Skólar og bænagerðir

Mér er hulin ráðgáta hvers vegna í ósköpunum skólar eru að veita nemendum aðstæður til bænagerða með því að koma upp kapellum og bænaherbergjum. Kemur þetta skólahaldi og námi eitthvað við?

Geta menn ekki beðist fyrir heima hjá sér?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er skömm fyrir skólann að vera að bera undir andstæðu mennta, fáfræði... trú er jú fáfræði, misheppnuð vísindi.

Ef skólinn vill standa undir nafni þá lokar hann bænaherbergi og segir mönnum að stunda sitt kukl utan skóla... að auki á ekki að kenna guðfræði AKA biblíusögur í skólanum...  trúaðir eiga að vera með eigin "Harry Potter" skóla.

Að hafa bænaherbergi innan veggja skóla eða fyrirtækja snýst alls ekki um mannréttindi...bara vitleysu

DoctorE (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 21:02

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er allt í lagi að kenna guðfræði sem hverja aðra fræðigrein en bein trúaraiðkun innan veggja háskóla er annar hlutur.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.10.2009 kl. 21:13

3 identicon

Passar ekki inn í háskólann... ekki frekar en að Þórhallur miðill væri að kenna sitt fag, eða spákonur.

Svo er orðið "guðfræði" orðskrípi..

DoctorE (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 21:29

4 Smámynd: Yngvi Högnason

Það kemur fyrir að ég er sammála þér Sigurður.

Yngvi Högnason, 28.10.2009 kl. 08:39

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm, guðfræði er orðskrípi. Svona svipað og Ritningarlegar sannanir eða biblíulegar staðreyndir. Þau hugtök eru notuð í alvöru (Scripturarl evidence, biblical fact.

Auðvitað á þetta ekki heima innan skólaveggja. Ekki sem tilbeiðslustaður. Kannski ævingarhúsnæði fyrir þykistuleikina, en ekkert annað. 

Annars er þetta þetta mál um múslimina af þvíað þeir verða að biðja á ákveðnum tímum í ákveðna átt. Þeir henda öllu frá sér til þess. Í Saudí er meira að segja trúarlögregla sem sér til þess að þessu sé fylgt í hörgul og lemur og fangelsar fólk, sem er á gangi á þessum tíma. (þeir eru að sjálfsögðu undanþegnir)  Annars er Saudí frekar strangt. Um daginn þá brunnu fleiri tugir stúlkna inni í skóla af því að lögreglan rak þær inn í eldinn aftur vegna þess að þær voru ekki með blæju og í réttum klæðnaði.  (Believe it or not)

Jón Steinar Ragnarsson, 28.10.2009 kl. 10:04

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er næstum alltaf sammála þér Yngvi. Alveg satt! Og vertu ævinlega velkominn á bloggið mitt. Því verður svo ekki neitað að trúarbrögð eru staðreynd og hafa haft mikil áhrif á líf fólks og sögu heimsins. Kristnin ekki síst. Það er því ekkert að því að kenna þau fræði, guðfræðina, sem orðið hafa til kringum þetta fyrirbæri hvaða skoðun menn  svo hafa á því. En kapella eða bænaherbergi er allt annað. Hvað trúarhópa varðar sem oft þurfa að biðja í ákveðna átt á ákveðnum tímum geta þeir ekki ætlast til að veraldlegar stofnanir lagi sig að því. Þetta að dæmi sem trúarhóparnir verða einhvern vegin að leysa sjálfir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.10.2009 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband