Kinky

Ég las það á bloggi að í dag sé það viðurkennt "að konur hafi kynhvöt sem þær mega ráðstafa að vild."

Þetta finnst mér mest kinky orðalag um kynhvötina sem ég hef nokkru sinni vitað. Menn geta ráðstafað eignum sínum að vild. En menn ráðstafa ekki hvötum sínum þó menn geti svalað þeim að vild sinni eða jafnvel tamið þær. 

Svo er það náttúrlega líka til í dæminu að jafnvel hinir mestu menn hafi ekkert vald yfir kynhvöt sinni en hún ráðstafi þeim í staðinn upp á hvern súluhálsinn á eftir öðrum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

En hvað gerir maður þá við fýsnir sínar? 

Heiða B. Heiðars, 4.6.2007 kl. 19:32

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Menn verða að ráðstafa fýsnakvótanum til hagsbóta (ekki óbóta) fyrir sem flesta.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.6.2007 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband