Enginn er sannkristinn nema hann trúi meyfæðingunni og upprisunni sem bókstaflegum staðreyndum.
Ætlar einhver að voga sér að andmæla þessu?
Um þessa frétt vakna ýmsar spurningar.
Hvað rannsókn eða rannsóknir voru þetta?
Hvaða fornrit er átt við? Mig minnir að það séu tvær stuttar frásagnir um veðurfar í Landnámu. Einhverjar fleiri í biskupasögum. En töluvert í fornannálum.
Íslendingasögur hafa marga undanfarna áratugi ekki verið taldar marktækar heimildir um veðurfar. Ekki veit ég til þess að frásagnir þeirra um veður hafi verið rannsakaðar sérstaklega, hvað þá bornar saman við náttúrufarslega veðurvísa.
Fyrir nokkrum árum svipti flóttamaður sig lífi í Keflavík sem vísað var úr landi. Og átti að flytja úr landi næsta dag. Enginn vissi eiginlega hver hann var eða hvaðan  hann kom. Líkur  þóttu  samt á því að hann væri múhameðstrúar.
Aldrei kom fram í fréttum hvað varð um líkið. Múhameðstrúaramenn vilja ekki að lík þeirra verði brennd.
Já, hvað varð um lík þessa manns sem ekki mætti hér minnsta skilningi og samúð? Af hverju kom  það aldrei fram?
Lögreglustjórinn í Keflavík var vanur að stæra sig af hörku sinni gegn flóttamönnum. Hann hefur líklega talið sig þarna hafa unnið  þjóðþrifaverk.
Ekki þarf að taka það fram að engar umræður urðu í landinu um málið eftir að maðurinn dó. Ekki heyrðist t.d. eitt einast orð frá þessu framtaki sem var á vegum Landlæknisembættisins gegn sjálfsvígum.
Það var bara eins og ekkert hefði gerst.
Ég get hins vegar ekki að því gert að mér verður oft hugsað til þessa ókunna manns sem átti þau örlög að deyja hér fjarri vinum og vandamönnum og var hreinlega hrakinn út í dauðann.
Mali vill ólmur láta stofna dýraréttindadómstól Evrópu. Svo vill hann líka að komið verði á fót AA-samtökum, ekki fyrir fyllibyttur heldur Amnesty Animal.
Ég þori ekki að segja annað en já og mjámen við öllu sem Mali segir en hann er búinn að vera að mala um þetta í allan dag.
Ekki er öll vitleysan eins.
Þó er þetta víst nokkuð algengt að maríumyndir fari að skæla.
En ætli þær pissi aldrei á sig!
Forystumenn stjórnmálaflokkanna vanvirtu þjóðina með þessari vitfirrtu umræðu í Silfri Egils.
Einangrunarvist fanga er andstyggileg og grimmileg refsing. Hún þjónar eingöngu þeim tilgangi að brjóta þá niður.
Þessi herferð gegn krabbameini karla er bæði kellíngaleg og fíflaleg.
Fyrst og fremst er þetta þó herferð lækna, rétt ein í viðbót.
Menn eiga ekki að láta ráðríkt kennivald segja sér fyrir verkum í lífinu.
Það er engan vegin sjálfgefið að alltaf sé best að leita til læknis með öll krabbamein karla.
Það er til dæmis vel þekkt að of mikil athygli á krabbameini í blöðruhálskirtli - karlaveiki númer eitt -   gerir oft, vegna eðlis sjúkdómsins, lítið annað en að skerða lífsgæði viðkomandi.
Að stilla þessu svo upp sem eins konar kynjapólitísku framfaramáli, þar sem karlar séu eftirbátar kvenna, er mikill barnaskapur og algjörlega út í hött. Mál af þessu tagi er hreinlega annars eðlis en stílað er upp á í auglýsingunum hvað þetta varðar. Áherslan í áróðrinu er því kolröng. Kynjapólitísk mál, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, eru oft átakamál og það er ekki skynsamlegt að ala á slíku þegar heilsuvernd er annars vegar.
Ef karlar kjósa að haga sér öðru vísi en konur um krabbamein í þeim sjálfum þá er það bara þeirra mál og allt í lagi með það. Alls ekki er víst að betra væri að haga sér öðru vísi út frá ýmsum sjónarmiðum.
Höldum sjálfstæði okkar! Tökum sjálfir ábyrgð á lífi okkar! Látum ekki læknaveldið snúa okkur eins og skopparakringlum!
Má ekki hætta að lesa helvítis Passíusálmana á hverju ári í Ríkisútvarpinu?
Getur fólk ekki lesið þá sjálft ef það vill? Þarf hvert stertimennið á fætur öðru að lesa þá upphátt fyrir þjóðina?
Má ekki alveg eins lesa Karla sem hata konur eftir Stieg Larsson eða Ástir samlyndra hjóna (hverjar nú eru orðnar æði fátíðar)eftir Guðberg? Eða eitthvað annað?
Passíusálmarnir eru ágætur skáldskapur en ekki betri en ýmislegt annað sem ort eða skrifað hefur verið. Rétttrúnaður sautjándu aldar er hins vegar orðinn ansi framandi flestu fólki.
Það voru kannski sögulegar ástæður fyrir stöðu Passíusálmanna í huga þjóðarinnar en þær eru varla mikið lifandi nú á dögum. Það mætti því alveg brjóta upp lestrarhefðina í Ríkisútvarpinu.
Þegar allt kemur til alls er nefnilega ekki verið að lesa sálmana vegna skáldlegra verðleika þeirra heldur vegna þess að þeir eru trúarlegt verk.
Það er ástæða númer eitt.
Í þessari bloggfærslu sakar Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor Stefán Ólafsson um það að hafa brotið trúnað. Stefán er reyndar opinber starfsmaður og trúnaðarbrot af hálfu slíks manns er líklega talið alvarlegt, ef hann hefur þá brotið trúnað.
En þó menn séu ekki opinberir starfsmenn setja sæmilegir menn ekki það sem þeim er sagt í trúnaði fyrir almannasjónir.
Heimild Hannesar um trúnaðarbrot Stefáns er dagbókarfærsla Matthíasar Johannessens sem hann birti á netinu sumarið 2008. Þar segir: ''Stefán Ólafsson félagsfræðingur sagði okkur Styrmi í morgun í
trúnaði að nokkrir vinir Davíðs Oddssonar hefðu beðið
Félagsvísindastofnun um að gera könnun á fylgi hans ef hann færi í
forsetakjör''.
Matthías segir fullum fetum að þetta hafi verið sagt í trúnaði.  Samt setur hann það inn á netið eins og  ekkert sé.
Afhverju hneykslast enginn á algerlega vafalausu broti Matthíasar á trúnaði?
Það sem menn sem hafa einvers konar völd og áhrif leyfa sér og komast upp með.
Janúar reyndist sá úrkomuminnsti sem mælst hefur á stóru svæði fyrir norðan. Allt frá Ströndum  í vestri til Vopnafjarðar í austri.
Á Akureyri var úrkoman aðeins 0,8 mm og féll á fimm dögum. Þar hefur úrkoma verið mæld frá 1926 og aldrei verið jafn lítil í janúar. Aldrei hefur heldur mælst eins lítil úrkoma í janúar á Grimsstöðum, frá 1936 og Hrauni á Skaga frá 1949. Á sjálfvirku úrkomustöðinni á Raufarhöfn mældist minni úrkoma en nokkru sinni mældist á hinni mönnuðu sem er ný hætt, alveg frá 1934. Sömu sögu er að segja frá öðrum veðurathugunarstöðvum á öllu þessu svæði með mislanga mælingasögu.
Það er skammt öfganna á milli því síðasti desember var sá úrkomumesti sem mælst hefur á Akureyri. Í byrjun janúar var snjódýpt þar 81 cm og hefur aldrei mælst meiri í janúar. Ekki kom þar dropi úr lofti fyrstu 15 daga mánaðarins en vegna hlýindanna var þar orðið snjólaust 26. janúar og er enn.
Á suður og vesturlandi var úrkoma víðast hvar yfir meðallagi.
Meðalhitinn í Reykjavík er kringum 2,4 stig og hafa einir 8 eða 9 janúarmánuðir verið hlýrri frá 1870, síðast 1992.
Þetta var óvenjulegur mánuður enda hefur veðurlag verið óvenjulegt á stóru svæði í kringum okkur og í Evrópu.
Í nótt mældist frost í Reykjavík í fyrsta sinn síðan 7. janúar. Þíðukaflinn var því 21 dagur og er sá lengsti sem komið hefur í janúar frá því Veðurstofan var stofnuð 1920.
Vetur á Íslandi er talinn  vera mánuðina desember til mars.
Fyrir kemur að langir þíðukaflar í desember hafi byrjað í nóvember og sömuleiðis er það þekkt að frostlausir kaflar í mars haldi áfram fram í apríl.
Frá því Veðurstofan var stofnuð eru lengstu samfelldu þíðukaflarnir í vetrarmánuðunum þessir:
40 dagar, frá 17. nóvember til 26. desember 2002. Kannski er þetta svindl af því að svo stór kafli frostleysunnar var í nóvember en í það minnsta eru þíðudagarnir í desember 26 sem út af fyrir sig er líka met!
26 dagar, 9. mars til 4. apríl 1923.
25 dagar, 7.-31. mars 1929; 18. nóvember til 12. desember 1933; 30. nóvember til 24. desember 1987.
22 dagar, 7.-28. febrúar 1964.
21 dagur, 7.-28. janúar 2010.
20 dagar, 1-20 mars. 1964.
Veturinn 1847 var mjög afbrigðilega hlýr. Þá voru gerðar hitamælingar í Reykjavík. Þær eru kannski ekki sambærilegar við nýrri mælingar en ekki var þá skráð frost alveg frá 23. febrúar til 30. mars eða í 36 daga.
Frá stofnun Veðurstofunnar er hægt að telja 76 frostlausa kafla að vetrarlagi sem staðið hafa 10 daga eða meira. Tíu daga vetrarhlákur eru því tiltölulega algengt fyrirbæri. Af þessum eru 15 á þeim áratug sem enn er ekki liðinn og hafa aldrei verið fleiri á áratug en 12 voru þeir árin 1932-1941.  Á árunum 1949 til 1958 voru þessir kaflar aðeins tveir.
Á fylgiskjalinu má sjá alla þessa þíðukafla að vetrarlagi í Reykjavík frá árinu 1920.
Lengst til vinstri er ártalið en síðan kemur fjöldi daga hvers hlákukafla, síðan þeir mánuðir sem þeir falla á og eru þeir stundum tveir eins og gefur að skilja, loks koma dagsetningarnar, þegar þær eru tvær á sú fyrri auðvitað við mánuðinn sem hlákan byrjar í en en hin síðari þegar hún endar. Árið 1921 t.d. byrjar hlákan sem sagt í 11 mánuði, nóvember, þ. 26, en lýkur í 12. mánuði, desember, þ. 12.  Árið 1923 er öll hlákan í sama mánuði, febrúar,  og eiga því dagsetningarnar aðeins við hann. Og svo framvegis.
Í gærmorgun var hvergi talin alhvít jörð á veðurstöðum í byggð. Þá var í fyrsta sinn  í mánuðinum alauð jörð á Akureyri en á nýjársdag var snjódýpt þar 81 cm. Flekkótt jörð var talin á nokkrum stöðvum um miðnorðurland og á norðvesturlandi.
Í nótt snjóaði hins vegar nokkuð á norðvestanverðu landinu og yst á Tröllaskaga. Alhvítt var því talið í morgun á  Hólum í Dýrafirði, Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp, Bergsstöðum í Skagafirði og við Skeiðsfossvirkjun í Fljótum þar sem mæld var mesta snjódýpt á landinu, 7 cm. Það þykir  víst  ekki mikið á þessum árstíma. Sums staðar á þessu svæði var talin flekkótt jörð í morgun þar sem alautt var í gær.
Meðalhiti mánaðarins er nú 2,8 stig í Reykjavík og er það meira en þrjú stig yfir meðallagi. Fyrstu fimm dagar mánaðarins voru undir frostmarki en meðalhiti síðustu 18 daga er 5,0 stig eða 5,5 stig yfir meðallagi og er þetta með lengstu og sterkustu hlýjindaköflum á þessum árstíma. Ekki hefur frosið í Reykjavík síðan 7. janúar. En janúarhitametið er samt nokkuð langt í burtu vegna kuldanna í upphafi mánaðarins og svo er frosti spáð í lok mánaðarins og mun þá meðalhitinn lækka um sirka hálft stig.
Meðalhiti þessa janúar mun því þrátt fyrir allt ekki teljast til neinna verulega sérstakra tíðinda.
Hitinn fór í dag í 16,9 stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði sem er mesti hiti sem mælst hefur í janúar á veðurstöðvum í því héraði en þær ná til ársins 1930 fyrir janúar.  Á sjálfvirku stöðinni mældust  17,6 stig. Á Sauðanesvita fór hitinn í 16,6 stig sem er mesti hiti sem þar hefur mælst frá 1990. Á Staðarhóli í Aðaldal mældist hitinn 15,0 sem er met frá 1962.
Á sjálfvirku stöðinni á Siglufirði fór hitinn í 16,6 stig og 15,6  á Ólafsfirði og 15,3 á Hallormsstað en svo hátt fór hitinn aldrei þar á mönnuðu stöðinni árin 1938-1990 og munar miklu.
Aðeins á einum stað á Spáni og öðrum í Portugal mældist meiri hiti í dag í Evrópu en hér á landi.
Mesti hiti sem mælst hefur á landinu í janúar er 18,8 stig og komu á Dalatanga þ. 14. 1992. Sama dag mældust 17,5 stig á Akureyri.
Mjög hlýtt loft sunnan út höfum er yfir landinu eins og sjá má hér fyrir neðan. Skammt fyrir sunnan land er 10 stiga hiti í kringum 1300 til 1400 metra hæð.