Blogginu að fara aftur

Í dag lenti ég á kjaftatörn á kaffihúsi við bloggara. Hann var með þeim fyrstu sem fór að blogga og var búinn að láta að sér kveða í mörg ár þegar Moggabloggið hóf göngu sína. Hann bloggaði mjög líflega og skemmtilega um líf sitt en lét almenn þjóðfélagsmál eiga sig. Þannig voru flest blogg á fyrri árum. Þau voru trú  uppruna sínum sem ''rafræn dagbók'' einstaklinga. Og þarna hefðu verið ýmsar merkilegar persónur sem gaman hefði verið verið að kynnast. En nú sé  orðið sáralítið um þannig blogg. Langfelst blogg séu um ''þjóðfélagsmálin'' eða trúmál eða veðrið eða einhver almenn mál. 

Þetta væri mikil afturför.

Viðmælandi minn taldi að Moggabloggið ætti stóran þátt í þessari breytingu. Eftir að það byrjaði hafi bloggið farið að breytast úr því að vera mestan part persónulegt í það að verða aðallega eins konar framhald af blaðagreinum. Síðan hafi fjöldinn sem bloggar kæft bloggfyrirbærið í ofgnótt þar sem hálfvitar réðu ríkjum.

Í dentíð hafi heldur engum dottið í hug að menn yrðu að blogga undir nafni og menn hafi haft yndislegt frelsi til að segja það sem þeim sýndist. Fáir hafi samt farið yfir velsæmismörk. Nú sé bloggið aftur á móti svo heft og tamið að það sé orðið óttalega smáborgaralegt þrátt fyrir ófrumlegar svívirðingar sumra bloggara. 

Ég hlustaði á þennan reynda bloggara með mikilli athygli. Og því er ekki að leyna að bloggið verður æ ópersónulegra svona yfirleitt og líkara eins konar fjölmiðlaheimi. Eftir að kreppan brast á hefur bloggið að mestu leyti orðið kreppublogg. Menn blogga og blogga um hana og það sem henni tilheyrir. Flest er það alveg óbærilega leiðinlegt. 

Sjálfur hef ég fyrir löngu fengið leið á blogginu. (Ekki er samt feisbúkkið skárra).  En ég á enn eftir að koma ýmsum veðurfærslum á framfæri og þess vegna nenni ég að hanga við þetta. 

Gleðin sem ég hafði af að blogga á tímabili er alveg horfin. Ég geri ekki lengur að gamni mínu af hartans lyst eða nýt mín á nokkurn hátt. Margir hafa líka helst úr lestinni í blogginu siðan ég byrjaði á þessu. Ekki síst var maður  oft beinlínis að blogga fyrir einhvern, já, jafnvel uppáhaldspersónurnar sínar,  eins og Zou og AK og Pönkínuna, sem maður vissi að fylgdust með. En nú fylgist víst enginn með. Eða þá þeir eru svo margir að maður verður feiminn.  

Æ, já þetta er ekkert gaman lengur. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ó já, það er margt til í þessu hjá þér.  Persónulega fannst mér skemmtilegast að blogga og lesa blogg á árunum 2002-2004. Nú er voðalega óáran í þessum miðli (sem öðrum).  Væri Satan til þá væri Moggabloggið hans verk.

Þórdís (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 22:22

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er líklega ein þeirra sem er svona ferlega leiðinleg. Hef aldrei skrifað persónulegt blogg - og ætla ekki að gera það.

En ég les þitt blogg ALLTAF og mér finnst þú aldrei leiðinlegur, minn kæri!

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.2.2009 kl. 22:22

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Lára, þegar maður skrifar á þennan hátt sneiðir maður auðvitað framhjá mörgu og útdeilir alhæfingum. En þú ert ekki venjlegur bloggari, hvorki persónuleg eða ópersónuleg. Þú ert ríki í ríkinu í bloggheimum! Sannkölluð þjóðhagsstofnun og  betri en sú sem lögð var af.

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 22:26

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Maður er auðvitað ekki talin með þrátt fyrir að tilheyra hópi hýsterískra aðdáenda.

Eigðu þig addna kall.

Frusssssssssssss

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.2.2009 kl. 22:26

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þórdís: Þú barst í tal í dag milli mín og þessa fyrrverandi bloggara. Það var talað um þig lofsamlega og þess óskað að þú værir með okkur í spjallinu!!

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 22:29

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vei þeim sem móðgunum veldur! Ég hélt einmitt að þú værir líka búin að yfirgefa mig Jenný af því að ekkert onblogaskot hefur komið í háa herrans tíð frá þér! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 22:31

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvernig dettur þér í hug að hysterískir aðdáendur yfirgefi þig þótt þeir trani sér ekki fram í hverju bloggi? Þú átt okkur með húð og hári - líka í veðurblogginu... tja, mig alltént.

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.2.2009 kl. 22:38

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Veðrið er svona lala, enda er smekkur okkar þar á skjön.  En hafðu það í huga maður að stíga ekki á tær viðkvæmra aðdáenda.

Bið svo að heilsa kattarkvikindinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.2.2009 kl. 22:50

9 identicon

"...En nú fylgist víst enginn með."

Ég ætla að taka undir með Jennýju - eigðu þig bara kall!! 

Hrrmmfff...

Malína (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 23:39

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vei þeim er hneykslunum veldur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 23:52

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég tek undir með þér & Tótu pönk, enda er hún Ezzgari.

Þetta er allt saman jenfólinu, stebbafr & láru hönnu að kenna !

Steingrímur Helgason, 18.2.2009 kl. 01:13

12 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Allt hefur sinn tíma undir sólinni. Bloggið líka. Það er ekki ferskt lengur. Fyrsti bloggari landsins, Jón Eyþórsson, veðurfræðingur, bloggaði vikulega í útvarpið árum saman og aðrir á eftir honum. Þá hét það um daginn og veginn. Það blogg lifði lengi enda var það ekki bundið fréttum augnabliksins. Eða þá, að augnablikin voru stærri þá en nú til dags. Jafnvel svo stór að blindir menn og bændur norður í landi blogguðu og búktöluðu í útvarpið og þótti engum tiltökumál. Rammpólitískir.  

Ég byrjaði að blogga í lok október, þegar ég fékk bréf frá syni mínum á fertugsaldri í útlöndum, sem sagðist ekki eiga neitt föðurland lengur. Það var mér um megn og ég varð að fá útrás. Nú er sú erting hjá og ég hef tekið út nokkurn bloggþroska. Fyrirferð þeirra sem "ropa þegar potað er í þá" eykst og umferðin er að hluta vonabís í pólitíkinni, sem eru á leið í framboð. Það getur aldrei orðið skemmtilegt. Það er eins og að vera á föstu og horfa á korteríþrjú umferðina á Óðali. Engin spenna. 

Andrés Björnsson, útvarpsstjóri,  bloggaði áramótablogg. Þau eru fágæti. Hann náði heljartökum á þeim, sem lögðu við hlustir. En hann vissi það ekki, því hann auðmjúkur og hlédrægur maður, sem gerði engar áberandi kröfur til viðurkenningar í lífinu. Öllu var á hann troðið og var honum raunar um megn í góðmennsku sinni.

Hann sat við fætur C.S Lewis. Í Oxford. Þar var Tolkien ekki langt undan. Þeir reyktu saman pípu yfir bjórkollu á kvöldin hann og Lewis. Þar heitir Eagle and Child og má auðveldlega finna við aðalgötuna.

Ef menn vildu blogga hér áður fyrr þá þurfti að koma því á prent. Í Skírni tam. Menn urðu að gefa út blað. Listirnar kröfðust síns. Þær fengu Birting. Allt var þetta fyrirhöfn og fórn. Keypt dýru verði.

Þess vegna var höndum ekki kastað til innihaldsins.

Bloggið er hluti þeirra menningar, sem fellur í okkarr skaut. Það snýst á hjóli tímans eins og öll okkar tilvera undanfarin misseri. Hraðar og hraðar með hverju andartaki þar til úr rýkur. Og við sjáum ekki fyrir endann á því frekar en forðum í september.

Á þessum víðsjárverðu bloggtímum er þó alltaf rúm fyrir þá, sem feta vilja í fótspor Jóns Eyþórssonar, sérstaklega ef þeir eru veðurfræðingar við alþýðuskap.

Sigurbjörn Sveinsson, 18.2.2009 kl. 01:32

13 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það er bara rugl að blogginu sé að fara aftur. Það eru að vísu miklu fleiri sem blogga eftir að Moggabloggið kom til sögunnar. Þeir sem halda að það sé hægt að fylgjast með öllum sem blogga sæmilega verða auðvitað fyrir vonbrigðum.

Þó mörg blogg séu eins og framhald af blaðagreinum eru góðu bloggin þarna innan um og saman við. Það er bara að finna þau. Ég hef lengi fylgst með bloggum og allskyns tölvutengingum allt frá dögum BBS-anna og veit alveg hvað þetta er.

Auðvitað fá þeir sem lengi hafa bloggað leið á því með tímanum. Þeir fá líka leið á ýmsu öðru þó það sé ekkert verra fyrir vikið. Það hvort bloggað er undir nafni, um sjálfan sig, dægurmálin eða eitthvað annað skiptir engu máli. Þeir sem á endanum dæma um gæði bloggs eru þeir sem lesa þau. Ekki skrifararnir og síst þeir sem hafa gefist upp.

Smekkur manna breytist og alltaf eru að koma nýjir kraftar í bloggheima. Samskiptin við aðra bloggara fara alveg eftir hverjum og einum. Sá sem bara les blogg þarf ekkert að kommenta frekar en hann vill og hver og einn getur haft samskipti við aðra bloggara með þeim hætti sem honum sýnist.

Sæmundur Bjarnason, 18.2.2009 kl. 01:36

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er eitt sem ég fæ aldrei leið á. Það er blessað veðrið. Jafnvel þó það sé bölvað illviðri. Og minnist spakmælis vitringins mikla: " Veðurblogg er eina bloggið sem vitsmunaverum er sæmandi."

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.2.2009 kl. 01:49

15 identicon

Ég vona þá þín vegna að þú eigir eftir að finna þér einhvern sálufélaga með þér í þetta blessaða veður!

Segi ekki meira...

Malína (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 02:57

16 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jahérnamegin; Á bara ekki orð...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 18.2.2009 kl. 04:25

17 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæll Sigurður.

það er mikið til í þessu sem þú segir - samt hef ég ennþá gaman af því að blogga og lesa blogg hjá öðrum, m.a. bloggin þín, þó ég setji ekki oft inn athugasemdir.

En ég tek undir það að bloggið hefur breyst. Í þeirri gnægð blogga sem komin eru fram er erfitt að henda reiður á öllu sem fram fer.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.2.2009 kl. 08:48

18 identicon

Og ég er orðlaus.  Og ég sem ætlaði bara að þegja í gegnum 1 blogg heldur en að vera síkjaftandi.  Ég les nú alltaf bloggið þitt síðan ég fór fyrst inn í það.  Ómissandi.  Og eigðu bæði kaffið þitt og köttinn þinn.

EE elle

EE (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:19

19 identicon

Magn er ekki sama og gæði í blogginu. Ég sendi örsjaldan færslu einfaldlega af því ég hef lítinn tíma til þess, ekki vegna hrakandi gæða á bloggsíðum yfirleitt.

Ég tel að moggabloggið hafi skemmt út frá sér vegna þess að þeir nota það í hagnaðarskyni.

Þeir sem blogga þar eru í raun blaðamenn í sjálfboðavinnu hjá Árvakri. Þess vegna hætti ég hjá blog.is og stofnaði nýja síðu.

Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:33

20 identicon

Munið bara að vinsælustu bloggin eru ekki endilega best... Þetta er svona Pink Floyd vs Vanilla Ice muuhaha ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:37

21 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

        Skiftast á skin

        og skúrir.

        Víst er vínberin

        á-vextir súrir.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 18.2.2009 kl. 10:17

22 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Þau ERU súr :)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 18.2.2009 kl. 10:19

23 identicon

Kæri Sigurður,

Ég les alltaf bloggið þitt vegna þess að þú ert á jörðinni og ekkert að setja þig á háan hest.  Þú kemur með eðlilegar og jarðbundnar og mannlegar sögur.  Og enginn kemst upp með neinn djöfulgang í friði fyrir þér, hvort sem það erum nú við (sem´aldrei´lesum bloggið þitt þó við gerum það alltaf: ) eða forseti landsins.

EE elle

EE (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 11:01

24 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Leiðist persónuleg blogg og "dagbókarfærslur", sneiði hjá þeim algerlega.

Georg P Sveinbjörnsson, 18.2.2009 kl. 16:49

25 Smámynd: Skarpi

Hversvegna tókstu aftur færsluna um Harald? Ég má til að spyrja og líka hvort þér hafi verið hótað eða þú fengið einhverskonar bögg frá fjölskyldu hans? Þeim er ekki vel um að þetta sé rætt. Skiljanlega, ef rétt reynist að það hafi verið fjölskylda hans sem lét gera honum þetta - ef það er þá satt. 

Hann og Þórður Sigtryggson voru æskuvinir, en virðast ekki hafa átt neitt samneyti hvor við annan á fullorðinsárum, hvort þessi ógeðfellda "vönun" skipti þar höfuðmáli, eða bara það sem Þorsteinn Antonsson kallar katatóníu Haralds og þá erfitt að ná nokkru sambandi. Hann segir raunar

"Það sem átti eftir að henda Halla er bara ljótur og leiðinlegur draumur, sem mig varðar ekkert um."

Kuldalega, einsog hans var von og vísa. 

Annars þykist ég dyggur lesandi þessarar síðu þinnar og geng í þennan kór hér að ofan, jafnvel veðurfærslna, sumra amk. Þó maður kommenti minna en maður lesi, þýðir það ekki að manni mislíki.

Ég þekki það vel sjálfur að vera að skrifa, eða blogga þá, fyrir einhvern sjálfur. Nú les mig enginn, og ég er frjálsari fyrir vikið! 

Skarpi, 19.2.2009 kl. 15:51

26 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Það er fullt af skemmtilegum bloggum ennþá, þau eru bara svolítið falin í magninu. Frekar fá af þeim eru moggablogg...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.2.2009 kl. 09:53

27 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Persónulega finnst mér lítið um áhugaverð blogg þó þau séu auðvitað til og reyndar óraunhæft að gera kröfu um annað. Og ég fæ ekki séð, þrátt fyrir að sumir segi að svo sé, að blogg annars staðar, t.d. þau sem koma inn á Blogg-gáttina úr ýmsum áttum, séu yfirleitt eitthvað skárri en á Moggablogginu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.2.2009 kl. 11:04

28 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vinsælustu bloggin, nánast alls staðar, finnst mér svo yfirleitt leiðinlegustu bloggin en þar eru samt mikilvægar undantekningar eins og t.d. Egill Helgason og Lára Hanna og nokkrir fleiri. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.2.2009 kl. 11:05

29 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og svo finnst mér þessi Nimbus alveg á síðasta snúningi og mætti nú alveg fara að halla sér og taka um þarfari iðju en þetta bloggbull sitt. Meira að segja hann Mali er farinn að sniðganga hann - og þó fyrr hefði verið!

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.2.2009 kl. 11:08

30 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

sammála með þessi vinsælustu blogg, mjög fá af þeim eru sérlega skemmtileg. Gáttin er náttúrlega bara samsafn af öllu mögulegu, góðu bloggin geta alveg týnst þar eins og á mogga.

En það er bara um að gera að vinsa úr, ég setti upp bloglines hjá mér og þar inni eru þær síður sem ég fylgist með. Fer nánast aldrei inn á gáttina.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.2.2009 kl. 13:35

31 Smámynd: María Kristjánsdóttir

a. Við Glói bökuðum lummur úr gömlum hrísgrjónagraut í dag. Hann í fyrsta skipti, ég í fyrsta skipti í tuttugu ár. Þær heppnuðust bara ágætlega.

b. Það eru að koma kosningar og með þeim leiðindin. Mér hefur nefnilega fundist bloggið merkilegt undanfarna mánuði- ég held meira að segja að það hafi haft pólitísk áhrif. 

c. Þetta er nú meiri endemis þokan.

María Kristjánsdóttir, 20.2.2009 kl. 21:52

32 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

d. Þú lést Kolbrúnu heldur betur hafa það í Mogganum í dag. Meiri endemis þvælan í henni!

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.2.2009 kl. 22:15

33 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Elsku Siggi; þú ert aldrei einn, enda krútt aldarinnar :)

Og ég er alltaf sammála öllu sem þú segir, svo að ég þarf ekkert að blogga sjálf - þú segir allt sem segja þarf.

PS Einkur át hænuna mína :/

gerður rósa gunnarsdóttir, 21.2.2009 kl. 09:50

34 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gerður Rósa: Ég sé það á lestrartölunum að ég er mikið lesinn þegar ég blogga sammfellt en á því er mikill misbrestur. Málið er að ég hef ekki lengur gaman af þessu. Það hefur eitthvað dáið inni í mér varðandi bloggið. En nú kannski lifnar eitthvað við það að lesa þetta frá þér! Smá væmni!!

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.2.2009 kl. 12:19

35 identicon

Sigurður hættir kannski að blogga.  Það er hundfúlt.  Síðan ég fór að lesa blogg hef ég ekki verið ósammála honum.

EE elle

EE (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband