Þorskurinn

Síðasta svarta skýrsla Hafrannsóknarstofnunar um ástand þorskstofnsins er víst sú allra svartasta.

Og nú er kvartað yfir því að þrátt fyrir áralangar verndunaraðgerðir fækki samt alltaf þorskinum í sjónum. Mér skilst að sumir sjái einu lausnina á þessu vandræðaástandi í því að veiða sem mest af þeim fáu fiskum sem eftir eru.

Það virðist vera að Íslendingar séu búnir að ganga af þorskstofninum dauðum eins og þeir gerðu á Nýfundnalandi. 

Til hvers vorum við annars að standa í öllum þessum landhelgisstríðum með tilheyrandi þjóðrembu?   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þeir sem græða á að leigja eða selja kvóta hafa í krafti peninga (900.000.000.000kr) stýrt umræðunni og búið til þá mítu að hér sé heimsins besta fiskveiðistjórnarkerfi. Vonandi áttar þjóðin sig á að þetta eru nýju fötin keisarans. 

Sigurður Þórðarson, 3.6.2007 kl. 12:55

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þetta Sigurður og Kristinn! Ég viðurkenni reyndar fáfræði mína um þetta mikilvæga málefni. En sem venjulegur Íslendingur sem hefur verið alinn upp í þeirri trú að þorksveiðar séu undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar hlýt ég að hafa áhyggjur af því sem ég sé og heyri í fjölmiðlum um þessi mál. Þetta hlýtur að skipta þjóðina meira máli en t.d. hver vinnur í Evróvísjón.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.6.2007 kl. 15:23

3 Smámynd: Guðjón Ingólfsson

Sigurður minn

Ég er þess fullviss að aðal veiðiaðferðin sem notuð er við bolfiskveiðar við Ísland er að ganga af öllu lífríkinu í sjónum dauðu. Hvað heldur þú að verði um öll botndýrin sem eru lifríkinu svo mikilvæg þegar togveiðafæri sem vegur á annan tug tonna er dregið yfir með 7.000 hestafla togara. Hvað heldur þú að verði um kóralla sem hafa byggst upp á undanliðnum öldum og allt botnlandslagið sem er lifríkinu svo mikilvægt. Svari hver sem vill.

Guðjón Ingólfsson, 3.6.2007 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband