Dagshitamet í Reykjavík

Á fimmtudaginn, 19. mars, var dagshitamet slegið í Reykjavík. Hitinn fór í 10,1  stig, kringum kl. 15, en var 9,7 stig kl. 15. Þetta er mesti hiti sem mælst hefur þennan dag í Reykjavík sem vitað er um. Meðalhiti sólarhringsins var einnig sá hæsti þennan dag, 8,5 stig með dálitlum fyrirvara.  

Hitinn í Reykjavík er samt ekki sá mesti sem komið hefur svo snemma vors. Í mars 1964 mældust 10,5 stig þ. 15. og um hávetur, 5. janúar 2002, mældust 10,6 stig í borginni og 10,5 daginn eftir.  

Meiri meðalhiti en mældist á fimmtudaginn hefur komið fyrr á árinu í öllum mánuðunum, janúar, febrúar og í mars fyrir þ.19.

Dagshitametið fyrir mesta hita á öllu landinu var ekki slegið.

Var að uppfæra veðurdagatalið í tilefni af þessu. 

Lesið veðurdagatalið daglega! Fylgist með nýjustu  tískusveiflum í veðrinu! Fylgist með gróðurhúsaáhrifunum leggja undir sig heiminn!

Umfram allt: Fylgist með! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er viss um að Malína er búin að bíða spennt eftir slíkri veðurfærslu frá þér Sigurður. 

EE ellee (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 13:47

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þar sem ég var áður búinn að afrita veðurdagatalið í mína tölvu sé ég að gamla metið fyrir 19. mars var 8,8 stig og hér er því bæting um 1,3 gráður hafi ég lesið rétt út úr. Þetta var líka óvenju djúp sunnanátt samkvæmt veðurkortum og hefur sjálfsagt borið með sér hina ýmsustu furðufugla.

Emil Hannes Valgeirsson, 21.3.2009 kl. 14:31

3 identicon

Vér fylgjumst með!  Keine áhyggjur!  Vér erum á tánum - full eftirvæntingar, athygli og ákafa eftir næsta veðurblómi.

Og hvurt þó í hoppandi - núna er allt í einu farið að snjóa hérna hjá mér í allri vorblíðunni!

Malína (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 16:38

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Einhvern daginn mun ég senda þér söguna af veðurglöggu ærinni Jarmildi og hennar grimmilegu veður-hefnd á bónda nokkrum.  Það bíður betri tíma, en þú átt þó öðrum mönnum fremur skilið að fá að heyra þá sögu, enda betur gefið en flestum að fjalla skemmtilega um veður.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 22.3.2009 kl. 10:11

5 Smámynd: Ólöf de Bont

Takk Siggi minn - þú mannst nú glöggt að þú kynntir mig fyrir textagerð árið 1971 og svo aftur ef minnið er rétt 1974.  Við skrifuðum í sameiningu skammargrein um eitt ákveðið kapitalískt fyrirtæki hér á landi, en í raun var það fylleríið á mér sem henti mér út á götuna

Ólöf de Bont, 22.3.2009 kl. 12:35

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég svitna alveg að heyra þetta. Gróðurhúsaáhrifin eru greinilega komin í harða samkeppni við þá sem hann Þorsteinn Sch. er vondur út í.

Hér í Danaveldi er veðrið eins og það er alltaf: nefnilega grátt. Það kom reyndar sólarglæta í dag, þegar ég svaf til að berjast við inflúensu sem hrjáir mig.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.3.2009 kl. 15:45

7 identicon

Og hvað ætli hitinn í Danmörku komi Þorsteini Sch. við Vilhjálmur?  Þetta er nú með ólíkindum.  Ef ekki einelti.

Jón (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband