Andleysi

Nú er ég svo andlaus að ég get ekki lengur hugsað.

Hvað þá bloggað. 

En vonandi lagast það þegar Jóhanna Guðrún hefur sigrað í Júrovisjón.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Dómsmálaráðherrann tjáði sig í dag um gapastokk ríkisstjórnarinnar suðrí Reykjanesbæ. Hélt þú mundir kommentera.  

Sigurbjörn Sveinsson, 12.5.2009 kl. 17:39

2 Smámynd: Eygló

Dettur þér aldrei í hug mjólkurbú og mjaltir þegar þú sérð skrifað eða heyrir 'júró'-visjón?  Nei, kannski ekki. Ég er hugsanlega meiri perri. Þetta kom ekki vel út (að skrifa "meiri") því nú er eins og ég geri því skóna að þú sért perri... ég bara MEIRI perri.  Vel meint, illa orðað? Nenni ekki að finna skárri setningu.

Eygló, 12.5.2009 kl. 17:41

3 Smámynd: Árni Matthíasson

Þessari sömu Júrovisjón og þú kallaðir tónlistarlega hlandfor í Þjóðviljanum sælla minninga?

Árni Matthíasson , 12.5.2009 kl. 18:23

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hver vaknar ekki upp með andfælum við að detta niður í hlandfor? Ansi voru menn annars spakir á Þjóðviljanum í gamla daga. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.5.2009 kl. 18:30

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það var auðvitað ekkert Júróvisjón í Moskvu á tímum Þjóðviljans. En nú er öldin önnur.

Emil Hannes Valgeirsson, 12.5.2009 kl. 18:35

6 identicon

Þessi keppni er löngu hætt að snúast um tónlist - það er bara yfirskinið.  Köllum þetta bara sínu rétta nafni - "Dragshow" - sem er eiginlega miklu skemmtilegri vinkill heldur en "tónlistin" sem er framin þarna.

Með þessa skilgreiningu í huga eigum við kannski pínulítinn sjens í keppninni þetta árið.  Því eins og einhver bloggarinn sagði - kjóllinn hennar Jóhönnu lítur út eins og bolluvöndur...

Malína (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 19:06

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Þjóðviljinn......var það ekki bara Flosi á sunnudögum?

Brjánn Guðjónsson, 12.5.2009 kl. 21:11

8 identicon

Ertu þá ekki fullur andagiftar núna - fyrst við komust áfram...

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 21:43

9 identicon

Bolluvöndurinn gerði útslagið!

Malína (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:02

10 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þegar Yohanna verður búin að vinna Júróið verður allt gott aftur...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 12.5.2009 kl. 22:22

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En ef hún vinnur fer þjóðarbúið endanlega á hausinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.5.2009 kl. 22:38

12 identicon

ha,

júgróvisjón?

nicejerk (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:46

13 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Var  Flosi ekki á laugardögum? Þegar hann skrifaði um Glasa, sem var svo frábærlega skammur til framfótanna að ríða mátti honum lárétt upp brekkur.

Sigurbjörn Sveinsson, 13.5.2009 kl. 08:31

14 identicon

Mér sýnist íslenskir kallar vera hrifnari af kjólum sem eru efnislitlir heldur en kjól eins og þeim sem Jóhanna syngur í. Karlrembur upp til hópa!

Rósa (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 09:06

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mér finnst þessi Eurovison keppni líkjast æ meira lélegum sirkusatriðum með hverju árinu sem líður. Ég slökkti á hljóðinu í sjónvarpinu hvað eftir annað eftir að hafa hlustað á fyrstu tónana í lögunum, allt þar til kom að íslenska laginu. Það var skást, jú og svo sænska lagið.

Svava frá Strandbergi , 13.5.2009 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband