Smán og skömm

Ég dauðskammast mín fyrir að vera Íslendingur vegna þessa þrælahalds sem viðgengst á Kárahnjúkum. Vitnisburðirnir um það hrúgast upp. Reyndar þekki ég sjálfur fólk sem hætti að vinna á staðnum vegna þess að það fylltist ógeði.     

Ekkert af þessu kemur þó á óvart miðað við ýmsar upplýsingar sem áður hafa borist af þessu dæmalausa fyrirtæki Ipmpreglio.

En það er ekki bara fyrirtækið sem ber ábyrgð á þessum ósköpum. Það starfar hér með mikilli velþóknun íslenskra yfirvalda. 

Íslendingar hafa nú þann sóma að vera orðið ósvikið þrælahaldsríki til að auka sína eigin velmegun. Og flestir eru undarlega þöglir um málið. En hugsið ykkur atganginn í fjölmiðlum og hjá yfirvöldum ef þessar fréttir hefðu borist af Íslendingum í vinnu erlendis, t.d. í Portúgal.

Og nú ætlar Impreglio að auka virðingu sína með því að hóta þeirri manneskju málsókn sem sagði frá ófullnægjandi öryggi á Kárahnjúkum. Hún segist bara vera venjuleg manneskja sem engan áhuga hafi á því að vekja á sér athygli. En hún gat bara ekki orða bundist. En Impreglio ætla að  að keyra alla niður með hörku sem voga sér að opna munninn. Og hvernig er þá með konuna sem keyrði trukkinn og hefur líka leyst frá skjóðunni?

Á ekki að svínbeygja hana líka? 

Já, ég  skammast mín fyrir að vera af þeirri þjóð sem ber ábyrgð á því að þetta fyrirtæki veður hér uppi.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

sammála

halkatla, 1.6.2007 kl. 15:01

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

...og ég líka!!! Ótrúlegt að þetta skuli vera látið viðgangast

Heiða B. Heiðars, 1.6.2007 kl. 15:08

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

100% sammála og deili skömminni með þér og fleirum.

Halldór Egill Guðnason, 1.6.2007 kl. 16:53

4 Smámynd: Púkinn

Impreglio eru nú ekki þeir einu ... Púkinn vísar í það sem hann sagði hér.

Púkinn, 1.6.2007 kl. 17:27

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Að nokkur maður skuli láta þvílíkt frá sér fara!

Ég segi nú bara eins og hann Pétur sálugi þríhross að þú ert á móti Hagvextinum og menningunni og sennilega ertu á móti gvöði.

Þeir gengu frá þessu öllu á Þingvöllum Davíð og Berlúskóní. Hann Davíð er sgu ingen helvedes Islandsmand eins og þú.

Árni Gunnarsson, 1.6.2007 kl. 22:14

6 Smámynd: Norðanmaður

Ég er ekkert undrandi á þessum fréttum eins sumir. Héldu menn virkilega að þetta alræmda fyrirtæki færi að verða eitthvað öðruvísi við það að koma til litla Íslands, en barnalegt af ykkur.

Norðanmaður, 1.6.2007 kl. 23:44

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, ég lét þetta frá mér fara aðallega vegna hneykslunar á Íslendingum fremur en Impreglio sem er þó ekkert englafyrirtæki.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.6.2007 kl. 23:58

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Íslensk stjórnvöld afhafast lítið þótt fyrirtæki á þeirra vegum níðist á útlendingum. Ekki er erlendu fólki heldur boðin merkileg vinna, jafnvel þó það sé menntað  í einhverju fagi í sínu heimalandi er það oftast ekki tekið gilt hér. Mér finnst ástandið einna líkast því að við Íslendingar séu búnir að taka þrælahald upp aftur.

Svava frá Strandbergi , 2.6.2007 kl. 00:18

9 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Ég á von á því að þú kaust Steingrím og VG. Þú býrð í vesturbænum eða í Breiðholti og þú ert almennur stuðningsmaður dylgjustefnu Ómars og Steingríms.

Bara þar sem ég þekki þetta frá fyrstu hendi. Hvernig dettur þér að búa þér til svona málatilbúnað? Vitnisburðir eru hvað? Upplifun einstaklings á aðstæðum. Hefur þú farið þarna sjálfur, nei það efa ég en samt ert þú tilbúin að setja þig á háan hest og kalla þetta þrælahald. Er einhver þarna gegn sínum vilja? nei svo er ekki. það eina sem má deila um er hvort aðstaða sé góð eða ekki. það sem ég hef séð er að hún er fullnægjandi ekki meira og ekki minna.

Það er dálítið sérstakt að sjá fólk skrifa með þessum hætti. þetta er ekki ósvipað og auglýsingarnar hjá TM þessa daganna"maður skiptir bara ekki um skoðun". Ef eitthvað er ath vert við verkefnið á kárahnjúkum þá ber að kæra það. ekki að koma fram með dylgjur og vera sammála þeim sem síðast skrifaði og hæðst lét.

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 2.6.2007 kl. 09:25

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég fer eftir ýmsu hvað þetta varðar eins og drepið er á í færslunnu, bæði vitnisburði manna sem ég þekki og treysti og því sem komið hefur fram opinberlega á nokkuð löngum tima. En þetta er ekki varfærnisleg rökfræslugrein hjá mér. Þetta er persónuleg játning. Ég kaus ekki VG og bý ekki þar sem þú heldur Eiríkur. Ég ætlast ekki til að menn séu alltaf sammála mér. En ég spyr: Hvernig getur maður sem þekkir einhvern mann  ekki neitt en les eitthvað eftir hann sem honum finnst ekki gott, sett sig svona á "háan hest" og talað svona niður til hans eins og þú gerir og kemur með alhæfingar sem augljóslega eiga að vera honum til minnkunar? Ég ætla ekki að standa í slíku, ég deili ekki við fólk á bloggi, en segi mína skoðun og leyfi öðrum að hafa sína. Ég skil ekki þennan hryssingslega  ónota- og fyrirlitningartón sem er í þessum orðum þínum. Og lestu það sem ýmsir aðrir skrifa, t.d. leiðara Blaðsins í gær. Ég er ekki sá eini sem tekur þennan pól í hæðina og við virðumst hafa ýmislegt til okkar máls þó ég viðurkenni að heimurinn er aldrei svarthvítur.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.6.2007 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband