Enn er hneykslast á þeim!

Já, nú harmar Forsætisráðuneytið að Breiðavíkurdrengirnir skuli gera uppskátt um  hugmyndir ríkisins um skaðabætur til þeirra. Þeir eiga bara að þegja þar til of seint er að mótmæla.

Með þessari tilkynningu er forsætisráðuneytið, Geir Haarde, að setja ofan í strákana. Að harma eitthvað er að setja ofan í við einhvern.

Hvað ætli slíkt hafi oft gerst áður þegar þessir drengir eiga í hlut. 

Forsætisráðuneytið ætti nú bara að skammast sín. Og auðvitað verja ráðuneytismenn sig og  vitna í sérfræðinga sem eiga að vera virtir.

En hvernig væri að virða Breiðavíkurdrengina svona einu sinni?


mbl.is Birt án samþykkis ráðuneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geir Harði ætti nú frekar að harma og hneykslast á þeirri smánarlegu upphæð sem kemur fram í frumvarpsdrögunum.  Þessir menn voru rændir æskunni og haldið nauðugum í þrælkunarbúðum fjarri fjölskyldu sinni - að ekki sé minnst á allar misþyrmingarnar sem þeir urðu að þola þarna.

Malína (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 16:22

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Við höfum öll samúð með Breiðuvíkurdrengjunum og viljum að ríkið bæti eftir mætti fyrir misgjörðir gagnvart þeim.  Það verður aldrei hægt að fullu.

Málið er í vinnslu og mér skilst að bætur til þeiira eigi að vera ákveðnar með tilliti til þess sem þekkist í sambærilegum málum.

Jón Halldór Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 17:23

3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Sammála þér Sigurður. Hjartanlega sammála.

Marta Gunnarsdóttir, 4.9.2008 kl. 22:11

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála, Sigurður, sammála.

Jón Valur Jensson, 5.9.2008 kl. 01:27

5 Smámynd: halkatla

Ég hef þegar sagt allt sem ég get sagt um Geir Haarde og bjóst alveg við þessu af honum, en var samt að vonast eftir að hann sýndi einhvern mannlegan skilning

Og á svo ekki að fara að blogga neitt meir, ekki einu sinni um veðrið?

halkatla, 6.9.2008 kl. 13:15

6 identicon

Hvað gerir kona þegar uppáhalds bloggarinn er kominn í bloggverkfall?  Hún fer og sækir snöruna...

Malína (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 20:20

7 Smámynd: Gulli litli

Það á allt að vera á yfir borðinu í þessu máli..

Gulli litli, 7.9.2008 kl. 09:37

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

klukk

Sæmundur Bjarnason, 9.9.2008 kl. 00:07

9 identicon

Er ekki orðið tímabært að hafa áhyggjur af þessari skerandi þögn feðganna, Nimbusar og Mala?

Malína (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 14:24

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Neinei, engar áhyggjur. Þeir skila sér, feðgarnir, þótt síðar verði... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.9.2008 kl. 14:26

11 identicon

Ég er farinn að óttast það mest að Mali hafi étið meistarann upp allan...

Jón Bragi (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband