Hámarks-og lágmarkshiti hvers mánađar á landinu

Hér birtist hámark-og lágmarkshiti hvers mánađar á landinu allt frá 1873. Til 1879 var ţó ađeins mćlt á ţremur til fjórum stöđum svo lítiđ vit er í ţví ađ birta mćlingar hvers mánađar ţann tíma. Ţess í stađ sýnir efsti dálkurinn mesta og minnsta hita hvers mánađar sem mćlst hafđi til ársloka 1879. Sérstaklega skal tekiđ fram ađ ţó hitinn í Grímsey 26,2 stig í ágúst 1876 sé grunsamlega hár var mjög hlýtt ţennan dag (ţ. 18.) og mćldist 22,0 stig í Stykkishólmi og 21,6  í Reykjavík sem var ágústmet ţar allt til árins 2004. Í flipum viđ nöfn stövđanna má sjá hvađa ár hćsti hitinn mćldist í hverjum mánuđi 1873-1879. Sama á viđ um lágmarkshitann.

Frá árinu 1880 er hér sýndur mesti og minnst hiti hvers mánađar en ţetta ár voru hámarksmćlingar gerđar á 12 stöđum á landinu en nokkru fleiri lágmarksmćlingar. Alla nítjándu öld var fjöldi stöđva svipađur eđa jafnvel fćrri. Áriđ 1907 voru ţćr 13 en á stríđsárunum fyrri fćkkađi ţeim en fjölgađi aftur fljótlega eftir ađ Veđurstofan tók til starfa 1920 og voru orđnar 16 í árslok 1924. 

benediktÁriđ 1937 fjölgađi stöđvunum mjög og voru ţá kringum 28 í lok ársins. Eftir seinni heimsstyrjöld fjölgađi stöđvum enn og í ársbyrjun 1955 voru ţćr orđnar um 45, tćplega 60 áriđ 1961 og yfir 80 áriđ 1971 og nokkru fleiri eftir 1976. Ţá voru ţćr einna flestar, en upp úr 1990 fór ţeim ađ fćkka og núna ađeins rúmlega 20. 

Mćlingar á fáeinum sjálfvirkum stöđvum hófust áriđ 1995 en nú eru ţćr fjölmargar orđnar. Hér eru ţá í dálkunum eingöngu mćlingar frá mönnuđum stöđvum er mćldu á kvikasilfursmćla til ársloka 1994. Frá1995 koma sjálfvirku stöđvarnar líka inn í og nú mćlist mesti og minnsti hiti hvers mánađaar yfirleitt á ţeim. Fyrir neđan ađalldálkana eru dálkar sem sýna eingöngu mesta og minnsta hita sem mćldist á mönnuđum stöđvum. Fjallastöđvar í óbyggđum eru ekki ţarna međ hvađ lágmarkshita varđar nema Hveravellir sem var mönnuđ stöđ samfellt frá ţví í júlí 1965 til maí 2005 og í flipum árin 1973-1978 eru lágmarksmćlingar frá mönnuđu fjallastöđvum sem ţá voru starfrćktar.   

Nokkrar vafasamar mćlingar eru ekki hér međ en sjá má ţćr sumar í flipum ţegar ţćr koma fyrir. Sömuleiđis sést í flipum ţegar sami hiti mćlist á fleiri en einni stöđ. 

sthl1987Hitinn var áđur fyrr mćldur á skýli sem fest var á húsveggi og er taliđ ađ ţađ hafi stundum truflađ mćlingarnar miđađ viđ ţau skýli sem standa á bersvćđi eins og nú tíđkast. Slíkt skýli kom í Reykjavík áriđ 1947 og síđan bćttust ađrar stöđvar smám saman viđ uns allar stöđvarnar voru búnar ađ fá slíkt skýli áriđ 1964.

Til gamans er hér mynd frá ţví fyrir 1939 af gamla mćlaskýlinu á Húsavík og viđ ţađ stendur vćgast sagt töff athugunarmađur, sjálfur Benedikt Jónsson frá Auđnum. Myndin er úr Sögu Veđurstofu Íslands.  Á hinni myndinni er mađurinn ekki nándar nćrri ţví eins töff, en hann er bloggarinn sjálfur í góđum félagsskap viđ sérstćđa hitamćlaskýliđ á Stađarhóli í Ađaldal  í júlí 1987. 

Heimildir fyrir ţessum tölum eru hin danska Meteorologiske Arbog  til 1919, Íslenzk veđurfarsbók 1920-1923 og Veđráttan frá 1924 til 2006 en tölurnar eftir ţađ voru teknar úr daglegum upplýsingum um veđurathuganir Veđurstofunnar á vefsíđu hennar á netinu og skrám sem ég hef fengiđ frá Veđurstofunni. Fyrir einstaka mánuđi 1907-1919, ađallega fyrir Seyđisfjörđ, er dálítiđ tekiđ úr bók Trausta Jonssonar Veđur á Íslandi í 100 ár sem kom út 1993. Villur geta veriđ ţarna og eru ţćr allar á mína ábyrgđ.

Hámarkshitinn er á blađi 1 en lágmarkshitinn á blađi 2.

 

  

   


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ţetta er skemmtileg samantekt, takk.

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 15:14

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Gagnlegar og miklar upplýsingar ađ venju. Takk fyrir.

Emil Hannes Valgeirsson, 20.2.2008 kl. 19:31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband