Aldahvörf

Nú skal ég segja ykkur það að ég horfði á Evróvósjón í fyrsta sinn á þessari öld.

Ég er var lengi harðsvíraður tónlistargagnrýnandi og ætla þess vegna að troða mínu mikilvæga áliti upp á ykkur öll með harðri hendi.

Það voru bara þrjú lög sem einhver glæta var í fyrir minn smekk. Tyrkneska lagið, íslenska lagið og lagið frá Bosníu-Hersegóvínu. Það er hins vegar stælt eftir alþekktu lagi sem ég man nú ekki hvað er.

Íslenska lagið er samt sentimental leir. En það hefur smávegis melódíu. Söngkonan getur líka sungið og er sæt og var í bláum kjól. Blátt er einmitt uppáhaldsliturinn minn.

Ég fór náttúrlega að gráta alveg gríðarlega og allt það þegar síðasta innsiglið var rofið og hinn dýrmæti leyndardómur kom í ljós. 

Ég spái því að lagið komist í úrslit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Gerirðu þér grein fyrir því að ef þú tekur 5 fyrstu stafina út í "harðsvíraður" þá færðu út "víraður".

Svo langar mig að spyrja þig hvort þú manst eftir laginu hans Valgeirs Guðjónssonar, Hægt og hljótt. Man ekki hvað söngkonan hét sem söng það. Þetta var á fyrstu þátttökuárum okkar í keppninni.

Ári eða tveimur síðar var ég í fjölskylduboði og þar var tónskáldið Hallgrímur Helgason heitinn. Hann var skemmtilegur og talaði mikið. Eitt af því sem hann sagði þar var, að lagið Hægt og hljótt væri fullkomið út frá faglegum tónsmíðaforsendum. Hann fór út í nánari útskýringar sem ég man ekki hverjar voru, enda ekki fagmanneskja í tónlist.

Gott ef lagið fékk ekki 0 stig... eða eitthvað viðlíka.

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.5.2009 kl. 00:47

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það var Halla Margrét sem söng. Hún varð síðar óperusöngkona.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.5.2009 kl. 00:53

3 identicon

Ég þori nú varla að viðurkenna þetta en mér er minnisstæðast þegar tveir miðaldra menn, Olsen-bræður (hétu þeir það ekki annars?) frá Danmörku tóku þátt og unnu keppnina, einhvern tíma í kringum aldamótin.  Mér fannst allt eitthvað svo svakalega sætt og krúttlegt við þessa kalla  - svo var lagið þeirra alveg ókei líka - en það var svosem algert aukaatriði.   Það er í eina skiptið á ævinni sem ég hef hringt inn og kosið í þessari keppni.  Alveg hreina satt!  Að sjálfsögðu kaus ég Krúttkallana!

Malína (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 02:10

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

<object width="445" height="364"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/0VIv1kJ6BLk&hl=en&fs=1&border=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/0VIv1kJ6BLk&hl=en&fs=1&border=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="445" height="364"></embed></object>

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 13.5.2009 kl. 08:59

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 13.5.2009 kl. 09:00

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þetta virðist ekki ætla að takast en slóðin er :

http://www.youtube.com/watch?v=0VIv1kJ6BLk

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 13.5.2009 kl. 09:03

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hérna er síðan Is it true :

http://www.youtube.com/watch?v=hcXCjC1Yijg

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 13.5.2009 kl. 09:05

8 identicon

Ég heyrði enga tónLIST... enda snýst þetta alls ekki um tónlist.

DoctorE (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 09:33

9 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ekki horfði ég né hlustaði á þetta í gærkvöldi en sagði sjálfu í bloggi fyrir nokkrum dögum að ef framlag Íslendinga í ár fengi eitthvert brautargengi væri það fyrir verðleika flytjandans því lagið er að mínum smekk hvorki fugl né fiskur.

Lára Hanna minnir á lagið Hægt og hljótt. Það er enn, að ég held eitt fallegasta lag sem hljómað hefur í Evrópusýn (Eurovision). Sókratesinn Stormskersins var líka ansi grípandi.

Sigurður Hreiðar, 13.5.2009 kl. 11:07

10 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Svo því sé haldið til haga þá lenti Halla Margrét í 16. sæti árið 1987 eins og Gleðibankinn gerði árið áður og Sverrir Stormsker árið eftir. Það var hinsvegar Daníel Ágúst sem fékk 0 stig árið 1989 með lagi Valgeirs Guðjónssonar sem einnig samdi Hægt og hljótt.

Auðvitað fylgist ég með keppninni í ár af sama áhuga og venjulega enda er ég á afar lágu menningarlegu plani ólíkt mörgu gáfumenninu. Mér finnst þó Eurovision allt annað og merkilegra fyrirbæri en Idol sem ég horfi ekki á. Og ég kaus Portúgal í gærkvöldi.

Emil Hannes Valgeirsson, 13.5.2009 kl. 11:44

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég man vel þegar lagið Volare kom fram samið og sungið af Domenico Modugno kom fram 1958 í Evrópukeppninni sem þá hét því látlausa og íslenska nafni. Lagið er enn með þekktustu dægurlögum heims og er þess vegna ekki neitt dægurlag. Það er satt sem sagt er að þessi keppni snýst ekki lengur um tónlist enda er hún yfirleitt fyrir neðan allar hellur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.5.2009 kl. 12:26

12 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sko... Ég fylgdist með keppninni hér áður fyrr - áður en hún hætti að snúast um tónlist. Mér finnst engin tónlist óæðri annarri - bara öðruvísi - og ef til eru menningarleg plön í tónlist er bara gaman, þroskandi og fróðlegt að hoppa á milli þeirra.

En fyrir þónokkuðmörgum árum náði yfirborðsmennskan, útlitið og glysið  yfirhöndinni í Eurovision og þá hætti þetta að vera skemmtilegt hjá mér. Auk þess sem mér fannst mikil afturför þegar hljómsveitinni var lagt og farið að spila alla tónlistina af bandi.

Ég heyrði lagið sem Malína nefnir með Olsen bræðrum í útvarpinu í bílnum þegar sú keppni stóð yfir. Var á leiðinni heim og náði að horfa á stigagjöfina. Það var líka í eina skiptið sem ég hef hringt og kosið, ég var stórhrifin af laginu sem ég hlustaði á - nota bene - í útvarpi. Sá ekki þá bræður flytja það fyrr en seinna. Þeir voru eins og ferskur andblær í keppninni, látleysið uppmálað.

Kannski er góður prófsteinn á tónlistina í þessari keppni að horfa ekki en hlusta bara og kanna hug sinn til laganna á þann hátt. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.5.2009 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband