Að koma ábyrgð yfir á þolendur

Þess hefur gætt í viðbrögðum við ölæði þingmannsins á Alþingi, bæði í blaðagreinum og á bloggi, að reynt sé að taka á einhvern hátt ábyrgðina á því sem gerðist frá honum og varpa henni yfir á umhverfið. 

Spurt er hvort aðrir þingmenn hafi notfært sér ástand hans og spilað á það.

Sitthvað er til í ábendingum af þessu tagi. Viðbrögð  manna við hverju einu sem gerist geta verið sæmileg eða ósæmileg.

Þetta er samt aukaatriði.

Ábyrgð á ölvunarástandi er á ábyrgð hins ölvaða en ekki umhverfisins.

Alveg eins og ofbeldi er á ábyrgð gerandans en ekki þolandans.

Þessar raddir eru því einfaldlega klassískt dæmi um meðvirkni hvað varðar misnotkun áfengis.

Margir hafa hneykslast á þessu ölæði í þinginu. Sú umræða er jákvæð. Umræða um svona  nokkuð hefði verið þögguð niður fyrir nokkrum árum. Okkur er sem sagt að fara ofurlítið fram almennt talað í viðhorfi til umgengni okkar við áfengi. 

Það verður samt ekki sagt um Alþingi. Öll viðbrögð þingsins hafa verið fyrir neðan allan hellur og eru hreinlega með ólíkindum.

Allt snýst þetta ekki um einstaklinga og breyskleika þeirra. Það varðar viðhorf og hugsunarhátt.

Áfengismóral.

Að lokum: Ég hef haldið úti bloggsíðu í þrjú ár en aldrei skrifað um áfengismál.

En það er ekki hægt að þegja þegar annað eins og þetta gerist. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hver segir að pólitík og áfengi fari ekki ágætlega saman. Fjölmargir landsfeður hafa verið örgustu drykkjusvolar og mest dáðu mikilmennin líka eins og t.d. bragvættur heimsins Winston Churchill sem drakk víst tvær whiskey flöskur á dag, þegar verst lét.

Er ekki Boris Yeltsin sagður frelsishetja Rússlands, hann sem dansaði fullur við hvert tækifæri, þ.e. þegar hann var ekki að fást við hjartaáföll.  J

jafnvel Drottningarmóðurinn hér í Bretlandi var sögð ekki komast af með minna en eina flösku af gini á dag.

Dáðustu skáld íslensku þjóðarinnar sem jafnframt voru Pólitíkusar og fyllibyttur, menn eins og Einar Ben eru heiðraðir í dauðanum með greftrun í þjóðarkirkjugarðinum á þingvöllum. Kannski að skáldið Ernir stefni þangað.

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.8.2009 kl. 02:18

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Hafi ég lýst því yfir fyrr í dag að ég myndi ekki fjalla meir um þetta mál, þá er sjálfsagt að biðjast velvirðingar á því.  Geri það hér með góðfúslega. (sic)´

Fall Íslands má fyrst og fremst rekja til "ofur"umburðarlyndis á öllum stigum mannfélagsins, þegar kemur að reglum og siðlegum gildum.

Nú er mál að linni.  Já það verður hundfúlt, svart og hvítt, en áframhaldandi umburðarlyndi má ekki þrífast ef við eigum að eiga einhverja von.  Hann laug, og braut þar með þingmannsheiti sitt, auk þess var hann drafandi fullur, sem er allt í lagi í góðra vina hópi, en ekki fyrir framan alþjóð að fjalla um mestu drápsklyfjar sem settar hafa verið á eina þjóð.

Fyrir það á hann að víkja, öðrum til aðvörunar, og sem risastórs skrefs í átt til nýja Íslands.  Aumkunnarverðir frammíkallarar og æsingarfólk, á að fá ærlega áminningu frá bjöllu-Ástu 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 28.8.2009 kl. 03:07

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er einmitt þetta viðhorf þitt Svanur sem ég er að andæfa. Að það sé allt í lagi með alkóhólisma og afleiðingar hans. Mér finnst í þessu máli mikið bera á slíkum skoðunum. Margir mikilhæfir menn hafa verið haldnir drykkjufíkn. Það gerir alkóhólisma samt ekkert skárri og heldur ekki drykkjulæti á almannafæri.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 09:58

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

En Sigurður :)

Ég skil að þú ert að gagnrýna að þetta framferði Ernis skuli ekki gagnrýnt. En þú átt eftir að útskýra hvers vegna það er ámælisvert að mæta fullur í vinnuna, sérstaklega þessa vinnu. Þetta sem þú kallar drykkjufíkn á sér mikla samsvörun í þjóðarsálinni. Margir hafa mætt groggaðir í vinnuna og engin sér neitt athugavert við það. Hvað sérð þú athugavert við að mæta fullur í pontu á alþingi? Hvað er rangt við það?

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.8.2009 kl. 10:13

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað er rangt við það að vera fullur á löggjafarsamkomu þjóðarinnar? Ætli þú vitir þetta ekki sjálfur Svanur. Þar er verið að ræða velferð þjóðarinnar í smáu og stóru og mikilvægt að það sé gert af yfirvegum og  viti. Áfengi virkar fyrst og fremst á æðstu vitsmunastöðvar heilans og dregur úr dómgreind manna og yfirvegun. Þetta vita allir. Og þetta er ein af ástæðunum fyrir því að það er rangt að vera ölvðaur þar sem aðgæslu er þörf en það mun þurfa í allri vinnu. Jú, ég hef séð hótfyndni og útúrsnúninga með það að á alþingi sé enginn með dómgreind svo þetta skipti ekki máli þar. Þó ég hafi gaman af kaldhæðni og gráglettni hef ég kosið að fjalla um þetta mál á alvarlegum nótum. Ég hef gert skýra grein fyrir skoðunum mínum og hef eiginlega engu við þær að bæta.

Ég trúi því annars ekki að þér sé alvara með þessar arhugasemdir þínar,  t.d. að enginn sjái neitt athugavert við að mæta fullur í vinnuna, en það held ég að nú orðið sé yfirleitt ekki liðið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 10:40

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Mér er full alvara með þessar athugasemdir mínar um alþingismenn og stjórnmálamenn Sigurður. Það eru engir útúrsnúningar eða hótfyndni. Þessi stofnun Alþingi er vita gagnslaus til að "ræða velferð þjóðarinnar í smáu og stóru". Hún er eitt skrýpashow og það er vel við hæfi að niðurlæging hennar birtist í drykkjulátum í ræðustól. Að taka hana alvarlega er að veita henni stuðning sinn og brautargengi.

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.8.2009 kl. 10:56

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta sjónarmið þitt er allt annar vinkill en ég var að nota. Ég var að beina sjónum mínum að umgengni manna við áfengi almennt í þjóðfélaginu og hvernig hún birtist á Alþingi í því sambandi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 11:03

8 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Í sjálfsævisögu Stefáns Jóhanns Stefánssonar, fyrrum forsætisráðherra Íslands m.m. er sérstakur kafli um það hvað áfengi og notkun þess hafi fært honum margar ánægjustundir um dagana.

Fátt bendir til annars en að St. Jóh. St. hafi verið hófsmaður á vín, en erfitt er að hugsa sér þann núlifandi stjórnmálamann, íslenskan, sem þyrði að setja svona þanka á blað.

Því miður hef ég ekki bók Stefáns Jóhanns við hendina, en tel mig þó muna þar rétt, að hann mælir hvergi með því að menn séu hreifir í þingsölum.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 28.8.2009 kl. 13:40

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Í þessu samandi vil ég drepa á atriði í leiðara Moggans í dag. Þar segir að neitun Sigmundar Ernis á því í fyrstu að hann hafi neytt áfengis sé alvarlegri en það að hann neytti þess yfirleitt fyrir þingfund. Í mínum huga er þetta tvennt bara sitt hvor hliðin á sama fyrirbrigði: Því andlega sjúkkelsi og óheiðarleika sem fylgir misnotkun á áfengi og er alþekkt fyrirbrigði.

Það er ekkert nema misnotkun á áfengi að fara ölvaður í ræðustól á alþingi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband