Að breytast í hund

Ég heyrði Hannes Hólmstein Gissurarson halda því fram í útvarpsviðtali að allir Íslendingar  hafi misst taumhaldið í sukkinu fyrir kreppuna - nema Davíð Oddsson.

Þetta er einfaldlega ekki rétt. Ýmsir vöruðu við sem taldir eru málsmetandi menn. Margir sem engin áhrif hafa, bara venjulelgt fólk sem ráða- og álitsgjafaelítan hlustar aldrei á, létu sér einnig fátt um finnast. Og í líferni sínu gætti þetta fólk ýtrasta taumhalds, jafnt í fjármálum sem á öðrum sviðum.

Ég er ekki einn af þeim sem lagt hafa Davíð Oddsson og Hannes Hólmstein í einelti í skrifum mínum fremur en aðra einstaklinga, enda hef ég enga sérstaka vandlætingu gagnvart þeim.

En nú get ég ekki leynt undrun minni á þessari dæmalausu aðdáun Hannesar Hólmsteins á Davíð Oddssyni sem orð hans vitna um.

Það er til talsvert af merkilegu fólki  í ýmsum greinum mannlífsins en aldrei í lífinu gæti ég lagst  svona flatur í persónudýrkun á nokkrum manni. 

Ég gæti alveg eins breyst í flaðrandi hund. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig grunar að samband Hannesar og Davíðs sé eins og samband Mr. Burns og aðstoðarmanns í Simpsons.

DoctorE (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 13:16

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég þekki þetta ekki sem þú vísar til Doksi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.8.2009 kl. 13:18

3 identicon

Þetta svarar þessu kannski
http://www.youtube.com/watch?v=ETtNNZ_chFA

DoctorE (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 13:20

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þegar vinátta þróast út í þetta þá er eitthvað mikið að.

Finnur Bárðarson, 24.8.2009 kl. 17:38

5 Smámynd: Kama Sutra

Hannes Hólmsteinn er náhundur (sbr. náhirð) sem geltir þegar honum er sigað.

Kama Sutra, 24.8.2009 kl. 18:26

6 Smámynd: Jens Guð

  Svona ofurdýrkun er af trúarlegum rótum.  Þetta eru trúarbrögð.

Jens Guð, 25.8.2009 kl. 00:57

7 identicon

Hvað eru menn alltaf að agnúast út í greyið hann Hannes?  Hann getur ekkert gert að því hvernig hann er.  Það væri nær að senda honum brauðmola og -mylsnu til greiningar.  Það er eitthvað að kenningu hans um molana, Þó ég geti ekki sett fingur á nákvæmlega hvað það er.

Elís Másson (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 12:35

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Davíðsblæti

Brjánn Guðjónsson, 25.8.2009 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband