hún sprettur ekki af öðru en einhvers konar óvild.


mbl.is Ingimundur baðst lausnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er skortur á regluverki um uppsagnir seðlabankastjóra ekki tilkomið vegna þess að eki er hægt að segja þeim upp lagalega? Það hefur nú verið nógu mikið í umræðunni þó ég þekki lagabókstafinn ekki í þeim málum. Umræðan hefur alltaf verið þannig að maðu hafi skilið það sem svo að annaðhvort þyrftu þeir að segja af sér eða að einhverjar lagabreytingar þyrtu að verða til að losna við þá.

Hvað aðferðina finnst mér satt að segja ekki skipta neinu máli. Ef það væri eitthvað undir þessum illum í seðlabankanum væru þeir löngu búnir að viðurkenna mistök sín og segja af sér eins og stór hluti þjóðarinnar hefur viljað. Þeir eiga fátt annað en óvild skilið og ekki vott af virðingu. Þeim var gefið tækifæri eftir tækifæri til að fara og halda þar með einhverjum manndómi en það hafa þeir ekki séð og fá því enga vorkun þó að forsætisráðherra segi of mikinn sannleika fyrir þá til að höndla.

Sigurður J Guðmundsson (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 12:16

2 identicon

Þráhyggja er veikindi. Sennilega fer Davíð í veikindafrí um óákveðinn tíma samkvæmt læknisráði og skapar pattstöðu öllum til hrellingar.

Guð blessi Ísland !!!

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 12:48

3 identicon

 Óþarfi að niðurlægja og vanvriða fólk þó það hafi ábyggilega ekki verið ætlun Jóhönnu.  SJG  að ofan: "Þeir eiga fátt annað en óvild skilið og ekki vott af virðingu".  Hafa Eiríkur og Ingimundur komið fram af óvirðingu og eiga því óvild og óvirðingu skilið?  Ég held ekki.  Getur verið að þeirra mistök hafi verið að vinna undir oki og stefnu yfirbankastjórans? 

Lýsir ofanvert ekki fremur þinni persónu og eldgömlum og rótgrónum andstyggðar og  hatursvilja landans gegn nánunganum?  Að hengja fólk fyrir mistök?  Ég efast ekki um að núna koma haturssvör og so be it.

EE elle 

EE (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband