Sólríkustu septembermánuðir

Norðlægar  áttir eru mestu sólaráttirnar í Reykjavík. Og því meiri norðanátt því meiri líkur á sól. Og því meiri norðanátt því meiri líkur á köldu veðri. Þess vegna er það svo að  fimm af tíu köldustu septembermánuðum í Reykjavík eru einnig á lista yfir þá tíu sólríkustu.

Árið 1975 er sólríkasti september sem mælst hefur í Reykjavík frá 1911 með 187 sólarstundir en meðaltalið 1961-1990 er 125 stundir. Þetta er jafnframt fjórði kaldasti september í höfuðborginni en sá fimmti á landinu frá 1866 eftir mínum kokkabókum. Norðanáttin var svo að segja linnulaus. Á Sámsstöðum er þetta einnig sólríkasti september, 160 klst.  Fremur sólríkt var líka fyrir norðan. Hitinn var 1,6 stig undir meðallagi á landinu fyrir þær stöðvar sem lengst hafa athugað. Úrkoman var í rúmu meðallagi miðað við meðaltalið 1931-2000 þeirra stöðva sem lengst hafa athugað. DV hóf göngu sína hinn 8.    

Kaldasti september í Reykjavík og líka á landinu í heild er hins vegar árið 1918 en hann er sá áttundi sólríkasti í Reykjavík með 162 stundir. Mánuðurinn var ansi þurr á manninn ofan í kuldann, úrkoman liðlega helmingur af meðallaginu. Þá mældist mesta frost sem mælst hefur í Reykjavík í september, -4,6 stig þ. 29.  

Sólríkasti september á Akureyri er hins vegar 1976 en þá mældust sólskinsstundirnar, 189 eða 2 stundum fleiri en í sólríkasta september í Reykjavík. Þetta er eina dæmið um það að sólskinsmet nokkurs mánaðar sé hærra á Akureyri en í Reykjavík. Meðaltal sólarstunda í september 1961-1990 á Akureyri er aðeins 87 stundir. Þetta er jafnframt sólríkasti septembermánuður sem mælst hefur á íslenskri veðurstöð. Á Melrakkasléttu er þetta og sólríkasti september sem þar hefur mælst, 176 klst og einnig á Hveravöllum, 171 klst. Sólardagar með meira en tíu stunda sól voru fimm á Akureyri og hafa aldrei verið fleiri í september. Í Reykjavík var sólskin líka talsvert meira en í meðallagi. Þetta er þriðji þurrasti september á Akureyri, eftir 1958 og 1931. Alls staðar var þetta stilltur og hlýr mánuður, hitinn sjónarmun yfir meðallaginu 1931-1960 en þá var meðalhiti september 1,2 stig yfir meðallagi áranna 1961-1990. Það var líka mjög þurrviðrasamt. Á Vopnafirði var úrkoman aðeins 0,1  mm og hefur aldrei mælst minni septemberúrkoma á íslenskri veðurstöð. Á Raufarhöfn og Húsavík mældist aldrei minni septemberúrkoma og heldur ekki á Ströndum, Hrauni á Skaga og í Grímsey. Úrkoman á landinu var aðeins liðlega helmingur af meðallaginu 1931-2000 en mánuðurinn nær samt ekki alveg inn á topp tíu listann yfir þurrustu mánuði fyrir þær stöðvar sem allra lengst hafa athugað. Mao formaður andaðist þ. 9.

Næsti september, 1977, er sá  tíundi sólríkasti á Akureyri með 118 sólskinsstundir. Hitinn á landinu var nákvæmlega í meðallagi en úrkoman átti þó nokkuð upp í það. Þetta er sólríkasti september sem mældist á Hallormsstað, 154 klst. Mjög sólríkt var einnig á Melrakkasléttu, 161 stund, og aðeins september árið áður var þar mældur sólarmeiri. Þann 8. opnaðist hraunsprunga við Leirhnúk og starfsmenn virkjunarinnar urðu að flýja.  

Þess má hér  geta að enginn septembermánuður kemst inn a topp tíu listann að rólríki bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Næst sólríkasti september í Reykjavík er 1954, 186 stundir. En þetta var kaldur norðanáttamánuður og tel ég hann sjöunda kaldasta september á landinu. Þetta er jafnframt  snjóamesti september sem mælst hefur frá 1924, snjólag á landinu var 11%, en er til jafnaðar 2%. Vetrarríki mátti heita á norðurlandi síðustu vikuna og reyndar víðar. Jafnvel var skódjúpur snjór að morgni hins  28. í Reykjavík en hvarf þó fljótlega.  Mesta frost sem mælst hefur á landinu í september mældist þann 27. í Möðrudal, -19,6 stig. Allvíða annars staðar þar sem lengi hefur verið athugað komu kuldamet í september. Úrkoman var mikil á norðausturlandi en lítil á suðvesturlandi en á landinu var úrkoman aðeins rúmlega hálf meðalúrkoma og að minni ætlan rétt skríður mánuðurinn inn á lista yfir tíu þurrustu septembermánuði. Í Vestmannaeyjum hefur ekki mælst þurrari september frá 1881 og ekki heldur á Eyrarbakka frá 1880 en eyða var 1911-1925 og ekki í  Hreppunum og í Fljótshlíð. Met þurrkar í september virðast hafa teygt sig um Borgarfjörð og sunnanvert Snæfellsnes en þar hefur verið skipt um stöðvar og erfitt að átta sig nákvæmlega á þessu.  

Fjórir aðrir mjög sólríkir septembermánuðir í höfuðstaðnum eru einnig með þeim köldustu.

Árið 1924 var september sá tíundi sólríkasti með 155,5 stundir og hann var jafnframt sá 10. kaldasti. Tvo daga síðast í mánuðinum var alhvítt í borginni en snjódýpt var aðeins 1 cm. Snjólag á landinu var 7% og er með því mesta í september. Úrkoman var aðeins rétt rúmlega helmingur af meðalúrkomunni og örlítið minni en 1954 og kemst mánuðurinn inn á topp tíu listann fyrir þurrustu septembermánuði. 

Tveir kaldir og sólríkir septembermánuðir komu í röð árin 1981 og 1982.

Sá síðarnefndi er sá sjöundi sólríkasti með 159 sólarstundir og á landinu er hann sjötti kaldasti september. Úrkoman var rétt neðan við meðallag. 

September 1981 var hins vegar sá  9. sólríkasti í höfuðborginni en aftur á móti sá sólarminnsti bæði á Akureyri, 32 kkukkustundir, og Hallormsstað, 28 stundir og auk þess á Hólum i Hornafirði, 49,5 klukkustudnir. Norðaustanátt var ríkjandi og úrkoman á landinu var í rétt rúmu meðallagi. Hitinn var í tæpu  meðallagi.  

September 2005 er sá þriðji sólríkasti í Reykjavík með 185 sólskinsstundir. Hitinn var um hálft annað stig undir meðallagi á landinu og frávikið furðulega jafnt um allt land. Mjög  kalt var síðustu vikuna. Þá var víða komin vetrarfærð fyrir norðan og festi snjó á Akureyri og líka á stöku stað sunnanlands og vestan.  Snjólagsprósenta á öllu landinu var 98% og hefur ekki verið hærri nema 1954. Mjög úrkomusamt var norðantil á landinu en minni en í meðallagi sunnanlands en hvergi voru þó raunveruleg þurrviðri og landsúrkoman í kringum meðallag.  

September 1957 var um landið rétt undir meðallagi 1961-1990 og er sá fjórði sólríkasti í Reykjavík með 177 sólskinsstundir. Hann hefur hins vegar metið í borginni fyrir fjölda sólardaga fleiri en 10  klukkustundir og voru þeir tíu. Menn töldu þetta mjög góðan mánuð. Aðeins september 1935 og 1927 hefur verið þurrari í Stykkishólmi frá 1856 og einungis september 1952 í  Vík í Mýrdal frá 1925.

Þann 27. var mikið kjarnorkuslys nærri Sjeljabínsk Rússlandi en ekki var upplýst um það fyrr en nokkrum áratugum síðar. Margt gerðistí menningarlífinu heima og erlendis. Árbæjarsafn opnaði þ. 22.,  Sibelius lest þ. 20., skáldsagana On the Road (Á vegum úti) eftir Kack Kerourac kom þ. 5. en söngleikurinn West Side Story eftir Leonard Bernstein var flrumfluttur á Broadway þ. 26. Í Reykjavík fór fram alþjóðlegt skákmót sem kennd var við sænska stórmeistarnn Ståhlberg  sem  keppti á mótinu.   

Aðeins hlýrri en þessi mánuður en 1958, þó hann hafi varla tekist að merja meðalhitann 1961-1990, var september 1994 sem er sjötti sólríkasti i Reykjavík með  168 stundir af sólskini. Hægviðrasamt var og þurrt, um þrír fjórðu af meðalúrkomu, og sólríkt um allt land. Á Akureyri er þessi mánuður sá annar sólríkasti en þar skein sólin 130 klukkustundir. Við Mývatn hefur ekki mælst sólríkari september í um 25 ára mælingasögu, 136,5 stundir. 

Eini septembermánuðurinn meðal hinna tíu sólríkustu í Reykjavík sem náði klárlega meðalhita á landinu og var beinlínis hlýr er september 2011. Hann krækti í að vera fimmti sólríkasti september í borginni með 168 sólarstundir og var 1,7 stig yfir hitameðaltali landsins 1961-1990 og meira að segja hálft stig yfir meðaltali hlýju áranna 1931-1960. Í Reykjavík voru 9 dagar með meira en tíu klukkustunda sólskini, það næst mesta í nokkrum september. Á Akureyri voru sólskinsstundirnar yfir meðallagi en sættu þó engum tíðinum. 

Sólríkasta septembermánaðar á Akureyri, 1976, hefur áður verið getið. En það er skemmtilegt að sjálfur september 1939, glæsilegasti hitaseptember í sögunni á landinu (ásamt 1941) er áttundi sólríkasti september í höfuðstað norðurlands með 122 stundir. Meðalhitinn var þá 11,5 stig á Akureyri og hefur aðeins verið lítillega hlýrra þar í september 1941 og 1996. 

Árið 1931 var fjórði sólríkasti september á Akureyri með 127, 5 klst sólskin. Þetta er jafnframt tíundi hlýjasti september á landinu og úrkoman var um þrír fjórðu af meðallaginu 1931-2000. Mjög  þurrt var á austurlandi og sums staðar fyrir norðan. Aðeins september 1894 hefur verið þurrari á Teigarhorni frá 1873 og september 1958 á Akureyri frá 1925. Á Eiðum var úrkoman aðeins 2,9 mm.  

Lýðveldisárið 1944 kom þriðji sólríkasti september í höfuðstað norðurlands með 128 klst. Hitinn var um hálft stig yfir meðallagi á landinu en úrkoman rúmlega einn fjórðu yfir meðallaginu. Kvikmyndaleikkonan fræga, Marlene Dietrich, skemmti hermönnum á Íslandsi þ. 14. en lokahnykkur styrjaldarinnar var í fullum gangni.

September árið 1967 er sá sjöundi sólríkasti á Akureyri með 122 stundir. Hitinn var um 1,3 stig yfir meðallaginu 1961-1990 og á því tímabili voru aðeins þrír septembermánuðir hlýrri á landinu. Úrkoman var hins vegar minni en þrír fjóðu af meðallaginu. Sólskin í Reykjavík var 125 stundir, fleiri en á Akureyri, en kemst þar ekki inn á topp tíu sólarlistann.

September eftir kulda og rigningasumarið mikla á suðurlandi 1983 var alls staðar sólríkur en ansi kaldur, um heilt stig undir meðallaginu á landinu en miklu meira en það á norðausturlandi.  En hann er sá níundi sólríkasti á Akureyri með 122 stundir. Þar mældist svo mesti loftþrýstingur á Íslandi í september, 1038,3 hPa þ. 26. Það sýnir svo kannski nokkra (gamaldags) öfga í veðurfari að eftir þetta mikla úrkomusumar á suðurlandi skuli þessi september einfaldlega vera sá þurrasti sem mælingar eru til um á landinu með minna en 40% af úrkomunni 1931-2000 á þeim fáu stöðvum sem lengst hafa athugað. Ekki hefur mælst þurrari september á Hólum í Hornafirði, Fagurhólsmýri og Kirkjubæjarklaustri. Á Kvískerjum er þetta eini september þar sem úrkoman hefur mælst minni en 100 mm en hún var 46 mm. Oft var bjart yfir í þessum mánuði og enn var meira sólskin í Reykjavík en á Akureyri, 138 klukkustundir. Þann fyrsta varð sá ægilegur atburður að sovésk orustuþota skaut niður farþegaþotu frá S-Kóreu og fórust þar 269 manns.  

Árið 1986 skein sólin á Akureyri í 125 klukkustundir sem gerir mánuðinn fimmta sólríkasta september þar. Á Hólum í Hornafirði hefur aftur á móti aldrei mælst eins sólríkur september, 184 klukkustundir. Hitinn var heilt stig undir meðallaginu á landinu. Og enn og aftur var sólríkara í Reykjavík en á Akureyri, 146,5 stundir. Úrkoman á landinu var aðeins rétt yfir helming af meðallagi og er þetta einn af allra þurrustu septembermánuðum, nærri því að vera á miðjum topp tíu listanum.

Síðasti septembermánuður sem kemst inn á topp tíu listann fyrir sólríki á Akureyri er árið 2000 en þá skein sólin 124 stundir og er þetta sjötti sólríkasti september á staðnum. Í Reykjavík voru sólarstundirnar 140. Úrkoman á landinu var í rúmu meðallagi en hitinn meira en hálft annað stig yfir því. Þann 3. lést Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur en þ. 9. kom þýska nóbelskáldið Gunther Grass til landsins. Og þ. 25. varð Vala Flosadóttir þriðja í stangarstökki á ólympíuleikunum í Sydney.   

Meðalhiti tíu sólríkustu septembermánaða á Akureyri er 7,7 stig en meðaltal allra septembermánaða þar árin 1961-1990 er 6,5 stig en 7,8 stig árin 1931-1960. Meðalhiti tíu sólríkustu septembermánaða í Reykjavík er hins vegar 6,7 stig en meðaltalið 1931-1960 er 8,6 stig og 7,3 stig árin 1961-1990. Sú staðreynd að tíu sólríkustu septembermánuðir á Akureyri skuli vera heilu stigi hlýrri en samsvarandi mánuðir í Reykjavík segir sína sögu um það hvaða áttir eru sólarvænstar á hvorum stað, köld norðanátt í Reykjavík en hlý sunnanátt á Akureyri.


Enginn alvöru bati

Hret getur komið í öllum sumarmánuðum og alhvíta jörð getur þá gert í heiðabyggðum norðanlands.  En snjódýptin er ekki mikil, svona 10 cm mest í júlí og ágúst  og frameftir september en yfirleitt miklu minni. Það er ekki fyrr en í seinni hluta september sem búast hefur mátt við meiri snjódýpt en þetta, allt upp í hálfan metra seint í mánuðinum og auðvitað bara einstaka sinnum. Það sem nú er að gerast á sér því ekki hliðstæðu síðustu áratugi svona snemma hausts eða réttara sagt svona síðla sumars hvað snjóinn varðar. Snjódýptin hefur sums staðar fyrir norðan verið 25-50 cm.

Í fyrradag hlánaði ekki allan sólarhringinn á Grímsstöðum á Fjöllum. Það er nauðasjaldgæft á þessum árstíma en hefur þó gerst áður einu sinni eða tvisvar á síðustu áratugum. En það er ekki kuldinn sem nú er aðalatriðið heldur snjóþyngslin og auðvitað hvassviðrið sem kom með þau.

Lítið mun leysa á næstunni til fjalla fyrir norðan og um helgina má jafnvel búast við meiri snjókomu  en þegar enn lengra líður er gert ráð fyrir að létta muni til. En þá verður kuldatíð.  

Er þetta þá ekki til vitnis um vaxandi öfgar í veðurfari? 

Nei, skrattakornið!  Þetta er fremur vitni um það að svo sem flest getur gerst í veðrinu á hverri árstíð.

Einstaka sinum gerast stórlega afbrigðilegir atburðir. Og svo ekki kannski næstu 50 árin.

Og hana nú!   


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Mikill snjór

Það hefur víst ekki farið framhjá neinum að mikill snjór er í heiðabyggðum á norðurlandi og víðar. Snjódýpt í morgun á Auðnum í Öxnadal var mæld 50 cm. Mesta snjódýpt sem ég veit um  í byggð í öllum september er 55 cm á Sandhaugum í Bárðardal þann 24. árið 1975. 

En nú er bara 11. september! Og  þori ég að veðja að þetta sé mesta snjódýpt sem mælst hefur á landinu, nema kannski á fjöllum, á þessum árstíma. Á Grímsstöðum var snjódýptin 30 cm og 20 cm í Reykjahlíð við Mývatn. Þarna er reynt að mæla jafnfallin snjó. 

Úrkoman á Akureyri var mæld 34,4 mm í morgun en 42,8 í gær. Á tveimur sólarhringum hafa þar því fallið 77 mm og er það ekki hversdagslegt.

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Leiðinda septemberbyrjun og tölvubilanir

Þessi september byrjar ansi leiðinlega. Fyrst miklar úrkomu en ekki kalt en svo þegar birtir hér í Reykjavík er hitinn um hádaginn undir tíu stigum. Og þetta eru fyrstu dagar mánaðarins.

Það er einmitt þetta sem ég óttaðist. Að sólardagar með sæmilegum hita væru fyrir bý.

Oft er ágætis sumarblær frameftir september en því er nú ekki að heilsa. Í Reykajvík er meðalhiti fyrstu tíu dagana í júni og fyrstu tíu dagana í september til langs tíma alveg sá sami. Það, ásamt mörgu öðru, rettlætir að september sé talinn til sumarmánaða en ekki hausmánaða. En auðvitað kólnar jafnt og þétt allan manuðinn.

Tölva á Veðurstofunni bilaði og hafði það áhrif á aðgengi upplýsinga á vefsíðu hennar og hefur kannski enn.  Mæligögn sjálvirkra stövða eru nú lengi að opnast en það gerðist áður á augabragði.

Eitt hefur ekki komið aftur. Það eru upplýsingar af gamla vefnum um mannaðar stöðvar á þriggja tíma fresti, raðað eftir spásæðum. Þar var t.d. hægt að sjá hámarks-og lágmarksmælingar stöðvanna sem hvergi annars staðar er að finna. Auk þess voru þarna upplýsngar frá mörgum sjálfvirkum stöðvum, en ekki öllum, á klukkutíma fresti. Það var mjög handhægt að fletta þessu upp til að sjá svona margar stövar saman, mannaðar sem sjálfvirkar, og geta flett eftir veðurhéruðum. Þetta var  ekki sýnt annars staðar í töfluformi. Þetta var já á gamla vefnum. Og hefur horfið áður án þess að um bilun hafi verið að ræða.

Ég óttast nú mjög að þetta hverfi varanlega án þess að nokkuð komi í staðinn.

Það er kannski lítið vit í því að vera með tvær vefsiður en ekki má þurrka burtu efni á gamla vefnum sem EKKI er aðgengilegt á þeim nýja. Enn er nokkuð af efni á gamla vefnum sem ekki er á þeim nýja. 

Ég hef sagt það áður og segi það enn að þessar upplsýngar frá mönnuðum stöðvunum eigi að koma endurbættar á nýja vefinn. 

Auk þess væri frábært ef hægt væri að skoða sólarhrings hámark-og lágmarkhita allra sjálvirku stöðvanna  (frá kl.0-24) á einu skjali svo menn þurfi ekki að leita að þessu á hverri stöð fyri sig sem tekur svona  nokkurn veginn allan daginn.

Og það skjal mætti alveg vera uppi í að minnsta kosti nokkra daga en helst allt til enda veraldar! 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Sá hann í gær

Ég þykist hafa séð skaflinn í gær í Gunnlaugssskarði í kíki útum eldhgúsgluggann minn.  En má vera að ég hafi  séð ofsjónir. Alveg örugglega er hann þó enn  í Kerhólakambi eins og segir reyndar í fréttinni.

Esjan er því ekki orðinn snjólaus þrátt fyrir hlýindin. Hún var það heldur ekki í fyrra þrátt fyrir hlýindi. 

Fylgiskjalið er í vissum vandræðum sem vonandi greiðist þó úr áður en snjóa leysir!

Viðbót 7.9. Nú er aftur bjart yfir og áðan sá ég í forláta kíki, sem er merktur hakakrossi og þýska erninum og pabbi fékk frá kafbátaforingja í Noregi þegar hann varð innlyksa þar í stríðinu, að enginn skafl er nú í Gunnlaugsskarði.  

Það er því staðfest að ég sá ofsjónir þegar ég þóttist sjá skafl í skarðinu. Það er reyndar ljós blettur í berginu sem áður hefur villt um fyrir mér þegar skaflarnir eru orðnir mjög litlir.

 

 


mbl.is Skaflinn í Esjunni horfinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband