Veðurmet í Reykjavík

Hér eru ýmis veðurmet fyrir Reykjavík.

Meðalhitinn sem úr er valið nær allt til 1824 með svellakaldan október og nóvember en aðrir  mánuðir koma ekki til álita fyrr en frá 1832. Október og nóvember 1824, tveir mánuðir þegar sólar gætir lítið, voru svo afgerandi miklu kaldari en aðrir þessir mánuðir að lítill vafi er á því, þrátt fyrir að mælingar þessara ára hafi ekki verið jafn áreiðalegar og síðar, að þeir hafi í rauninni verið þeir köldustu sem mælst hafa. 

Hámarks-og lágmarkshitinn er frá 1871, úrkoman frá 1884, sólin frá 1911 og snjórinn frá 1924. 

Frá því síðla árs 1907 til ársloka 1919 voru engar úrkomumælingar í Reykjavík. 

Jón Þorsteinsson mældi úrkomu frá því í júlí 1829 til febrúar 1854 og eru þær mælingar taldar furðu áreiðanlegar. Þegar mælingar hans skara fram úr öðrum og yngri metum er það haft til hliðsjónar á sínum stað í töflunni. 

Engar hámarks-eða lágmarksmælingar voru 1907-1919 en lesið á mæla frá því snemma morguns til seint að kvöldi og eflaust hefur lægsta lágmark að næturþeli stundum verið lægra en kemur fram í  þessum mælingum. Tvö hæstu lágmörk mánaða koma líka fram á þessum árum, í júli og október, sem báðir voru þrumuhlýir en líka er hér sýnt hæsta lágmark þessara mánaða á hinum árunum. Svo ekkert fari nú á milli mála. 

Sólskinsmælingar voru á Vífilsstöðum 1911-1920 og er hér úr þeim tekið án fyrirvara en árið 1920 var byrjað að mæla í Reykjavík. Ástæða er til að tíunda eitt: Árið 1913 vantaði sólskinsmælingar í janúar, nóvember og desember. Sé gert ráð fyrir að í þessum mánuðum hafi þá mælst jafn mikið sólskin og mest hefur mælst í þeim nokkru sinni hefði árið samt sem áður orðið það sólarminnsta í sögu  mælinga.   

Vífilsstaðamælingarnar á sólskini, allra mesta snjódýptin og loftþrýstingsmetið (sjá líka grein)  eru teknar traustataki úr bókinni Veður á Íslandi í 100 ár eftir Trausta Jónsson. Allt hitt er dregið úr Meteorologiske  Årbog 1880-1919, Íslenzkri veðurfarsbók 1920-1923, Veðráttunni 1924-2006 og úr Veðurfarsyfirliti eftir það. Auk þess voru feginsamlega þegnar nokkrar upplýsingar um úrkomu og hita frá Veðurstofunni. Jón Þorsteinssonar úrkoman er tekið úr ritgerð Trausta Jónssonar  Afturábak frá Stykkishólmi. Veðurathuganir Jóns Þorsteinssonar landlæknis í Nesi og í Reykjavík.  


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Sigurður Þór !

Enn ein glæsitaflan frá  þér.  Hafðu kærar þakkir og ég bíð spenntur eftir framhaldinu.

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 15.1.2007 kl. 16:09

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband