Hlýjustu og köldustu dagar í október

Fyrsta skiptiđ sem 20 stiga hiti í október mćldist á veđurstöđ á Íslandi var á Seyđisfirđi ţ. 6. 1959, 20,6 stig.

Áriđ 1962 munađi svo mjóu ţ. 20. ţegar hitinn á sama stađ fór í 19,9 stig.   

Nćst mćldist 20 stiga hiti í október ţ. 21. 1964 á Seyđisfirđi, 20,9 stig.

En ţađ var fyrsta dag mánađarins áriđ 1973 sem methitinn á landinu í október kom til sögunnar. Ţá mćldust 23,5 stig á Dalatanga. Ţessi hiti kom ađ nćturţeli. Klukkan 3 um nóttina var hitinn 22,6 stig og kl. 6 var hann 22,7, en klukkan 9 var hann fallinn niđur í 19.0 stig en var svo milli 18 og 19 stig eitthvađ fram yfir klukkan 15, en var 16,2 stig klukkan 18. Hitinn kom skyndilega ţví á miđnćtti hafđi hann ađeins veriđ 9,8 stig. Á ţessum tíma voru engar sjálfvirkar veđurstöđvar og ţví ekki hćgt ađ gera sér grein fyrir gangi hitans í smáatriđum.  Daginn eftir fór hitinn á Dalatanga ekki hćrra en í 15,1 stig. Á Seyđisfirđi var kominn 17 stiga hiti kl. 21 síđasta daginn í september en fór ekki hćrra en í 19 stig fyrsta dag októbermánađar en ţ. 2. var hann 21 stig klukkan 9 og 22 stig klukkan 15 og 18 stig klukkan 21.

Ţetta er eina tilvikiđ ţar sem 20 stiga hiti hefur mćlst einhvers stađar á Íslandi tvo daga í röđ í október. Ekki heldur hefur 20 stiga hiti dreifst eins víđa um landiđ og í ţessari hitahrinu, allt frá Reyđará viđ Siglufjörđ til Kollaleiru i Reyđarfirđi, en auk hitans á Dalatanga og Seyđisfirđi var ţessi hiti mćldur: 20,2 stig, ţ.1. á Reyđará, 20,6, ţ.1. á Vopnafirđi og 20,0, ţ. 2. á Hallormsstađ.

Áriđ 1975 mćldust slétt 20 stig á Seyđisfirđi ţ. 11.

Tíu árum seinna, 1985, kom hitahrina sem er sćmbćrileg eđa meiri en áriđ 1973 ţó ekki hafi mćlst alveg jafn hár hiti enda kom hrinan ekki fyrr en 14. dag mánađarins. Enginn mánuđur ársins kólnar jafn mikiđ frá fyrsta til síđasta dags sem október. Árin 1961-1990 var međalhitinn í Reykjavík 1. október reiknađur 6, stig, 5,0 ţ.14 og 3,3 stig 31. október. Ţennan dag 1985 fór hitinn yfir 20 stig á ţremur veđurstöđvum:22,0 stig á Seyđisfirđi, 21,5 á Daltanga, 20,9 á Kollaleiru og 20,6  á Neskaupsstađ. Daginn eftir mćldist mesti hiti sem skráđur hefur veriđ á Akureyri í október, 19,5 stig.

Tuttugustiga októberhiti kom nćst ţ.  7. áriđ 1992 á nokkrum stöđvum: Neskaupsstađur og Dalatangi 21,7, Seyđisfjörđur 21,1 og Kollaleira 20,4.

Áriđ 2003 kom mjög hlýr dagur ţ. 26. og mćldist ţá annar mesti hiti á landinu í október,  22,1 stig á Dalatanga og 20,8 á Kollaleiru en ekki var ţá mćlt á Seyđisfirđi. Vegna ţess hve seint ţessi dagur er í mánuđinum er hann eiginlega ekki síđri en metdagurinn ţ. 1. 1973. 

Allar ţessar mćlingar voru gerđar á kvikasilfursmćla. 

Og síđasta skiptiđ sem 20 stiga hiti hefur mćlst á slíkan mćli í október var núna ţ. 19. ţegar 20,2 stig mćldust á Skjaldţingsstöđum í Vopnafirđi en 21,0 á sjálfvirku stöđinni á Seyđisfirđi. 

Menn sjá ađ oftast mćlist 20 stiga hiti í október á austfjörđum og alveg sérstaklega á Seyđisfirđi og Dalatanga. Stöđin á Seyđisfirđi var alveg nýlega komin í gagniđ ţegar hún fangađi sín 20 stig í fyrsta sinn áriđ 1959. Dalatangi hafđi hins vegar mćlt hámarkshita frá 1949 án ţess ţó ađ ţar kćmi 20 stiga hiti fyrr en 1973. Fyrir 1959 voru einfaldlega ekki veđurstöđvar međ hámarkshitamćli á ţeim stöđum ţar sem vćnta má 20 stiga hita í október. Árin 1929 til 1964 var reyndar mćlt í Fagradal í Vopnafirđi án ţess ađ 20 stig kćmu ţar en Vopnafjörđur er ekki eins nćmur fyrir 20 stigum í október og firđirnir sunnar á austfjörđum. Í Fagradal mćldust t.d. "ađeins"18,7 stig ţegar 20,6 komu á Seyđisfirđi 1959. Tuttugustiga októberhita má eiginlega ađeins vćnta á austfjörđum annađ kastiđ og enn sjaldanar í Vopnafirđi og i grennd viđ Siglufjörđ og ţegar allra best lćtur innarlega á Fljósdalshérađ en varla annars stađar á landinu. 

Nokkrir mjög hlýir dagar komu ţó fyrir 1959 ţar sem hitastig ţeirra stöđva sem starfrćktar voru varđ svo hátt ađ líklegt er ađ 20 stiga hiti hefđi einhvers stađar mćlst ef jafn margar stöđvar hefđu veriđ í gangi og síđar varđ. 

Áriđ 1915, ţ. 4,  voru til dćmis lesin 19 stig á mćli á Akureyri án ţess ađ hámarksmćlir hafi veriđ á stađnum. Ţá var reyndar mćlt á Seyđisfirđi ţó hitinn ţar hafi ekki veriđ í líkingu viđ ţetta enda var veđurlagiđ ţannig ađ hitinn naut sín best um miđbik norđurland, Sauđanesviti hefđi t.d. getađ gert rósir ţennan dag ef ţar hefđi veriđ mćlt.

Teigarhorn í Berufirđi hefur mćlt hámarkshita frá ţví 1874 en er ekki međ hitavćnustu stöđum á landinu í október og ţar hefur aldrei mćlst 20 stiga hiti, mest 19,3 stig ţ. 5. 1945 og 19,2 ţ.10 1937. Ţessir dagar voru tuttugustigavćnir á austfjörđum. 

Tuttugu stiga frost í október er nauđasjaldgćft á Íslandi. Ţađ hefur ađeins gerst tvisvar svo víst sé og í bćđi skiptin í Möđrudal á Fjöllum. Ţann 29. 1992 mćldust ţar -21,2 stig í hćgu og stilltu veđri og Íslandsakuldametiđ var sett ţ. 28. áriđ 2002, -22,0 stig. Skráđ er lágmark í Möđrudal upp á -21,6 stig ţ. 19. áriđ 1957 en ţađ er hugsanlega villa ţví hvergi annars stađar varđ verulega kalt. Ţessi mánuđur var ţó mjöđg leiđinlegur og hefur til dćmis aldrei veriđ jafn margir alhvítir dagar í Reykjavík í október, sjö talsins.

Á Grímsstöđum á Fjöllum, sem er mjög góđur fulltrúi kulda á landinu međal veđurstöđva,  hefur veriđ mćlt síđan 1907 og ţar hefur aldrei komiđ tuttugu stiga frost í október, en 19,3. stig komu síđasta daginn 1926 eftir langvarandi norđanátt og -19,2 ţ. 29. 1931 ţegar hćđ var yfir landinu. 

Áriđ 1967, á miđjum hafísárunum,  kom mikiđ kuldakast og mćldist ţá mesta frost sem mćlst hefur á láglendi á Íslandi í október, -18,0 stig á Kornvöllum viđ Hvolsvöll á Rangárvöllum. Sólarhringurinn  16. október var talinn 9 stig undir međallagi á landinu sem er einsdćmi í október, en ţ. 17. fór ađ hlýna eftir kuldahámarkiđ um nóttina. Á Grímsstöđum varđ frostiđ 19 stig. Ţetta er eiginlega harkalegasta kuldakast sem gert hefur á landinu í heild í október síđustu áratugina. 

Ţetta var sem sagt á hafísárunum. Ţá voru svona kuldaköst algeng. En ekki lengur.

Hér fyrir neđan eru nokkur veđurkort frá ţeim hlýju og síđan köldu dögum sem minnst er á. Ţetta eru ýmist ţrýstikort fyrir andiđ og umhverfi ţess viđ jörđ og í 500 og 850 hPa fletinum eđa frá landinu sjálfu á hádegi viđ jörđ. Dagsetningarnar segja ađ öđru leyti ţađ sem segja ţarf.

 Rrea00219591007

1959-10-06_12

Rrea00119731001

Rrea00219731001

1973-10-01_12

Rrea00219851015

1985-10-14_12

Rrea00220031026

2003-10-26_12

Rrea00119671016

Rrea00119671017

Rrea00219671017

1967-10-17_12

Rrea00219921029

1992-10-29_12

Rrea00220021028

2002-10-28_12

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband