Veðrið á hátíðisdegi verkalýðsins

Allir kannast við bjarta norðanveðrið sem oft er fyrsta maí. Á þessum árstíma er norðanátt mjög algeng og oft sólríkt. Frá þessu eru þó mörg afbrigði.

Meðalhitinn þennan dag í Reykjavík frá 1949  er 4.2 stig eða sá sami og 20. október að hausti. Fyrsti maí er í rauninni ekta haustdagur! Á Akureyri er meðalhitinn 2.7 stig.

Mesti hiti þennan dag í Reykjavík sem ég veit um er 14.5 stig árið 1942 en mesti kuldi -6,5 stig 1967. Á Akureyri frá 1949 eru samsvarandi tölur 18,4 stig í fyrra og -10,4 stig 1968.

Hlýjustu og köldustu sólarhringar í Reykjavík að meðaltali voru 9,6 stig árið 1942 og -4,5° árið 1979 en á Akureyri 10,4 stig 1980 og -6,0 1979. Meðalhiti sólarhringsins var undir frostmarki í Reykjavík árin 1967, 1979, 1982, 1987 og 2003 en á Akureyri  1954, 1963, 1967, 1968, 1972, 1974, 1979, 1982, 1987, og 2003. Þetta eru 8,6 og 17% allra daga. 

Frá 1949 hefur hámarkshiti átta sinnu náð tíu stigum í Reykjavík en 18 sinnum á Akureyri, eða 14 og 31% allra daga. Frost í Reykjavík var mælt 17 daga eða 29 % en á Akureyri  25 dagar eða 43 %.Árin 1967, 1973, 1979 og 1982 komst hitinn ekki yfir frostmark á Akureyri en aldrei hefur það gerst í Reykjavík.


Mest sól hefur mælst frá 1923 í Reykjavík 15,8 klukkustundir árið 1927 en á Akureyri frá 1949 14,5 klukkustundir þann kalda 1. maí 1968. Fimm daga frá 1923 hefur alls engin sól mælst í Reykjavík en frá 1949 14 dagar á Akureyri eða 24% allra daga. Var einhver að segja að alltaf væri sól og blíða á Akureyri?

Úrkomusamasti 1. maí í Reykjavík var 1957 þegar 10,6 mm mældust að morgni þ. 2. Á Akureyri var úrkomusamast 1970, 7.8 mm. Hér eru allar úrkomutölu miðað við kl. 9 þ. 2. maí því lítið vit er í því að tala um úrkomu sem fallið hefur sólarhringinn á undan kl. 9 þ.1. maí þó venjan sé að dagsetningsr á úrkomu miðist við kl. 9 þann dag sem dagsetningin segir.   Engin úrkoma hefur mælst Reykjavík 48% allra daga en á Akureyri 60%.  

Meðaltal hámarkshita á landinu er aðeins 10,4 stig en lágmarkshita -4,8. Lægsti hæsti hiti var 2,7 stig 1979 en hæstur 18,9  stig á Grímsstöðum í fyrra og á sjálfvirkri stöð 20,7° á Hallormsstað þann sama dag.  Frá 1949 hefur frost mælst einhvers staðar á landinu 1. maí öll árin nema 1961, 1962, 1980,2000 eða hvorki meira né minna en 93% allra daga. - Im wunderschönen Monat Mai!

Á fylgiksjali má sjá hitann, sólina og úrkomuna 1. maí frá 1936 í Reykajvík og á Akureyri frá 1949, ásamt hámarks- og lágmarkshita á öllu landinu frá 1949. Auk þess er hiti og úrkoma frá Hallormsstað 1937-1948 og úrkoma og hámarks-og lágmarkshiti í Reykajvík 1889-1907 (ásamt meðaltali þess hita) og hæsti og lægsti lestur á mæla árin 1907-1918 á líkan hátt og áður hefur mátt sjá á þessari síðu um veðurdaga. Hatíðisdagur verkamanna var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1889 í heiminum.  

Fyrir neðan færsluna má sjá veðrið á hádegi kaldasta og hlýjasta 1. maí frá 1949 og er nokkur munur á þeim en hér má skoða veðrið á hádegi alla dagana frá 1949.

1962-05-01_12

1979-05-01_12


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Athugasemdir

1 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Auðvitað er alltaf sól á Akureyri og mælingar sem gefa annað til kynna eru gjörsamlega ómarktækar.

Svavar Alfreð Jónsson, 1.5.2008 kl. 21:12

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Það mun víst alltaf vera logn og alls konar blíða á Akureyri. Líka þegar það er það alls ekki.

Fyrirtaks 1. maí pistill, annars. Kærar þakkir.

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 21:20

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eru nú ekki Akureyringarnir farnir að neita staðreyndum veðurlífsins! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.5.2008 kl. 21:57

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Það hafa Akureyringar alltaf gert og eru til margar, góðar sögur af afneitun þeirra... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:22

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, og svo malbikuðu þeir undir hitamælaskýlið til að geta hreykt sér af hitametum!

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.5.2008 kl. 22:41

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Maísólin okkar skýn á alla verkamenn í aldingarði drottins þann 1. maí, hvar sem þeir eru staddir.

Emil Hannes Valgeirsson, 1.5.2008 kl. 22:45

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband