Ég fór á Dalai Lama

En ég ætla samt ekki neitt að mæra ''þennan tækifærissinna með póstkortafílosófúna''. Enda var tilefnið ''kærkomið fyrir sjálfhverfa vesturlandabúa til að slá sig helgi og sjálfsþjónkandi réttlætisslepju''. 

Dali Lama er víst bara ''hræsnari og til þess gerður út að valda óeiningu, enda mun CIA greiða stóran hluta af reikningum hans.''

Það eru bara ''rétttrúnaðarfasistar'' sem nenna að hlusta á hann. 

Þetta segja mér þeir spöku og einstaklega hógværu og í hjarta lítillátu menn sem virkilega hafa kynnt sér málin og fara aldrei með opinbert fleipur.

Dalai Lama er víst eftir allt saman bara í algjöru lamasessi.

Það held ég nú.

Það er nú líkast til. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Hann boðar "gleði"

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.6.2009 kl. 01:13

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hefði nú kveðið fastar að orði í þínum sporum.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.6.2009 kl. 01:21

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég segi bara eins og gelgjur níunda áratugarins;

hvort heldurðu með Wham eða Duran Duran? (eða Lama)

Brjánn Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 03:46

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2009 kl. 09:09

5 identicon

Samt er það krafan í vissum kreðsum að fulltrúar veraldlegra yfirvalda á Íslandi skuli hitta þennan trúarleiðtoga sem staddur er hér í einkaerindum. Af hverju er það? Hví ekki bara að njóta spekinnar án þess að blanda stjórnmálum í málið?

Nei ég bara spyr.

Bjarki (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 09:52

6 identicon

Veistu Bjarki ég hef ekki heyrt neina speki frá Lama, mér fannst hann eins og smábarn þegar hann opnaði munninn.

Zero speki, fullt af væmni

DoctorE (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 09:55

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, það er nú það. Þú kemur að vissum punkti. Það er slatti af andlegum fræðurum í heiminum sem boða samkennd og friðsemd eins og Dalai Lama. Litlar sögur fara af þeim. En Dalai Lama er nú einu sinni trúarleiðtogi þjóðar sem er hluti annars ríkis sem er eitthvert hið voldugasta í heimi og verður æ voldugara. Þess vegna er Dalai Lama og allt í kringum hann bitbein í alþjóðapólitík. Aðeins fáir menn hefðu áhuga á Dalai Lama ef hann væri ekki í þessari sérstöku stöu, væri t.d. borinn og barnsfæddur Indverji. Hvað mig snertir, þó ég hafi samúð með undirokuðum þjóum og líka með Kínverjum sem þjóð, hef ég fyrst og fremst áhuga fyrir Dalai Lama sem búddamunki sem hefur stundað hugleiðslu alla ævi. Sjaldgæft er að slíkir menn komi til landsins. Pólitíkin í kringum Dalai Lama vekur minni áhuga hjá mér. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 10:00

8 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Jú, ég held nú að allir hafi gott af að hlusta á Dali Lama með opnum huga og hreinu hjarta.

Helgi Jóhann Hauksson, 3.6.2009 kl. 10:00

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fyrri athugasemd víkur að orðum Bjarka en þessi á við orð Dockor E: Menn verða að hlusta á það sem aðrir segja með sæmilega opnum hug. Þegar við hlustum full af fjandskap og höfnun, dæmandi og stimplandi í allar áttir með offorsi,  heyrum við bara eigin fordóma. Fyrir nú utan það að ekki er það alltaf orðin sjálf sem mestu skipta. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 10:05

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, og svo hefur Helgi Jóhann í millitíðinni sagt það sama og ég er nú að segja.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 10:06

11 identicon

Ég er með opin huga en ég læt heilann ekki detta út.

Ég ber fulla virðingu fyrir baráttu fólks fyrir mannréttindum ,ég ber enga virðingu fyrir fólki sem tranar sér sjálfu framfyrir fólkið með einhverju yfirnáttúrulegu kjaftæði.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá er Dalai Lama sjálfur fórnarlamb munkareglunnar, ef það væri eitthvað vit í honum þá þarf hann að brjótast úr úr ruglinu sem hann er forritaður í að gera.
Dalai Lama getur ekkert kennt okkur nema það eitt að klerkar munu vera klerkar, þeirra fókus er að bjarga klerkaveldinu... ekkert annað kemst að.
Dalai Lama er að gefa hundruð milljóna dollara í hallelúja stofnanir, til að viðhalda þeim... ég veit að fólkið í Tíbet myndi nota þessa peninga á betri máta, ég veit að milljónir barna gætu notað þessa peninga betur en eitthvað hallelúja rugl

DoctorE (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 10:23

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, Doktor þú ert með opinn hug í trúmálum og ég er kengúra með vængi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 10:48

13 identicon

Ekki sambærilegt Siggi, þú þarft að fara ofar í rugli til að ná í trúarbrögðin.
Þú værir risakengúra sem skaffaði extra líf fyrir alla sem elska hana, þeir fá að fara í pokann :)

Það er ekki hægt að vera með algerlega opin huga í trúmálum, það er alveg ljóst að þeir sem slíkt gera þurfa að brjóta niður alla skynsemi, skipta skynsemi út fyrir sjálfselsku og sjálfsumhyggju framar öllu öðru

DoctorE (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband